Vera - 01.09.1984, Page 4
VARAVINNUAFL OG UPPBÓTARLAUN
— við unum þessu ekki lengur! —
Á því eina og hálfa árí sem núverandi ríkisstjórn hefur setið
við völd hafa kjör launafólks í landinu farið hríðversnandi og
kjaraskerðingin numið allt að 35%. Þetta er staðreynd sem er
hrikaleg í Ijósi þess að afkoma allflestra atvinnugreina hefur
sjaldan verið betrí, atvinnurekendur mala gull á meðan launa-
fólk hangir í horriminni. Öfgasinnuð hœgri öfl innan stjórnar-
flokkanna hafa í skjóli verkfaUsbanna og hálf-fasískra stjórnar-
aðgerða framkvœmt umfangsmestu tekjutilfærslu i landinu í
seinni tíð; skattbyrði hefur verið létt af fyrirtœkjum en aukin á
einstaklingum; dregið hefur verið úr samneyslu; verð á nauð-
synjavörum hefur hœkkað og fleira og fleira. Þá hefur verið op-
inber stefna ríkisstjórnarinnar að gera Island að einu mesta lág-
launalandi Vestur-Evrópu. Þetta er í hrópandi ósamræmi við þá
staðreynd að þjóðartekjur á rnann á Islandi eru með þeim hœstu
sem gerast á sama svœði. Ef Island er boríð saman við hin Norð-
urlöndin, sem eru með um það bil 10—15% hœrriþjóðartekjur
á mann en við, kemur í Ijós að þar eru borguð um 100% hærri
laun.Auk þess er vinnutími okkar mun lengri en gengur og gerist
víðast hvar annars staðar. í þriðja lagi þá verjum við einungis
15 % af þjóðartekjum til velferðar- og félagsmála á meðan þjóðir
eins og t.d. Svíar og meira að segja Hretar verja 30% þjóðartekna
til sömu mála.
Launamunur kynjanna fer vaxandi
Láglaunastefna stjórnvalda kemur þó harðast niður á konutn.
Atvinnuþátttaka kvenna hefur aukist mjög á síðustu árum og er
nú orðin um 80%. Konur á vinnumarkaðinum fylla lœgstu
launaflokkana. Launamismunur karla og kvenna er verulegur
og fer vaxandi; 1980 var launamismunurinn 49% en 1982 var
hann orðinn 52%. Hœstu meðallaun kvenna eru sambœrileg við
meðaUaun karía á aldrinum 15—19 ára og ókvœntra karla á
aldrinum 65—69 ára. Það er því Ijóst að vinnuframlag kvenna
er lœgra metið en vinnuframlag karla. Enn er litið á karlmenn
sem fyrirvinnu heimilanna en laun kvenna sem uppbótarlaun.
Þetta er þó í ósamræmi við þá staðreynd að nú geta fœstar fjöl-
skyldur framfleytt sér á launum einnar fyrirvinnu. Einstœðum
konum fer þó fjölgandi og eru oft einu fyrirvinnur fjölskyldna.
Þeim er œtlað að J'ramfleyta sér og sínum á uppbótartekjunum
einum saman.
Þau viðhorf að karlmaðurinn séfyrirvinna heimilisins en kon-
an fyrst og fremst heimavinnandi húsmóðir og eiginkona, lciðir
af sér að vinnuafl k venna er notað sem varaskeifa. 1 samrœmi við
það er konum fyrst sagt upp störfum þegar illa árar, á þeim for-
sendum að hlutverk þeirra sé fyrst og fremst húsmóðurhlutverk-
ið, en á þensluskeiðum aftur á móti eru þær hrifsaðar út af
heimilunum á vinnumarkaðinn sem ódýrt vinnuafl. Þessi staða
œtti að vera okkur konurn hvatning til harðrar baráttu því að
efnalegt sjálfstœði er ein meginforsendan fyrir því að árangur
náist í baráttunni gegn kúgun kvenna.
Það ríkir mikil vanvirðing á störfum kvenna jafnt innan sem
utan heimilisins. Það er sorglegt að um leið og konur hafa haslað
sér völl I einhverri starfsstétt skuli sú stétt samstundis verða lág-
launastétt og starfið óæðra.
Geta þeir virkilega ekki samið betur?
„Verðbólgan getur farið írass. .
Hér á eftir fara viðtöl við konur úr 6 verkalýðsfélögum sem öll
eiga það sameiginlegt að konur eru í meiri hluta. Hins vegar er
hlutfall kvenna í stjórnum og samninganefndum þessara félaga
í öfugu hlutfalli við félagatölu þeirra og sömuleiðis eru meðal-
laun kvenna í þessum félögum lægri en meðallaun karla.
Viðmœlendur okkar, sem eru á ýmsum aldri og búa við mis-
munandi heimilisaðstœður, eru allar sammála um það að efna-
hagsleg afkoma þeirra hafi stórlega versnað á allra síðustu árum.
Kjörin eru orðin svo slœm að launin duga ekki einu sinni til lág-
marksframfœrslu. Það kemur fram að ein helsta réttlœting ríkis-
stjórnarinnar og atvinnurekenda fyrir kjaraskerðingunni —
minnkun verðbólgunnar — hefur ekki haft í för með sér batn-
andi lífskjör. Vinnuálag er mikið, sérstaklega í bónusvinnu, þar
er vinnuslit orðið mjög áberandi og fœstar konur geta unnið
fulla vinnuviku vegna atvinnusjúkdóma s.s. vöðvabólgu. Þær
eru sammála um að almenn reiði ríki nú tneðal launafólks og að
þolinmœði þess sé senn á þrotum.
Óánœgja kvenna með kjörin og máttvana karístýrða verka-
lýðsforystu endurspeglast I því að þœr hafa fylkt sér satnan og
stofnað með sér Satntök kvettna á vinnumarkaðittum. Þar hefur
því skapast nýr grundvöllur til að berjast fyrir bættum kjörum
k venna og vekja konur til umhugsunar utn stöðu sína. Við konur
verðum að hœtta að líta á okkur sem varavinnuafl tneð uppbót-
arlaun og krefjast þess að vinnuframlag okkar verði metið til
jafns við karía. Ríkjandi ástandi verður ekki breytt nema með
sameiginlegu átaki okkar allra. Við verðum að taka baráttuna í
okkar hendur. Við verðum að hafa þau völd í samningum sem
eru í réttu hlutfalli við fjölda okkar í hagsmunahreyfingutn
launafólks. Við hljótum að berjast fyrir öflugri verkalýðshreyf-
ingu og gegn kvenfjandsamlegri láglauna- og öfgastefnu ríkis-
stjórnar atvinnurekenda.
AÓ/KÓ/Mrún