Vera


Vera - 01.04.1990, Blaðsíða 37

Vera - 01.04.1990, Blaðsíða 37
þjálfara í öllum fræðsluumdæmum landsins. Þar sem ekki væri kostur á sjúkraþjálfara í fast starf yrði fenginn sjúkrajijálfari af öðru svæði er veitti þá þjónustu, sem hægt væri, í hlutastarfi. Hlutverk sjúkraþjálfgra væri fjórþætt: 1. Að fylgjast með vinnuaðstöðu skólabarna og veita ráðgjöf við innkaup á húsgögnum. 2. Að leið- beina kennurum og nemendum um rétta > líkamsbeitingu. 3. Að tengjast heilsugæslu skólabarna, t.d. með því að taka jiátt í skóla- skoðun ásamt lækni og hjúkrunarfræðingi eða skoða einstaka hópa skólabarna. 4. Að eiga samstarf við íþróttakennara vegna barna sem ekki eru í almennri leikfimi." Þegar Jíetta er ritað hefur tillagan ekki verið rædd í þinginu, en við væntum þess að brýnt mál eins og hér um ræðir fái fljóta og jákvæða afgreiðslu. Lögfræðiráðgjöf og aðstoð vegna hjúskapar-, sambúðar og sifjaréttarmála Kvennalistakonur á Aljiingi hafa lagt fram frumvarp um lögfræðiráðgjöf og aðstoð í mál- um er snerta hjúskap, sambúð og sifjarétt. Ef frumvarpið verður samþykkt á fólk með tvö- faldan þann tekjuskattsstofn sem ekki greiðist tekjuskattur af rétt á þessari þjónustu. Lagt er til að mæðralaun teljist ekki til tekjuskatts- * stofns og einnig skal draga frá upphæð sem svarar til meðlags, barnabóta og barnabóta- auka. Ef viðkomandi hefur að jx-ssu frátöldu tekjuskattstofn sem er lægri en tvöfaldur skatt- laus tekjuskattsstofn á sá hinn santi rétt á því að ríkið greiði 75% af kostnaði við lögfræðiþjón- ustu vegna ofangreindra málaflokka. Lagaleg vafaatriði valda oft deilurn við slit sambúðar eða hjónabands. Þá standa karlar í langflestum tilfellum mun betur en konur, þeir hafa jú hærri tekjur og geta greitt sínum lög- fræðingi. Konurnar standa þá jafnvel varnar- lausar gagnvart lagakrókum sem beitt er í J^ess- um málum. Það er óverjandi að fjárhagsleg staða ráði því hvort fólk leitar lögfræðiþjónustu þegar vanda ber að höndum. Eins og kunnugt er þá hefur Kvennaráðgjöfin verið starfrækt sl. 6 ár og þangað hefur rnikill fjöldi kvenna leitað. Þörfin er því augljós en Kvennaráðgjöfin er að- eins ráðgjöf og þær geta ekki fylgt málum eftir. Ef Jietta frumvarp nær frant að ganga geta konur fengið þjónustu lögmanna niðurgreidda ef þaér þurfa að fara með mál sín fyrir dómstóla. í frumvarpinu er lagt til að þjónusta lög- manna verði tvíþætt, annars vegar veiti allir lögmenn ráðgjöf um atriði er varða réttarstöðu aðila f hjúskap og í óvtgðri sambúð, svo sem við slit sambúðar og við slit hjúskapar. Gert er ráð fyrir að eitt viðtal nægi til að útskýra lagalega stöðu aðila. Hins vegar er lagt til að fólk geti fengið niðurgreidda aðstoð lögmanna við mál- flutning. Þeir lögmenn sem hafa áhuga á að sinna þeim málum skulu gefa sig fram við dómsmálaráðuneytið |iar sem verður sérstök skrá yfir þá. Málmfríður er fyrsti flutningsmaður frum- varpsins og |iegar Jietta er ritað hefur ekki verið mælt fyrir Jiví. Tvöfaldur raki ACO FUKTLOTION gefur húð þinni tvö náttúruleg rakabindiefni. Finndu sjálf hve ACO Fukt- lotion smýgur hratt inn í húð- ina án þess að klægi eða svíði undan og hve húðin verður mjúk. ACO FUKTLOTION ilmar einnig þægilega. Heldurðu að þú finnir betri húðmjólk? Hún er notaleg fyrir allan líkamann. Með og án ilmefna. Fæst aðeins í apótekinu.

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.