Vera - 01.04.1990, Side 3
AD VIRÐA
NÁTTÚRUNA
,,VIÐ VILJUM EKKERT ÁLVER"
sungu baráttuglaðar kvennaframboðskonur árið 1982, þegar skamm-
sýnir atvinnumála- og efnahagsfrömuðir buðu Eyfirðingum álver, sem
bjargvætti gegn atvinnuleysisófreskjunni sem þá herjaði. Við það brá
ýmsum Eyfirðingum illa, jafnt tvífætlingum sem ferfætlingum, fjaðra-
dísum og sjávarverum. Kvennaframboðið á Akureyri leit á það sem sitt
höfuðverkefni að bægja þeirri vá frá frjósömum sveitum og viðkvæmum
ströndum, og það tókst bærilega — héldum við. Fyrrnefndir frömuðir
sneru um sinn frá villu síns vegar og viðurkenndu að stóriðja væri ekki
bjargvætturin, smáiðja væri hinn íslenski kostur.
F.n ekki var Eva lengi í Paradís. Nú tala þeir aftur um álver við Eyja-
fjörð, hið mikla álgoð, það eina sem á að geta bjargað okkur frá hræði-
legum endalokum í atvinnuleysi og auön.
Til að tryggja okkur Eyfirðingum álgoðið hafa tilbiðjendurnir hátt um
að hér séum við ein halelújahjörð, og fyrir okkar hönd er boðið upp á
minnst 500 milljóna bryggju ásamt nokkrum „lélegum bújörðum" og
friði á vinnumarkaði. Þetta eru allt gæði sem þeir Westanmenn, álgoðar,
leggja mikla áherslu á. Halelújahjörðinni er bent á það að atvinnuleysi
aukist sífellt, fyrirtæki detti hvert um annað þvert og að kaupmáttur sé
óviðunandi hér norðan heiða. Álgoðið mun kippa þessu öllu í liðinn.
Ég gæti skrifað langan pistil um þá hugsanavillu sem felst í að líta á
stóriðjubyggingu sem lausn á atvinnuvanda, en sleppi því að sinni þar
sem á mér hvílir með mun meiri þunga djúp hryggð yfir þeirri vanvirð-
ingu sem fyrrnefndir frömuðir sýna móður náttúru og þar með sjálfum
sér og börnum sínum.
Á álversumræðutímanum hinum fyrri töldu nokkrir álversfurstar hér
nyrðra og þar westra ástæðu til að senda mig, — fulltrúa kvenþjóðarinn-
ar norðlensku — til Kanada ásamt 10 fulltrúum karlþjóðarinnar (ja,
löngum höfum við konur þótt margra manna makar) að líta eigin augum
þann afrakstur vísinda 20. aldarinnar, sem álver og þeim tengdar virkj-
anir eru.
Ég fór og sá þar og upplifði margt frásagnarvert, álver í ýmsum stærð-
um og gæðaflokkum, allt frá gömlum 10.000 manna vinnustöðum til
nýrra, „mengunarvarðra/kvenvinsamlegra" álvera. Ég fékk að skoða
tennurnar í kúnum, flúorburstaðar og fínar; drakk líkjör úr bláberjum
af ómengaðri jörðinni o.s.frv. Bændur úr héraöinu komu til viðtals við
okkur. Þeir kváðu Alcan, en svo hét fyrirtækið sem þá hafði hug á land-
námi við Eyjafjörð, góðan nágranna, enda hafði Alcan boðið þessum
bændum í morgunkaffi sérstaklega til að hitta okkur, og þeir kunna sig
þarna í Quebec, komnir af frönskum séntilmannaættum.
Við fengum hins vegar ekki að hitta Indíánana, frumbyggja landsins,
sem okkur var þó sagt að hefðu verið flutt um set í aðra dali þegar Alcan
þurfti að framkvæma nokkrar móðurlífsaðgerðir á móður jörð, til að ná
úr henni orku, virkja hana til að vinna ál til að sigra heiminn.
Fáir íbúar jarðarinnar sýna henni og hinum raunverulegu auðæfum
þessa heims meiri virðingu en einmitt Indíánar. Meðal kvenna og karla
þar hefur varðveist um þúsundir ára, svo mögnuð þekking á öllu sem
augað sér og því sem augað ekki sér, að svokallaðir vísindamenn og
menningarfrömuðir hins „siðmenntaða heims" mega skammast sín.
Þetta fólk er flutt milli dala eins og ég flyt pappíra úr einni möppu í aðra
og litið er á slíka flutninga sem sjálfsagðan hlut.
Auðvitaö þarf ekki að líta svo langt til að finna vanvirðingu gagnvart
því fólki sem hefur kosið að lifa f takt við náttúruna í stað þess að merg-
sjúga hana og vanvirða. Við höfum nóg af slíku hér á landi. En stundum
sjáum við betur frá okkur en það sem nálægt er. i Kanada lærði ég lfka
að þegar samdráttur er á álmarkaðnum þá draga furstarnir saman eða
loka álverum í Brasilíu (og íslandi?) áður en gripið er til samdráttar í
heimalöndum þeirra. Eðlilega! Gefum við ekki börnunum okkar að
borða áður en við bjóðum öllu hverfinu í mat, ef lítið er til?
En einmitt í Kanada eru einhverjir farnir að opna augun. Kannski hafa
Indíánarnir einhver áhrif á þá þrátt fyrir allt. Ég heyrði í fréttum að ein-
hverjir skynsamir Kanadamenn hafi fjárfest í vatnsframleiðslufyrirtæki
hér á landi og hyggist flytja vatnið til Kanada og jafnvel Frakklands, því
þar sé markaður fyrir ómengað vatn. Hvar ætli mengunin í þeirra eigin
vatni eigi upptök sín?
Ég heyrði líka í fréttum að stjórnvöld í Kanada væru að láta rannsaka
geislun/mengun frá kjarnorku-/álverum þar vestra vegna þess hve mikið
er um að börn og annað ungviði fæðist vanskapað í nágrenni þessara
vera...
Vituð þér enn eða hvað?
Akureyri, í mars 1990,
Valgerður H. Bjarnadóttir
BETRI NÝTING Á BLEIJUM 4
HVERT STEFNIR 6
TÖKUM AF OKKUR
KORSELETTIN 7
Hildur Jónsdóttir ræðir við
Sigríði Dúnu Kristmundsdóttur
um stöðu kvenna-hreyfingar-
innar.
í ALDALOK - HVERT STEFNIR
> MÁLEFNUM KVENNA 11
Sex konur setja fram hugmyndir
og vonir um framtíðina
ÞRÆLGOn 19
Mataruppskrift
AÐSTÆÐURNAR VERÐA AD
VAXA FRAM 20
Guðrún Gísladóttir, leikkona
í Veruspjalli
NÁMSKEIÐ OG AFTUR
NÁMSKEID 25
Konur óþreytandi þátt-
takendur á námskeiðum
BOD OG BÖNN LEYSA
ENGAN VANDA
Laura Valentino fjallar um
klám og konur í klámiðnað-
inum
KVENNASTJÓRN
28
31
KOSNINGABARÁTTAN
LEGGST VEL í OKKUR
Rætt við Guðrúnu Ögmunds-
dóttur, Elínu Vigdísi Ólafsdótt-
ur og Margréti Sæmundsdóttur
STUTTAR ÞINGFRÉTTIR
ÚR LISTALÍFINU