Vera


Vera - 01.04.1990, Blaðsíða 30

Vera - 01.04.1990, Blaðsíða 30
Phyllis Schlafly (þjóðfræg fyrir andstöðu sína við kvenfrelsi og stjórnarskrárbreytingar í þess þágu í Bandaríkjunum) og fast- eignakónga („hreinsum Times Square fyrir fína liðið'). Þessir hópar hafa vafasaman málstað en WAP hikar ekki við að þiggja af þeim peninga. í landi frelsisins, Bandaríkjunum, er ráðist gegn sköpunarverki listamanna, jafn- vel plötuútgáfu, og réttur kvenna til að ráða eigin frjósemi á undir högg að sækja. WAP heldur því fram að fyrsta grein stjórnarskrár- innar tryggi aðeins frelsi til að tala fyrir og tjá stjórnmálaskoðanir en heldur því jafnframt fram að klám sé áróður fyrir karlveldið. Hvort er það? Ef þú heldur að ísland sé laust við svona mótsagnakennda hugsun skaltu rifja upp að þann 12. mars s.l. lýsti DV því yfir að blaðið birti ekki auglýsingar frá samtökum samkynhneigðra vegna þess að það styddi baráttu kvenna gegn klámi! En hvað um ofbeldis-klám? Hóp- ur bandarískra kvenna stofnaði samtök gegn ritskoðun (FACT, Feminist anti-censorship task force) og birti niðurstöður rann- sókna sinna í ritgerðasafninu „Caught Looking“. Þær komust að þeirri niðurstöðu að flest klám er ekki þrungið ofbeldi og að klámframleiðslan lítur á gagn- kynhneigða karla sem neytendur sína. Þær fundu líka klám handa hommum, lesbum, klæðskipting- um, sado-masokistum o.fl., þ.e.a.s. til er klám handa öllum minnihlutahópunum sem ekki rúmast innan ramma hinnar hefð- bundnu kjarnafjölskyldu. E.t.v. má segja að klám sé ekki áróður fyrir karlveldi heldur kynlífi, sem samkvæmt kenningum Wilhelms Reich er andhverfa karlveldisins. Það mætti líka segja sem svo að ástæðan fyrir því að fólki finnst klám svo æsandi sé sú að það er bannað. Þó svo að klám sé bannað á íslandi er ofbeldi gegn konum og börnum hér á landi sorgleg staðreynd svo eitthvað annað en klám hefur stuðlað að því. Nú kynnir þú að svara því til að klám sé fyrir hendi þrátt fyrir bannið, en það rennir þá stoðum undir þá skoðun að bann leysi ekki vand- ann. Þar að auki er ekki hægt að leggja að jöfnu ímyndað ofbeldi eða draum um það og raunveru- 30 Þegar erótík er stillt upp sem andstœöu kláms er erótík látin tákna þaö kven- lega, feguröina, unaöinn o.s.frv. - klám er þá þaö karllega; árásar- gjarnt, þrúgandi, ofbeldishneigt. Eru þessar andstœöur ekki einmitt þaö úrelta hugmynda- hjólfar sem viö höfum veriö aö reyna aö komast upp úr? Flest klám er, því miöur, dœmigert kynferðishrokafullt (sexist) efni búiö til af körlum handa körlum. Þaö sama gildir um flest af því sem flokkast undir skemmtun í sjón- varpinu og kvik- myndahúsum. legan glæp — það væri illmögu- legt að gera drauma ólöglega því ekki getum við hringt á hugsana- lögregluna. Eitt af því sem ýtir undir hræðslu fólks við klám er að það hafi áhrif á ungt fólk og gefi þeim rangar hugmyndir um kynlíf. Eru börnin okkar að læra um kynlíf af klámi? Varla er hægt að skamma þau fyrir að vera forvitin. Samræði er sam- kvæmt íslenskum lögum löglegt við 14 ára aldur. Hlutfall þeirra sem orðin eru 14 ára og hafa sofið hjá er fremur hátt.31 Þessir ungl- ingar þarfnast góðrar og for- dómalausrar fræðslu, fyrst heima hjá sér og síðan í skólanum. Það ætti ekki aðeins að fjalla um líf- fræði heldur einnig leggja áherslu á kynferðisleg sambönd og þá ánægju sem hafa má af þeim. Þetta er réttur unglinganna! Sért þú feimin við að tala um kynlíf við börnin þín, ættirðu að hafa bækur á heimilinu sem þau geta stolist í. Þau munu heldur betur gera það! Nú er farið að gefa hér út ágætis tímarit um kynlíf, Bleikt og blátt, með upplýsingum fyrir alla aldurshópa. Gakktu ekki út frá því að krakkarnir séu of ungir eða ekki nógu þroskaðir til að skilja hlutina. Þeir eru að læra algebru og efnafræði, hvers vegna þá ekki á líkama sína og tilfinn- ingar? Ég held að engum hafi dottið í hug að spyrja unglinga um afstöðu þeirra til kláms — lík- lega myndu fæst þeirra viður- kenna að hafa séð það. Flest klám er, því miður, dæmi- gert kynferðishrokafullt (sexist) efni búið til af körlum handa körl- um. Það sama gildir um flest af því sem flokkast undir skemmtun í sjónvarpinu og kvikmyndahús- um. Auglýsendur nota kvenlík- ama til að auglýsa allt milli himins og jarðar. Fegurðarsamkeppnir hlutgera konur og reyna að skapa þrönga staðla yfir fegurð. Klám er dregið fram sem óvinur númer eitt vegna þess hversu augljós tengsl þess eru við kynlíf. Við ætt- um að nota hvert tækifæri til að mótmæla kynferðishroka og við getum gert það án þess að leita til laganna — með því að hvetjafólk til aö sniðganga blöð og tímarit sem ala á honum og með oþin- berum mótmœlum. Utrýming klámsins er ekkert töframeðal gegn öllum okkar félagslega vanda. Það er einföldun að sjá klám sem Óvininn og réttindi okkar sem kynvera munu ekki efl- ast þó við sóum dýrmætri orku í að kveða klámið niður. Hvernig væri að byrja á því að skilgreina hvað okkur finnst erótískt og æs- andi. Það var með það fyrir aug- um sem Joani nokkur Blank í San Fransisco stofnsetti ,,Kynlífs- bókasafnið“ sitt. í safninu er að finna bækur um sjálfshjálp í kyn- lífi auk erótískra bóka. Joani er nú líka byrjuð að safna myndbönd- um vegna áskorana frá konum sem fundu ekkert við sitt hæfi á subbulegum markaði klámvarn- ingsins. Hér í Reykjavík er verslun sem selur hjálpartæki ástarlífsins. Hún er rekin af hjónum, sem segj- ast vilja aðstoða fólk. Finnir þú ekkert við þitt hæfi áttu að segja þeim hvað þitt hæfi er! Fn það jrarf meira en breytingar á kynlífi til að breyta viðhorfum kynferð- ishrokans. Hljómsveit í Boston sem kallar sig ,,Rock gegn Sexisma‘‘ flytur hrokalaust rokk og kvenvinsamlegt í því yfirlýsta augnamiði að berjast gegn karl- rembu í kynlífinu og í gagnkyn- hneigðri menningu okkar. Þarna er hugmynd, — hvað dettur þér í hug? Laura Valentino. ms og-isg þýddu. 1) Fíkniefnaneysla og kynsjúkdómar eru ekkert algengari meðal vændiskvenna en hjá almenningi. Talið er að um 10-20% vændiskvenna starfi á götunni. 2) Samkvæmt niðurstöðum rannsókna Dr. Jennifer James í Seattle eru ástæður fyrir vinnu við vændi eftirfarandi: 1) ijárhags- legar, 2) spenna, 3) sjálfstæði, 4) fjöl- breytni. 3) í rannsókn sem gerð var árið 1976 í Iteykjavík, kom í ljós að 22.2% unglinga á 15- aldursári eru cða hafa verið í kyn- ferðislegu sambandi (Bleikt og blátt, 1. tbl. 2. árg. 1990, bls. 10). Heimildir: Sex Work, writings by women in the sex industry. Frédérique Delacoste, Priscilla Alexander. Cleis Press, 1987. Caught Looking, Feminism, Pornography and Censorship. The Feminist Anti- censorship Task-force. The Real Comet press, 1988. The Rights of Childran. Bob Franklin. Basil Blackwell Ltd, 1986. The Body Politic. Michelene Wandor. Stage 1, 1972. A Fcminist Dictionary. Cheris Kramarae, Paula A. Treichler. Pandora Press, 1989- Bleikt og Blátt, tímarit. The Sexuality Library catalog, San Francisco, CA. Rock Against Sexism, Boston, MA.

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.