Vera - 01.04.1983, Blaðsíða 23
JABÚSTAÐIR
a) Leigjendur Reykjavíkurborgar en reglan er sú að þeir
fái um 10% þeirra íbúða sem úthlutað er hverju sinni.
b) Fólk sem þegar býr í verkamannabústööum en sækir
um stækkun eöa flutning, í stöku tilfelli að fá að minnka
við sig.
c) Þeir sent eiga íbúðir á almennum markaöi en sækja um
hjá Vb. vegna skilnaðar, fjárhagsörðugleika eða vegna
þess að húsnæðið er lélegt.
Til að gefa untsækjendunum kost á að tala við stjórn
Vb. fyrir úthlutun voru auglýstir fastir viðtalstímar í janú-
armánuði. Til gamans má geta þess að fulltrúi Kvenna-
framboðsins í stjórninni talaöi við unt 60 manns í þessunt
viðtalstímum.
Aætlað er að úthlutunarvinnu Ijúki urn miðjan apríl ef
allt gengur að óskum.
Hverjir hafa rétt til íbúðakaupa hjá Vb.
Rétt til kaupa á verkamannabústöðum í Reykjavík
hafa þeir einir sem fullnægja eftirfarandi skilyrðum:
1 • Eiga lögheimili í Reykjavík.
2- Eiga ekki íbúð fyrireða samsvarandi eign í öðru formi.
3. Fara ekki yfir ákveðið tekjumark. Meðaltekjur (nettö-
tekjur íbúðakaupanda) miðað við árin 1979, 1980 og
1981 niega ekki lara fram úr kr. 91.500 að viðbættum kr.
8-100 fyrir hvert barn innan 15 ára aldurs á framfæri.
Heimilt er að víkja frá þessum reglum í sérstökum tilfell-
um sbr. 47. gr. laga nr. 51/1980. Þeir sem búa við eríið-
ustu húsnæðisaðstöðu hafa forgang að íbúöum í verka-
mannabústöðum.
íbúðaverð
Meðalverð endursöluíbúða í nóvember 1982 var sem
hér segir:
eins herbergis kr. 350.000
tveggja herbergja kr. 520.000
þriggja herbergja kr. 670.000
fjögurra herbergja kr. 800.000.
Greiðslur
Umsækjandi, sem fær úthlutað íbúð. þarf að greiða út
20% af verði hennar. Greiða skal 10% af áætluðu verði
íbúðarinnar innan 8 vikna frá dagsetningu tilkynningar
um úthlutun en eftirstöðvarnar áður en íbúðin er afhent.
Byggingarsjóður verkamanna lánar 80% af verði end-
ursöluíbúða í verkamannabústöðum. Lánið er veitt til 42
ára með 0,5% ársvöxtum og greiðist nteð jöfnum árs-
fjórðungslegum greiðslum vaxta og afborgana að við-
bættum verðbótum samkvæmt lánskjaravísitölu. Lániö
skal tryggt með 1. veðrétti í hlutaðeigandi íbúð.
7. mars 1983
Guðlaug Magnúsdóttir