Vera - 01.04.1983, Side 19
SKIPULAG
í GRAFARVOGI
í byggðinni norðan Grafarvogs eru
áætlaðar 1850 íbúðir. Par af eru:
55% í einbýlishúsum eða 1017.
30% í raðhúsum eða 555.
15% í fjölbýlishúsum eða 278.
Allt bendir til að Verkamannabústaðir
fái lóðir undir 200 íbúðir og ef að líkum
lætur verða það fjölbýlishúsaíbúðir. Þá
eru eftir 78 fjölbýlishúsaíbúðir til úthlut-
unar á almennum markaði. Eiga þær að
fullnægja þörfum þeirra stóru árganga af
ungu fólki sem nú eru að stofna heimili í
fyrsta sinn?
Hefðbundin, strjál og mannsnauð byggð
Norðan Grafarvogs er nú verið að skipuleggja nýja
hyggð sem verður framtíðarheimkynni 5-7000 Reykvík-
inga. Skipulagsvinnunni viö 1. áfanga byggðarinnar er
þegar lokið en á því svæöi rúmast 870 íbúðir (svæöið er
merkt A á yfirlitskortinu, svæði merkt B eru enn óskipu-
lögð), eða um helmingur þeirra íbúða sent ráðgerðar eru
á svæðinu í heild. Að þessari skipulagsvinnu lokinni þarf
enginn að fara í grafgötur unt það lengur hvernig heim-
kynni meirihluti borgarstjórnar vill búa fjölskyldum
framtíðarinnar. Okkar bíða svefnhæir sent hvitgja dag-
lega tilveru sína á konum og krökkum en karlarnir bevt-
ast á einkahílum um langan veg til að vinna fyrir salti í
grautinn.
Akveðnir tekjuhópar ráðandi
Það var fyrir löngu oröið Ijóst hvert stefndi með byggð-
ina í Grafarvoginum. Það var í fyrsta lagi deginum Ijósara
að svæðið var þannig í sveit sett að þar yrði að rísa upp ný
útborg frá grunni. En útborgir geta verið margvíslegar.
Þær geta verið iðandi al' mannlíli og sjálfum sér nógar um
sem flesta hluti en þær geta líka veriö lífvana svefnbæir,
— allt ræðst þetta af vilja þeirra sem með völdin fara. Vilji
nteirihluta borgarstjórnar var kunngerður þann 15. júlí
s.l. þegar forsögn aö skipulagi byggðarinnar var sam-
þykkt, en í forsögn er stefnan ntótuð unt það hvernig
byggö eigi að líta út. Þar er sagt til um hvert eigi að vera
hlutfall einstakra húsagerða á svæðinu. mörkuð stefnan
fyrir gatnakerfið, stærð gerð og lögun lóða o.s.frv.
I forsögninni fyrir Grafarvoginn var kveðið á um að
55% byggðarinnar ætti að vera einbýlishús, 30% raðhús
°g 15% íbúðir í fjölbýlishúsum. Einbýlishúsalóðirnar
áttu að meðaltali aö vera um 700 m2 og í laginu eins og
frímerki þ.e. mjóar en djúpar svo að sent llest hús kæmust
tyrir við hverja götu. Þcssi stefnumörkun borgarstjórnar
ttm íbúðasamsetningu á svæðinu og stærð og lögun lóða
skiptir sköpum fyrir byggðina í Grafarvoginum. Meö
bana að leiðarljósi er varla hægt að skipuleggja annað
en hefðbundna, strjála og mannsnauða bvi’itð þar sem
ákveöín fjölskyldugerð og tekjuhópar eru ráðandi. Eöa
hverjir byggja stór einbýlishús og raðhús? Það eru a.m.k.
ekki hinir stóru árgangar af ungu fólki sent nú eru að
stofna heimili í fyrsta sinn með vísitölutryggð lán á bak-
rnu. Fram til þessa heíur það verið fólk sem er að nálgast
miðjan aldur og hefur komist vel í álnir.
Börnin á vit bílanna
Et litið er á byggðina norðan Grafarvogs sem heild þá
lítur hún einhvern veginn svona út: Á 144 ha landssvæöi
sent teygir sig frá Keldum að Gufuneshöfða og nær frá
Ijöru til kirkjugarðs, gefur að líta langar raðir af einbýlis-
húsum og raðhúsum sem nær öll eru staðsett á sama stað
hvert á sinni lóð. Húsagöturnar eru botnlangar sem liggja
út frá safngötum en safngöturnar liggja allar að tveimur
hraðbrautum sem eru samgönguæðar íbúðar- og iðnaðar-
svæðanna. Höfðabakkavegurinn, — sú hraðbrautin sem
liggur beinast við fyrir alla sem frá „Reykjavík" koma
sem og hina sem þangað hafa eitthvað að sækja, — klýfur
íbúðabvggðina í tvö siálfstæð en rnjög misstór hverfi. Það
hverfi sem liggur vestan hraðbrautar er eitt sér ekki nógu
stórt til að mynda sjálfstætt skólahverfi svo fólki sem þar
býr er nauðugur sá kostur að senda börn sín í skóla vfir
eða undir untferðabunga hraðbraut, Auðvitað er hægt að
staðsetja skólann vestan hraöbrautar en þaö leysir ekki
vandamál barnafólks, því þá er það þeirra sem búa austan
hraðbrautar að senda börnin sín á vit bílanna. Þegar frant
líöa stundir má gera ráð fyrir að urnferð um þessa hrað-
braut verði í líkingu við þá umferð sem daglega fer um
Breiðholtsbrautina og hver vill að hún verði á vegi barns-
ins síns á leið til skóla. Kvennaframboðið hefur gert til-
raun til að fá cinhverjar breytingar á Höfðabakkavegin-
um og lagði til í byrjun október að skipulagshöfundum
yrði falið að kanna hvort ekki mætti leggja hann þannig
að hann sliti ekki í sundur skólahverfi. Þetta hefur ekki
verið gert og ef að líkum lætur þá hefur atl auranna orðjð
lífi oit limum barna okkar vfirsterkari. Okkur er fullljóst
að liver hlykkur á hraðbraut kostar djúgan skilding en
fjárfesting í góðu og öruggu umhverfi skilar líka af sér
ómældum arði, þó ekki verði hann allur mældur í aurum.
19 fí