Vera - 01.09.1984, Síða 37

Vera - 01.09.1984, Síða 37
um mentholsígarettuauglýsingar!) í slíkri auglýsingu er neytandanum beinlinis gert að tengja saman annars vegar hollustu tæra vatnsins og nikotínsins hins vegar. í raunveruleikanum eru slík tengsl auðvitað alls ekki til og því ekki hægt að endur- spegla þau á einn eða annan hátt. Máttur þessarar auglýsingar felst í því aö fá fólk til að búa til alveg ný hugmyndatengsl, aug- lýsingin skapar þau. Á sama hátt mætti segja að ferðaskrifstofa, sem vekur athygli á tilboöum sínum meö berum stúlkum (eöa lopapeysuklæddum stúlkum!) skapar hugmyndatengsl milli fyrirheitna staöarins (t-d. ísland) og þeirrar imyndar, sem nakin kvenlíkami vekur i huganum. Væru þau tengsl „endurspeglun” raunveruleika? Tæpast, — nema e.t.v. fyrirheitni staður- inn í auglýsingunni sé t.d. St. Pauli! Enn eitt dæmi um „sköpunarverk” af þessu tagi er auglýsing frá Loveable brjóstahaldarafyrirtækinu. (Sjá mynd) Þessi er ein margra í röö auglýsinga í samadúrnum; allarsýndu þærstóramynd af konu viö starf eöa iðju, sem alla jafna er tengd körlum og svo litla mynd af konunni táklæddri svo brjóstahaldarinn blasti viö. Sami texti fylgdi öllum: ,,lnnst inni eru þær allar elskuveröar.” (Underneath they are all Loveable.) Um þá auglýsingu, sem hér fylgir, skrifaði Rosalind Coward, enskur femínisti: ,,Konan er ein á gangi um nótt. i staö hins bjóöandi augnatillits, sem ein- kennir svipmót kvenna í auglýsingum, horfir þessi kona beint og ákveöin í linsu myndavélarinnar. Viö skoöum myndina. Hvað er konan aö gera? Jú auðvitað, þaö ar einhver aö elta hana, gefa henni undir fótinn (myndavélin = áhorfandinn)og hún er aö segja nei. En, biðum viö, innst inni eru þær allar elskuveröar, tilleiöanlegar, — innst inni vill hún þaö sem hendir konur, sem eru einar á ferli um nótt. . . þessi aug- lýsing er boðskort á nauðgun.” Coward leggur þessa auglýsingu aö jöfnu viö klám. (Hún og fleiri hafa vakið athygli á því hversu ámóta svipmót kvenna í auglýsing- um og i klámmyndum oft er: augun horfa beint í augu neytandans, ögrandi og bjóð- andi í senn, munnurinn er hálf opinn, and- litið er ofurlítið undirleitt, þaö skín í tenn- urnar. . .) Loveable auglýsingin skapar þessi tengsl sem ekki eru fyrir hendi í raun- veruleikanum, því „auglýsingar leika sér aðoröum og hugmyndum en endurspegla Þser sjaldnast, heldur skapa nýjar með því að skipta um samhengi.” Ég er reyndar þeirrar skoðunar að það skipti litlu máli hvort auglýsingar skapi eða endurspegli; endurspegli þær nokkuð, þá eru þaö viöhorf, sem kvenfrelsisbaráttan er að reyna aö umbreyta og hún þarf aö beita sér á öllum þeim sviöum, sem þau viðhorf birtast á, séu það auglýsingar eða annaö. En umfjöllun ensku kvennanna, sem hér var vitnaö i, er fjári fróöleg allt um Það og hefur opnað augu mín upp á gátt fyrir nánum skyldleika klámiönaðarins og Þeim máta, sem auglýsingar nota sér líkama kvenna. Þetta er bara spurning um 9ráöu eins og þar stendur. Líka fyrir konur? Eftirmáli Nú kann einhver að benda á þá staö- reynd, aö fyrrumgetin brjóstahaldaraaug- lýsing sé fyrir konur og aö svo sé um marg- ar þær auglýsingar, sem við myndum dæma kvenfjandsamlegar. Sexý kona horfir beint og bjóöandi í augu kven-neyt- andans. . . erveriðaðýtaundireinhverjar duldar fantasíur kvenna um aðrar konur? Það er óneitanlega dálítiö forvitnileg stað- reynd hversu margar þeirra auglýsinga, sem t.d. birtast i tískublööum eru af því taginu, sem a.m.k. Rosalind Coward og jafnvel fleiri myndu flokka undir klám. En sú skýring, sem talin er einna líklegust er sú, að auglýsingahönnuðir hiröi litið um aö greina á milli karl- og kven-neytenda þar eö bæöi kynin horfi sömu augum á konur hvort eö er. Þ.e., í okkar samfélagi alast konur upp í þeim lærdómi aö vænlegast sé að skoða sjálfar sig og meta á vogarskál- um karlmanna. ,,Allt frá bernsku lærir kon- anaðveraundirsmásjánni. . .vegnaþess að útlit hennar i augum karla skiptir höfuð- máli i því hvernig henni muni vegna i líf- inu.” Takmarkiðerað veröa hin fullkomna sjón — aö mati karla — og konunni lærist að nota þeirra mælistiku, aö horfa á sig og aðrar konur í gegn um gleraugu karlkyns- ins. Auglýsingar bjóða upp á valdafantasi- ur; karlinum er boðið aö gæla viö hug- myndina um völd og yfirráö yfir konunni — konunni hins vegar, er boöiö aö gæla viö annars konar völd; völd yfir útliti sínu! Að- eins svo fremi konan hafi fullkomiö vald yf- ir húöinni, hárinu, vörunum, vextinum, getur hún oröiö hin fullkomna sjón. Hiö fullkomna augnayndi! Varan, sem verið er aö auglýsa hverju sinni gæti fært henni þetta vald. Til þess aö vera fær um aö meta ,,ásýndar-gæði” sjálfrar sín, verður konan aö sjá sig meö augum karla og þess vegna er enginn munur á auglýsingunum þótt þær eigi að höfða til kven-kaupenda! í auglýsingunum er líkami okkar verk aö vinna, ævilangt streö við aö halda honum grönnum, hárlausum, mjúkum, litríkum, bjóöandi, ögrandi, lostafullum, reiöubún- um. Þeim mun fjær raunveruleikanum, sem fyrirsætan viröist, þeim mun þrotlaus- ari og keppnisfyllri veröur barátta okkar eftir hinu eina rétta útliti — aö mati karl- peningsins. Og guð hjálpi okkur ef okkur tekst það ekki, því hver annar mun gera það? m Efni þessara tveggja greina er að lang mestu leyti soðiö saman upp úr erlendu efni og ber þar helst að geta tveggja bóka: „Frauenfeindliche Werbung” i samantekt Christiane Schmerl (Elefanten Press, 1981) og „Pictures of Women” eftir Jane Root (Pandora, 1984). Sú bók er byggö á sjónvarpsþáttaröð, sem sýnd var í Bret- landi í vetur. Báöum bókum fylgja langir bókalistar því efniö er nær ótæmandi og þeim, sem hafa áhuga, er bent á aö hafa samband. Vonandi bera greinarnar þess ekki of Ijós merki aö vera samsuða frá út- löndum og vonandi verða þær til þess aö fleiri taki sér stööu á varðbergi. Ms ‘Alþjóðlegar siöareglur um auglýsinga- starfsemi. Endurskoðuö þýöing 1978. Tvær þessara Ijósmynda eru úr klámblöðum, þrjár úr auglýsingum. Benl hefur verið á að svipmót kvenn- anna i auglýsingum og á klámmyndum er oft keimlikt: augun horfa beint i augu neytandans með bjóðandi glampa, varirnar eru hálfopnar svo jafnvel skín i tenn- itrnar. . .

x

Vera

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.