Vera - 01.09.1984, Page 40
Gifting eina útgönguleiðin
Óþarft er því aö taka fram hve mikið innlegg þessi starfsemi
er til bættari atvinnumöguleika kvenna sérstaklega þegar tek-
iö er tillit til þessara aöstæöna.
Annaö sem vert er aö benda á í þessu sambandi er að þegar
svo til engir atvinnumöguleikar er fyrir hendi fara þær konur
sem tækifæri hafa þ.e. úr hástéttarfjölskyldum frekartil náms
sem er jú jákvæöur þáttur svolangt sem þaö nær, því atvinnu-
möguleikar kvenna í ,,efri” stööur þjóöfélagsins eru sáralitlar,
og þar aö auki eykur þetta misrétti stétta til náms enn á stétta-
skiptinguna.
Bein afleiöing af þessu er aö konur þarna giftast mjög ungar
þar sem þaö er þeirra eina útgönguleiö úr foreldrahúsi.
Þessi stutta samantekt er þó merki um þaö aö þótt barátta
kvenna í þessu landi sé aö mörgu leyti mjög frábrugðin baráttu
kvenna á Islandi eöa í Norður-Evrópu ÞÁ ER HÚN HÁÐ.
Og aö samtök eins og COF í Límon (sem valin eru v/eigin
þekkingar) eru spor í rétta átt og sem vonandi mun standast
alla þá erfiöleika og breytingar sem fylgja því aö vera starfandi
í 3ja heims landi þar sem breytingar eru jafnörar og árstíða-
skiptin hjá okkur.
Ég vona aö ég tali fyrir hönd íslenskra kvenna almennt þeg-
ar ég óska þeim og öllum kynsystrum okkar í Costa Rica alls
hins besta.
Hólmfríður Garðarsdóttir.
1
J
»