Vera - 01.09.1984, Blaðsíða 38
)
Jóhanna Kristín Yngvadóttir er
þrjátíu ára gömul myndlistarkona
sem talsverða athygli hefur vakið að
undanförnu. Hún er alin upp í Blesu-
grófinni og býr þar nú eftir að hafa
numið í 4 ár í Hollandi. Eitt kvöldið
fór ég þangað til að sjá myndirnar
hennar og tala við hana fyrir Veru.
Ég kom í lokin á heilmiklu afmælis-
boöi. Dóttirin Björg var sjö ára og í
vinnustofu málarans var langborð
með veitingum og blöðrur út um
allt. Eiginmaður Jóhönnu, ívar Val-
garðsson, er líka myndlistarmaður
og hefur aðstöðu heima til að teikna
og þess háttar en skúlptúrana sína
skapar hann í vinnustofu sem hann
hefur uppi á Korpúlfsstöðum.
Jóhanna ertu til í aö tala um myndirn-
ar sem þú ert að mála?
Ég tala helst ekki um myndirnar mínar
viö einn eöa neinn. Stundum spyr ég ívar
hvaö honum finnist um þessa eöa hina
myndina og þá segir hann þaö sem honum
finnst. Ef honum fellur ekki einhver mynd
þá nær það ekki lengra. Ég breyti ekki
mynd þess vegna. Og hann er sá eini sem
ég spyr.
Hvað ertu búin að mála lengi? í tíu ár?
Tíu? Nei í tvö! Ég kalla það ekki að mála
að vera í skóla. Ég læröi ekki aö mála í
skóla, ég læröi bara að lifa á þeim árum.
Ég vil ekki sýna skólaverkin mín. Aöeins
þau verk sem ég hef unnið óháö öllu, ein
og óstudd. Þannig er ég ekki búin aö mála
nema í tvö ár.
Áttu þér einhverja uppáhaldsmálara?
Nei. Ég hrífst ekki svo auðveldlega. Til
dæmis átti ég mér ekki átrúnaðargoð sem
unglingur.
Ég sé að þú ert bæði með litlar og
stórar myndir. Málar þú þær litlu sem
skissurtil að útfæra í stóru myndunum?
Þær litlu eru sjálfstæðar myndir sem
koma þeim stóru ekkert frekar viö. Mér
finnst gaman aö mála á mismunandi stóra
fleti.
Ljósmyndir: Svala Sigurleifsdótlir
Um hvað fjalla myndirnar þínar?
Þær eru einkamál á striga segir Aöal- i
steinn Ingólfsson og ég held aö þaö sé rétt
hjá honum.
Og þú vilt auðvitað ekki ræða þín
einkarnál í blöðunum?
Nei, alls ekki.
Svala Sigurleifsdóttir
38