Vera - 01.09.1984, Blaðsíða 34

Vera - 01.09.1984, Blaðsíða 34
Núgildandi ákvæði um fæðingar- orlof eru frá 1980 og er þau að finna í 16. gr. laga um almannatryggingar. Þar segir í upphafi greinarinnar að rétt til fæðingarorlofs eigi allir for- eldrar, sem lögheimili eiga á íslandi. Málið er nú ekki svona einfalt, því í lagagreininni og reglugerð sem henni fylgja eru ýmis sér ákvæði. Upphæðir sem greiddar eru vegna fæðingarorlofs eru misháar og mið- ast við unnar launavinnustundir á árinu á undan fæðingunni. — Þær konur sem vinna hjá ríki, sveitar- félögum og bönkum og eiga rétt á 3ja mán- aöa fæðingarleyfi á launum eiga ekki rétt á fæöingarorlofi samkvæmt þessum lög- um. — Fæðingarorlofið er fyrst og fremst tengt móður, en þó gera lögin ráð fyrir að faðir geti fengið fæðingarorlofsgreiðslur síðasta orlofsmánuðinn, liggi fyrir skriflegt samþykki móður fyrir því. Faðir á þá rétt á eins mánaðar launalausu leyfi frá sínu starfi og fær í staðinn fæðingarorlofs- greiöslur í samræmi við unnar vinnustund- ir árið áður. Mjög fáir feður hafa notað þennan rétt enda þýðir hann í langflestum tilvikum launaskerðingu fvrir þá. — Aðalreglan er að fæðingarorlof greið- ist í 3 mánuði. Þó eru á þessu undantekn- ingar. Þær eru helstar: — Fæðingarorlof greiðist í 4 mánuði ef móður er nauðsynlegt af heilsufars- eða öryggisástæðum að leggja niður öll störf mánuði fyrir fæðingu barns. Tryggingayf- irlæknir veröur þó að meta hvort lengja megi orlofið í slíkum tilvikum. — Fæðingarorlof er 4 mánuðir sé um tviburafæðingu að ræða og hið sama gildir ef um alvarlegan sjúkleika nýbura er að ræða, sem krefst mikillar umönnunar for- eldris. Læknisvottorð og samþykkt Trygg- ingarráðs verður þó að koma til þegar meta á sjúkleika barns. — Fæðingarorlof er 5 mánuðir þegar um þríburafæðingu er að ræða og einn mánuður að auki ef fleiri börn fæðast en þrjú. Þetta er nýtt ákvæði og gildir um allar fæðingar frá 1. 1. 1983. — Ættleiðingarforeldri, fóstur- og uþp- eldisforeldri sem tekur barn 5 ára og yngra á rétt á 2ja mánaða fæðingarorlofs- greiðslu. — Fari barn í fóstur eða sé ættleitt falla fæðingarorlofsgreiðslur niður frá þeim degi er slíku er komið á. í þeim tilvikum svo og ef barn fæðist andvana er þó aldrei greitt fæðingarorlof skemur en í einn mán- uð. Reglur um fæðingarorlofsgreiðslur Greiðslur á fæðingarorlofi eru mismun- andi og miðast við fjölda vinnustunda í launuðu starfi: Fullar orlofsgreiðslur fá þeir sem hafa unnið 1032 dagvinnustundir eða fleiri á síðustu 12 mánuðum fyrir fæðingu. Tvo þriðju af orlofsgreiðslu fá þeir sem unnið hafa 516—1031 dagvinnustund síð- ustu 12 mánuði fyrir fæðingu. Þeir sem stundað hafa nám að aðalstarfi í a.m.k. 3 mánuði á síðastliðnum 12 mánuðum fyrir töku fæðingarorlofs eiga rétt á þessu hlut- falli fæðingarorlofs. Einn þriðja af orlofsgreiðslu fá þeir sem unnið hafa færri en 516 dagvinnu- stundir í launavinnu svo og þeir sem eru utan vinnumarkaðsins, en það eru i flest- um tilvikum húsmæður. Full upphæð fæðingarorlofsgreiðslu er í dag kr. 15.712 á mánuði. Rétt er að vekja athygli húsmæðra í sveit á því að atvinnuþátttaka þeirra mið- ast við hlut þeirra í útreikningi á grundvelli vísitölubúsins á hverjum tíma. Sérstakt ákvæði gildir einnig um vinnu- framlag dagmæðra. — Gæsla eins barns í 12 mánuði jafngildir 516 vinnustundum eða fjórðungi úr fullu starfi. Skráð atvinnuleysi hjá vinnumiðlun er jafngilt atvinnuþátttöku. Sama gildir ef for- eldri hefur þurft að vera frá vinnu vegna veikinda undanfarna 12 mánuöi og átt rétt á sjúkra- eða slysadagpeningum á tímabil- inu. Umsóknir um fæöingarorlof Sótt er um fæðingarorlof á sérstökum eyðublöðum og sótt er til Tryggingastofn- unar ríkisins ef lögheimili umsækjanda er í Reykjavík. Sé lögheimili utan höfuðborg- arinnar er sótt um hjá sýslumönnum eða bæjarfógetum. Umsóknareyðublöð eru hjá sömu aðilum. Með umsóknareyðublaðinu verður að fylgja vottorð launagreiðanda, þar sem staðfestur er fjöldi vinnustunda, svo og vottorð um slysa-, sjúkra- eða atvinnuleys- isbætur sé slíku til að dreifa. Þeir sem eru með sjálfstæðan atvinnu- rekstur verða að leggja fram skattframtal. Nemendur verða að leggja frarri sönnun um námstíma. Vert er að undirstrika að ekki er leyfilegt að segja upp barnshafandi konu eða konu í fæðingarorlofi ,,nema gildar og knýjandi ástæður séu fyrir hendi eins og segir i lög- unum um fæðingarorlof. Að lokum vil ég nefna að á síðasta Al- þingi lögðu þingmenn Kvennalista fram frumvarp um lengingu fæðingarorlofs í 6 mánuði. Frumvarpið er óafgreitt. Guðrún Jónsdóttir. HERRA NÆRBUXUR Ten cate karlmannanærbuxurnar eru úr 97% bómull og 3% teygju. tvíofnar, litekta, þola suðu. og eru alltaf eins. Margar gerðir og litir. 37% gerviefni 3% teygja. TENCATE SOKKABUXUR OG SOKKAR Magnþora Magnusdottir sf. heildverzlun Brautarholti 16. simi 24460 34

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.