Vera - 01.04.1990, Qupperneq 19
ÞRÆLGOTT!
Chili con carne er frægur
bragðmikill mexikanskur rétt-
ur úr hökkuðu kjöti, chilipipar
og baunum. Stundum eru hrís-
grjón höfð með, eða brauð.
Hér er önnur (og betri) útgáfa
því að við sleppum kjötinu.
Farið varlega í sakirnar með
kryddið....
1 msk ólífuolía
2 meðalstórir laukar, fínt
skornir
3 hvítlauksgeirar, fínt skornir
1 græn paprika, skorin í bita
1 nýr jalapeno pipar, fínt skor-
inn (notið gúmmíhanska!)
eða 2 msk af hökkuðum niður-
soðnum pipar
TÓNLISTARHÁTÍÐ
KVENNA
1 stór dós af niðursoðnum
tómötum (í purée)
1/2 tsk coriander
1/4 tsk heill negull, eða duft
1/4 tsk allspice ber
2 tsk oregano
2 msk púðursykur
2 msk chili, milt
2 msk mulið kúmen
2 b soðnar nýrnabaunir, eða
pinto baunir
1 b brún/hvít hrísgrjón
2 b soðið vatn
Hægt er að kaupa niður-
soðnar nýrnabaunir, en það er
bæði ódýrara og betra að
kaupa þær þurrar, leggja í
bleyti yfir nótt og sjóða í
klukkustund. Athugið að 1
bolli af þurrum baunum verð-
ur að 2 og 1/2 b þegar búið er
að sjóða þær.
1. Hitið olíuna í stórum þykk-
botna potti og snöggsteikið
lauk, hvítlauk, papriku og jala-
peno pipar uns laukurinn
mýkist.
2. Bætið tómötum (og purée),
kryddi, sykri og baunum í.
Lækkið hitann þegar suðan
kemur upp, látið lokið á og lát-
ið krauma í a.m.k. hálftíma.
3. Sjóðið hrísgrjónin eftir fyr-
irmælum á pakka og berið rétt-
inn fram með hrísgrjónum,
sýrðum rjóma, niðurskornum
hráum lauk og e.t.v. brauði.
Lagið tvöfalda uppskrift og
frystið afganginn. Ég bauð upp
á þennan rétt í síðasta afmæli
sem „kaloríusnautt kreppu-
fæði“ og hann gerði mikla
lukku.
VERIJ hefur borist fréttatil-
kynning frá bandarískum sam-
tökum sem kalla sig We Want
The Music Co (WWTMC) þar
sem þau vekja athygli á tónlist-
arhátíð kvenna sem haldin
verður f Michigan 15.-19. ágúst
í sumar. Hátíðin (The Michigan
Women’s Music Festival) sem
nú verður haldin í fimmtánda
sinn er elsta og stærsta tónlist-
arhátíð kvenna í Bandaríkjun-
um. Árlega sækja hana um
7000 konur víðs vegar að í
Bandaríkjunum og Kanada
sem og frá fjölda landa í
Evrópu, Miðameríku, Mið-
austurlöndum og úr Kyrra-
hafinu.
Hátíð þessi fer fram á 650
hektara landsvæði þar sem
konur njóta lífsins í fallegu um-
hverfi um leið og þær rækta
menningu kvenna. Boðið er
upp á 250 vinnuhópa, list-
munamarkað þar sem 140
listakonur sýna og selja afurðir
sínar og 36 performansa á
þremur sviðum þar sem bland-
að er saman tónlist kvenna,
leiklist og dansi.
Ef konur vilja fá nánari upp-
lýsingar um hátíðina er þeim
bent á að skrifa til WWTMC,
P.O.Box 22, Walhalla, MI
49458, U.S.A.
DAGUR JARDAB 22. APRÍL
Móðirjörðáundir
högg að sælqa
Attþú góða hugmynd sem getur nýst henni?
Umhverfisvernd skiptir meira máli nú en nokkru sinni fyrr.
Ef maðurinn heldur áfram að misnota jörðina mun hann á endanum
gera hana óbyggilega.
Við þurfum að snúa vörn í sókn - með sameiginlegu átaki. Til þess þarf
góðar hugmyndir. Því hefur umhverfismálaráð Reykjavíkurborgar
ákveðið að setja á stofn hugmyndabanka vegna „DAGS JARÐAR“,
alþjóðlegs umhverfisverndardags 22. apríl næstkomandi. Þar gefst
borgarbúum tækifæri til að koma á framfæri hugmyndum sínum,
tillögum og ábendingum um úrbætur sem geta orðið til að bæta
umhverfi okkar.
Með hugmyndabankanum vill umhverfismálctráð Reykjavíkur kalla á
jákvæðar og framsýnar hugmyndir um úrbætur í nánasta umhverfi
borgarbúa. Umhverfismálaráð mun fara ítarlegayfir allar tillögur sem
skilað verður í hugmyndabankann og hrinda í framkvæmd eftir því sem
kostur er og nánar verður ákveðið.
Hugmyndum og tillögum skal skila fyrir 22. apríl merktum:
Dagur jarðar
Hugmyndabanki
Skúlatúni 2,
105 Reykjavík.
UMHVERFISMÁLARÁÐ REYKJAVÍKUR
19