Vera - 01.04.1990, Side 2
TÍIVIARIT UIVI KONUR OO KVENFRELSI
2/1990 — 9. árg.
VERA Laugavegi 17
101 Reykjavík
Útgefendur:
Samtök um Kvennalista og
Kvennaframboö í Reykjavík.
Sími: 22188
Senn líður að lokum 20. aldarinnar. Eftir lifir einn áratugur. Þessi öld hefur verið prófsteinn á stór
hugmyndakerfi — þau hafa verið borin fram af fjöldahreyfingum og risið hátt en fall þeirra hefur líka
verið mikið. Eitt er þó það hugmyndakerfi og sú fjöldahreyfing sem hefur verið stöðugt að verki og
haft talsverð áhrif án þess að nokkur valdsmaður nokkurs staðar á jarðarkringlunni hafi gert hug-
myndakerfið að sínu eða notið stuðnings hreyfingarinnar til valda. Þetta er feminisminn og kvenna-
hreyfingin. Konur hafa ekki haft samfélagsleg völd en þær hafa samt ýmsu breytt. Þær hafa verið eins
og dropinn sem holar steininn — ekki vegna þess að hann falli svo þungt heldur svo oft.
20. öldin hefur skilað konum lagalegum og formlegum réttindum á við karla en verr hefur gengið
að breyta stöðluðum hugmyndum um hlutverk og hegðun kynjanna. Enn er viðblasandi að þar sem
valdið er eru konur ekki og þar sem konur eru er valdið ekki. Það má jafnvel leiða að því rök að fjölgun
kvenna á þjóðþingum færi þær lítið nær valdinu því það sé í æ ríkari mæli að flytjast til fyrirtækjastjórn-
enda og fámennra yfirþjóðlegra stofnana.
Nú við aldarlok er ástæða til að ætla að kvennahreyfingin standi á ákveðnum tímamótum. Stöðnun
gæti verið skammt undan ef hreyfingin tekur ekki sjálfa sig og áherslur sínar til endurmats. Hvar stendur
hún og hvert vill hún fara? Um þetta er m.a. fjallað í þessari VERU. -isg.
MARY WOLLSTONECRAFT
Mary Wollstonecraft (1759-97) var enskur femínisti og róttæklingur.
Hún var af írsku bergi brotin og fæddist í Hoxton sem er í nágrenni
London. Faðir hennar, sem var drykkjumaður og ofbeldismaður á
heimili, gerði misheppnaðar tilraunir til að gerast bóndi í Yorkshire
og Wales. Mary var að mestu sjálfmenntuð og árið 1778 fór hún að
vinna sem fylgdarkona í Bath. Eftir dauða móður sinnar árið 1782
kom hún á fót skóla í Newington Green ásamt vinkonu sinni Fanny
Blood. Þar komst hún í kynni við fjölmarga frjálslynda einstaklinga
sem ekki fóru alltaf troðnar slóðir. Bekstur skólans tókst ekki sem
skyldi og Fanny flutti til Lisbon þar sem hún dó síðar af barnsförum
áður en Mary, sem var á leiðinni til hennar til að hjúkra henni, komst
á leiðarenda.
Árið 1778 gaf hún út bókina Thoughts on the Education of Daughters (Hugleiðingar um mennt-
un dætra) og hóf í framhaldi af því að vinna fyrir sér sem fjölskyldukennari. Árið 1790 flutti hún
svo til London og vann um tíma hjá útgefanda að nafni Johnson við þýðingar og lestur handrita
og greina. Hún gerðist félagi í hópi róttækra menntamanna en í honum voru m.a. menn eins og
Paine, Godwin og Fuseli. Frá þessum tíma eru verk eins og skáldsagan Mary, The Female Reader
(Kvenlesandinn) og hið mjög svo merka rit History and Moral View of the Origins and Progress
of the French Revolution (Saga og siðfræði uppruna og þróunar frönsku byltingarinnar). Arið
1792 fór Mary til Parísar og tók þar upp ástarsamband við hinn bandaríska Gilbert Imlay. Átti hún
með honum dótturina Fanny árið 1794. Fluttu þau stuttu síðar til London og Mary, sem ekki gat
sætt sig við óstöðugleika hans í kvennamálum, gerði þar tilraun til að svipta sig lífi.
Hún fór aftur að vinna hjá Johnson árið 1796 og þar hitti hún William Godwin og þau giftust
þegar hún varð barnshafandi þrátt fyrir að það stríddi gegn lífsviðhorfum þeirra. Hún dó úr
barnsfararsótt tíu dögum eftir fæðingu dótturinnar Mary (síðar Shelley var rithöfundur og skrif-
aði skáldsögur, smásögur, ferðasögur, ævisögur og margt fleira. Ilún var gift hinu fræga hreska
ljóðskáldi Shelley).
Merkasta verk Mary Wollstonecraft er óneitanlega Vindication of the Hights of Women (Máls-
vörn fyrir réttindum kvenna) þar sem hún tekst á við þá skoðun Housseaus að konur séu óæðri
og færir rök fyrir jafnrétti til náms, atvinnuþátttöku einstæðra kvenna og félagsskap karla og
kvenna á jafnréttisgrundvelli. Bókin vakti mikla hneykslun og var m.a. gagnrýnd með skírskotun
til þess hvernig Mary liföi sínu lífi — en það geröi hún eftir eigin höfði eins og sést hér á undan.
Bókina má tvímælalaust telja með klassískum verkum kvennabaráttunnar og einn af máttar-
stólpum frjálslynds femínisma. .jsg_
2
Mynd á forsíöu:
Anna Fjóla Gísladóttir
Ritnefnd:
Elísabet Þorgeirsdóttir
Ragnhildur Vigfúsdóttir
Anna Ólafsdóttir Björnsson
Sigríður Lillý Baldursdóttir
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
Hildur Jónsdóttir
Útlit:
Kieki Borbammar
I.aura Valentino
Startskonur Veru:
Bjiirg Árnadóttir
Kicki Borhammar
Vala Valdimarsdóttir
Ábyrgö:
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
Auglýsingar:
Björk Gísladóttir
Setning og filmuvinna:
Prentþjónustan hf.
Prentun:
Prcntberg
Bókband:
Bókagerðin
Plastpökkun:
Vinnuheimilið Bjarkarás.
Ath. Greinar í Veru eru birtar á
ábyrgð höfunda sinna og eru
ekki endilega stefna útgefenda.