Vera - 01.04.1990, Page 35
AKUREYRI
Kvennalistinn á Akureyri átti tvo fulltrúa í
baejarstjórninni þar á árunum 1982-’86 og tók
þátt í meirihlutasamstarfi. í síðustu sveitar-
stjórnarkosningum ákváðu þær engu að síður
að bjóða ekki fram aftur en nú ætla þær að taka
upp þráðinn þar sem honum sleppti árið 1986.
Þegar þetta er skrifað voru þær búnar að ganga
frá stefnuskrá en listinn var ekki frágenginn.
Allt benti þó til þess að Valgerður Magnúsdóttir
sálfræðingur yrði í fyrsta sæti.
í samtali við Sigurborgu Daðadóttur dýra-
lækni kom fram að kosningarnar legðust vel í
Akureyrarkonur. Sagði hún að þær væru komn-
ar með nýtt húsnæði miðsvæðis sem nýttist
þeim mjög vel. Nú gætu þær haft opna skrif-
stofu og auglýsta fundi sem gerði konum mun
auðveldar en áður að koma til starfa hjá
Kvennalistanum. Hún sagði þó að það yrði að
viðurkennast að staðan væri svolítið erfið
vegna þess að ekki var boðið fram árið 1986.
Því væri ýmist haldið fram að þær hefðu hætt
vegna þess að tilætluðum árangri hefði verið
náð eða að þær hefðu gefist upp. í ritstjórnar-
grein í Degi nú nýverið var t.d. talað um
kvennaframboð sem tímaskekkju. Árangurinn
af þeim hefði skilað sér í því að nú væru 4 konur
í bæjarstjórninni en þar var aðeins ein kona fyr-
ir kosningarnar 1982. Þar að auki væri fyrrum
Kvennalistakona í 5. sæti hjá Framsókn ogþetta
væri því orðið harla gott.
En Kvennalistakonur eru ekki alveg sammála
Degi og bjóða ótrauðar fram. Hvað fylgi varðar
segjast þær miða sig við landsmeðaltalið í ný-
gerðum skoðanakönnunum og ef það haldi fái
þær a.m.k. einn fulltrúa inn í bæjarstjórnina.
SELFOSS
Fyrr í vetur hafnaði Kvennalistinn á Selfossi
tilboði um sameiginlegt framboð með Alþýðu-
flokki og Alþýðubandalagi. Þá leit út fyrir að
bæjarfulltrúi Kvennalistans, Sigríður Jensdótt-
ir, myndi ekki gefa kost á sér aftur vegna þeirra
anna sem fylgja starfi í bæjarstjórn en að auki er
Sigríður í starfi að Sogni í Ölfusi fyrir utan það
að sinna mannmörgu heimili. En fljótt skipast
veður í lofti og nú er ljóst að á Selfossi verður
boðinn fram „Listi félagshyggjufólks" með
Sigríði í efsta sæti.
Flokkar og samtök eru ekki beinir aðilar að
listanum en fyrir liggur að Alþýðuflokkur, Al-
þýðubandalag og Kvennalisti munu lýsa stuðn-
ingi sínum við listann. Hver þessara aðila á nú
I fulltrúa í bæjarstjórninni en Sjálfstæðisflokk-
urinn á 3 fulltrúa og Framsóknarflokkur 3. Eins
og lög gera ráð fyrir eru 18 manns á listanum og
má segja að 6 séu þar frá hverjum stuðningsað-
ila. Kvennalistakonur sem VERA talaði við á
Selfossi sögðu að þetta yrði auðvitað enginn
Kvennalisti en gæti eflaust orðið ágætt. Það
væri erfitt fyrir smærri flokka og samtök að
halda uppi virku starfi í svo litlu bæjarfélagi en
kannski væru meiri líkur til þess ef þau legðu
saman.
mosfellsbær
I Mosfellsbæ verður sameiginlegt framboð
Alþýðuflokks,Alþýðubandalags, Framsóknar-
flokks og Kvennalista. Þar hefur bæði verið
gengið frá málefnagrundvelli og uppröðun á
lista. Fær Alþýðubandalag fyrsta sætið og Al-
þýðuflokkur annað sæti en báðir þessir flokkar
Úr starfi Kvennalistans.
eiga nú einn fulltrúa í bæjarstjórninni. Fram-
sóknarflokkur fær þriðja sæti, en hann vantaði
aðeins örfá atkvæði til að ná manni inn síöast,
og Kvennalistinn fær svo fjórða sætið. Mun
Kristín Sigurðardóttir, fulltrúi Kvennalistans í
bankaráði Landsbankans svo sem frægt mun
orðið, taka það sæti.
Eining — en það heita samtökin sem standa
að listanum — stefna auðvitað að því að ná 4
fulltrúum og meirihlutanum í bæjarstjórninni
en ef aðeins fara 3 inn þá mun hver þeirra
sleppa 6 bæjarstjórnarfundum á árinu og þann-
ig taka allir fjórir efstu menn á listanum þátt í
18 bæjarstjórnarfundum á ári. Að auki verður
svo jöfn skipting í nefndir óháð niðurstöðu
kosninganna. Starfandi verður bæjarmálaráð
og þar verður líka ríkjandi algert jafnræði milli
flokka.
í samtali við Kristínu Sigurðardóttur kom
t'ram að samstarfið hingað til hefði gengið ótrú-
lega vel og þaö eina sem hafi verið verulega erf-
itt var krafa Kvennalistans um að kona væri í ör-
uggu sæti. „Töldu flokkarnir sig enga konu hafa
en við sögðum að það væri algerlega útilokað
fyrir okkur að styðja eintóma karla inn í bæjar-
stjórnina. Fyrir rest víxlaði Alþýðubandalagið
sinni uppröðun og formaður félagsins í sveit-
inni vék fyrir konu og hún er því í fyrsta sæti á
listanum."
SELTJARNARNES
Einhverjar Kvennalistakonur á Seltjarnarnesi
hafa tekiö þátt í viðræðum um sameiginlegt
framboð á nesinu í næstu kosningum. Sagði
Sonja B. Jónsdóttir að það væru allar líkur á því
að þær yrðu aðilar að slíku framboði þ.e.a.s. ef
einhverjar konur fengjust til að gefa kost á sér
í prófkjör sem haldið verður 6. og 7. apríl.
Sagði hún að þær hefðu reyndar komið dálítið
seint inn í þessi framboðsmál en konur væru
nokkuð spenntar fyrir þessu. Þetta væri eina
leiðin ef þær vildu hafa áhrif á bæjarmálin því
Kvennalistinn gæti ekki boðið fram einn á nes-
inu.
Sjálfstæðismenn eru með hreinan meirihluta
í bæjarstjórninni eða 4 fulltrúa af 7. Alþýðu-
bandalagið á 2 fulltrúa og Framsóknarflokkur-
inn 1. Taldi Sonja alls ekki útilokað að sameig-
inlegur listi gæti náð meirihlutanum ef sterkir
frambjóðendur væru í boði. Það sem sameigin-
legur listi mun leggja mesta áherslu á eru um-
hverfismál og dagvistar- og skólamál.
HÚSAVÍK
í síðustu kosningum var boðinn fram sameig-
inlegur listi Alþýðubandalags og óháðra sem
fékk þrjá fulltrúa kjörna í bæjarstjórnina. f öðru
sæti var Kvennalistakonan Valgerður Gunnars-
dóttir og í samtali við VERU sagði hún að sami
háttur yrði hafður á í komandi kosningum.
Fulltrúar G-listans eru nú í minnihluta ásamt
einum fulltrúa frá s.k. Víkverjum en meirihlut-
ann mynda 2 Framsóknarmenn, 1 Sjálfstæðis-
rnaður og 2 Alþýðuflokksmenn.
Valgerður sagði að sér hefði liðið og líkað
ágætlega í samstarfi við Alþýðubandalagið. Þau
hefðu starfrækt bæjarmálaráð sem í áttu sæti 6
efstu menn á listanum og kom það saman fyrir
allabæjarstjórnarfundi. Þannighefði ekki verið
starfað fyrir tilkomu Kvennalistans og því
mætti segja að hann ætti heiðurinn af þessum
starfsháttum. Hefði þetta reynst þeim mjög vel.
Hvað komandi kosningar varðar þá sagði hún
að þær legðust ágætlega í sig en þó væri erfitt að
spá um úrslitin. „Á svona stað ráðast úrslit ekki
síst af því hverjir eru í framboði. Það hefur ver-
ið erfitt hjá öllum að fá fólk í örugg sæti og það
er enginn búinn að birta lista ennþá. Það er því
lítið hægt að spá í úrslitin að svo stöddu."
KÓPAVOGUR
í Kópavogi stóðu mál þannig þegar þetta var
skrifað að þar voru konur að safna hugmynd-
um og þekkingu í sarpinn og byrjaðar að vinna
að stefnuskrá hugsanlegs Kvennalista í bæjar-
stjórnarkosningunum. Ætluðu þær að kynna
stefnuskrárdrögin á opnum fundi þann 2. apríl
og taka þá ákvörðum af eða á um framboð.
VERA talaði við Þórönnu Pálsdóttur veður-
fræðing og sagði hún að greinileg þörf væri á
mikilli áherslubreytingu í bænum. Það væri
goðsögn sem ætti við lítil rök að styðjast að
Kópavogur væri einhver sérstakur félagsmála-
bær. Félagshyggjuöflin sem stjórnuðu bænum
hefðu öðru fremur verið upptekin af íþrótta-
málunum. Þá væri atvinnuástandið mjög slæmt
í bænum og enga vinnu þar að hafa fyrir konur.
Eldri hverfi í bænum hefðu verið látin drabbast
niður og væri klóak jafnvel farið að koma upp
í görðum fólks. Það þyrfti líklega um einn millj-
arð til að cndurbæta þau. Þá sagði hún að þeim
Kvennalistakonum þættu miklir loftkastalar og
skipulagsleysi einkenna störf meirihlutans.
„Hvort sem af framboði hjá okkur verður
eða ekki þá nýtist sú vinna sem við höfum nú
lagt f bæjarmálin áfram. Við getum skipt okkur
af bæjarmálum þó við förum ekki f framboð.
Þetta styrkir líka starf Kvennalistans í Kópavogi
sem hefur verið fremur lítið fram til þessa. Við
höfum fengið til liðs við okkur mikið af góðum
og áhugasömum konum.“
35