Vera - 01.09.1984, Side 22
Hagrœðing á kostnað kvenna
Á síðasta fundi borgarstjórnar fyrir sumar-
leyfi var m.a. afgreitt mál sem snertir hagræð-
ingu á störfum Sóknarkvenna á Borgarspítal-
anum.
Þetta mál á sér all langa forsögu eða frá því
í nóvember s.l. þá var sagt frá því í útvarpi að
breytt fyrirkomulag hefði verið tekið upp við
ræstingar á Grensásdeild.
Þessi frétt kom mér mjög á óvart því hvergi í
nefndakerfi borgarinnar hafði verið samþykkt
að taka upp slíka hagræðingu.
Viö, borgarfulltrúar Kvennaframboös, tókum þetta
mál þá til umræöu utan dagskrár á fundi borgarstjórnar,
mótmæltum málsmeöferö og því aö hefja sparnað í
rekstri spítalans meö því aö hagræöa störfum lægst
launaða starfshópsins þar.
Þá þegar og æ síöan höfum viö haft góöa samvinnu
við Sókn um þetta mál, en formaður Sóknar hefur ítrek-
aö mótmælt þeirri aöför sem hafin var með þessum
breytingum á hendur Sóknarkvenna og yfirmenn og
stjórnendur spítalans stóöu fyrir.
Ekki dugöu þessi mótmæli okkar í borgarstjórn þá til
þess að neitt gerðist í málinu. Hagræöingin hélt áfram
og nú í maí haföi henni einnig verið komið á á legudeild-
um Borgarspítalans. Jafnframt lá þá fyrir að yfirmenn
sóttu um heimild til aö segja upp þeim 30 Sóknarkonum
sem þessar breytingar náðu ekki þegar til, en þær þrífa
m.a. slysadeild og skrifstofuhúsnæöi spítalans. Þessi
síöasti liöur hagræöingarinnartekurgildi 1. október n.k.
Nú eins og í fyrri áföngum hagræðingarinnar er byrj-
aö á að segja konunum upp, en þeim jafnframt lofað
óskertri vinnu eftir skipulagsbreytingarnar.
Ljósmynd Þjóðviljinn
Launin lækka
En hvað hafa þessar breytingar þýtt fyrir Sóknarkon-
urnar á Borgarspítalanum?
1. Vinnuálag hefur aukist verulega.
2. Stöðugildumhefurnúþegarfækkaðum 17.5,ogeru
þar meö aö engu orðin loforö um óskerta vinnu.
3. Kaup kvennanna hefur lækkaö verulega eöa allt upp
í 6000 kr. á mánuöi þar sem vaktaálag er nánast af-
numið. Þess eru líka dæmi að kaup kvenna hafi
lækkað, þó þær hafi aukið vinnu sína.
4. Þráttfyrir loforö um óskerta vinnu hafa konur ekki átt
annars úrkosta en aö taka viö skertu starfi.
Þetta eru alvarlegir hlutir og hér sýna stjórnendur í
verki hug sinn til láglaunakvenna — því ekki er þaö
sparnaður í rekstri sem fyrst og fremst vakir fyrir þeim
meö þessum aðgeröum. Þaö sem áætlað er að sparist
eru 283 þús. kr. á mán. af 57.5 millj. kr. rekstrarkostnaði
ámánuði. Ef hérværi raunverulegaveriö að leitasparn-
aöarleiða heföi meirihlutinn átt að byrja þar sem feitari
gölt var aö flá.
Á síðasta borgarstjórnarfundi fluttum við þá tillögu í
þessu máli aö settur yrði á fót hópur sem Sóknarkonur
ættu fulltrúa í og væri verkefni hópsins að endurskoða
þetta hagræöingarfyrirkomulag. Jafnframt að fallið yröi
frá frekari hagræðingaráformum á starfssviði Sóknar-
kvenna á spítalanum.
Biðstaða — samstaða
Þessa tillögu felldi meirihlutinn, en borgarstjóri lýsti
því þó yfir aö fyrir hans tilstilli heföu yfirmenn spítalans
fengið fyrirmæli um aö lagfæra mestu ágalla þessa fyr-
irkomulags í samráöi viö konurnar sem vinna verkin.
Það veröur aö teljast nokkur ávinningur í þessu máli, þó
ekki geti þaö talist neinn sigur né heldur hefur þaö áhrif
á tekjutap einstakra kvenna.
Ég lít svo á aö málið sé raunar í biöstööu enn eða þar
til í haust þegar loka áfangi hagræöingarinnar á aö taka
gildi. Þá reynir aftur á samstööu Sóknarkvenna og ann-
arra kvennastétta á spítalanum.
Guörún Jónsdóttir.
22