Vera


Vera - 01.04.1990, Page 31

Vera - 01.04.1990, Page 31
► „KVENNA- STJÓRN'' BL>ES NÝJU LIFI I NEMAFÉLAG Á leiölnnl upp. Fremrl röö frá vinstri: Anna María Ragnvaldsdótt- ir, Elín Siguröardóttir, María H. Kristinsdóttir. Attari röö frá vinstri: Harpa Tómasardóttlr, Auöur Björgvlnsdóttir, Silja Ástþórsdóttlr. Á myndina vantar Slg- rúnu Ragnarsdóttur. Rœtt við konurnar í stjórn Félags bóka- gerðarnema í Iðnskólanum. Alls staöar eru konur farnar að láta meira til sín taka og jafnvel búnar aö taka völdin. Þaö hefur txi. veriö gert í Fé- lagi bókageröarnema í lön- skólanum í Reykjavík, því þar sitja nú sjö konur og endur- skipuleggja félag sem hefur ekki starfaö sl. tvö ár. Þœr vilja láta til sín taka og sjá œrin verkefni framundan þar sem miklar breytingar hafa átt sér staö í iöngreininni og eiga eftir að veröa enn meiri. Þar finnst þeim mikilvœgt aö fylgjast meö og telja sitt helsta hlutverk aö koma í veg fyrir aö laun lœkki hjá bóka- geröarmönnum þegar kon- um fjölgar þar á nœstu árum. Þær sátu fjórar á stjórnarfundi í húsi bókagerðarmanna við Hverfisgötu, þær Elín Sigurðar- dóttir, Anna María Rögnvalds- dóttir, Harpa Tómasdóttir og María Kristinsdóttir sem er for- maður félagsins, og ræddu verk- efnin framundan. Blaðaútgáfa er á verkefnalistanum því nú hefur félagið tekið að sér útgáfu Prent- nemans sem áður var gefinn út af útskriftarnemum til fjáröflunar fyrir ferðasjóð. Þær voru líka að skipuleggja að- alfund þar sem kjósa á stjórnina formlega en hún var skipuð á ólöglegum aðalfundi í desember. Þær ætla allar að gefa kost á sér og eru ekkert hræddar um að verða ekki kosnar því helsta vandamál- ið er einmitt að fá fólk til að taka þátt í starfi félagins. , ,Við höfum legið í fundargerð- arbókum félagsins sem var fyrst stofnað 1926 og starfaði til 1930 og síðan endurreist 1940. Þar er sagt frá blómlegu félagsstarfi, fjölmennum böllum og pólitísk- um hasar. En það er sama hvernig við reynum að lokka fólk með okkur, það gengur illa,“ sagði Elín og hristir hausinn yfir nútíman- um. Það virðist ekki ganga lengur að efla samkennd með skemmtana- lífi því nýlega stóð félagið fyrir balli ásamt öðru nemafélagi í Iðn- skólanum, sem telur um 400 fé- lagsmenn, en það var sorglega illa sótt. Einnig var efnt til sameigin- legrar leikhúsferðar en þátttaka var ekki mikil. „Þegar fólk er komið með fjöl- skyldu og jafnvel byrjað á íbúða- kaupum, hefur það ekki orku í fé- lagslífið. Margir þurfa að vinna með skólanum og hafa engan tíma aflögu,“ segja þær. En þá er að laga félagsstarfið að veruleik nútímans, þó óneitan- lega hvíli ljómi yfir frásögnum af starfi fyrri tíma. „Okkur vantar aðstöðu fyrir fé- lagsstarfið þar sem við gætum komið á framfæri upplýsingum til félagsmanna sem til okkar leita. í félaginu eru nú milli 150 og 160 manns, bæði nemar í skólanum og sveinar á meistarasamningi úti í prentsmiðjunum. Námið hefur verið að breytast mjög mikið og skólinn hefur ekki getað gefið nógu góðar upplýsingar um hver réttindi okkar muni verða. I skólanum eru þrjár deildir, prentsmfði, bókband og prentun. í prentsmíði er kennd offsetljós- myndun, skeyting, umbrot og setning og þar er nú um 90% nemanna konur. Engin inntöku- skilyrði eru sett nema grunn- skólapróf, en nú er okkur sagt að við fáum ekki að halda áfram á þriðju önn án þess að hafa unnið í sex mánuði í prentsmiðju. Nú er samdráttur í þessari iðngrein og því getur námið orðið einskis nýtt fyrir þá sem ekki komast í vinnu. Hagsmuna- og kjaramálin verða því okkar helsta verkefni. Við viljum upplýsa félagsmenn um réttindi sín og skyldur og hafa áhrif á skipulag námsins," segja þær. Félags- og námsráðgjafar Iðn- skólans hafa haft nóg að gera við að leiðbeina nemum og útskýra fyrir þeim námið. Þeim stjórnar- konum finnst rétt að benda fólki á að notfæra sér þá þjónustu, en vilja samt axla þá ábyrgð sem fé- lagið á að bera og munu m.a. gera það með útgáfu blaðsins. Þær vilja einnig efla samstarfið við Fé- lag bókagerðarmanna sem mun verða þeirra félag í framtíðinni, því auðvitað ætla þær ekki að gef- ast upp. Þær hafa valið sér starf og ætla að berjast fyrir því að verða teknar þar gildar og jafnréttháar þeim körlum sem verið hafa í meirihluta í stéttinni undanfarna áratugi. E.Þ. 31

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.