Vera - 01.12.1990, Síða 5
SIGURBORG STEFÁNSDÓTTIR
Forsíðu Veru að þessu sinni
gerði listakonan Sigurborg
Stefánsdóttir.
Sigurborg er fædd 1959,
hún stundaði nám hjá H. Cr.
Höier, listmálara, í Kaup-
mannahöfn og síðar í Skolen
for Brugskunst í sömu borg
og lauk þaðan prófi úr
teikni- og grafíkdeild skól-
ans vorið 1987.
Sigurborg hefur haldið
nokkrar sýningar á verkum
sínum í Danmörku og sýnt
bæði grafíkmyndir og mál-
verk. Haustið 1989 flutti hún
heim til íslands og hélt þá
sína fyrstu málverkasýningu
hér í Asmundarsal.
Hún hefur unnið til verð-
launa í ýmsum samkeppn-
um í Danmörku m.a. Vegg-
spjald fyrir félag danskra
fasteignasala, nýtt merki fyr-
ir Náttúruverndarsamtök
Danmerkur, útlit á mjólkur-
fernu og forsíðu á leikhús-
blað. Síðastliðið sumar fékk
hún styrk til námsdvalar í
Bandaríkjunum frá Islensk-
Ameríska félaginu.
Sigurborg starfar nú sem
stundakennari við Mynd-
lista- og handíðaskóla Is-
lands, jafnframt því sem hún
vinnur að eigin myndlist.
Breytingar á innheimtu
Hér með tilkynna starfs-
konur VERU breytingar á
innheimtu. í stað gíróseðla til
greiðslu fyrir áskrift höfum
við nú sent rukkara heim til
ykkar sem búið á höfuð-
borgarsvæðinu. Þetta er nú
reynt vegna slæmrar reynslu
af gíróseðlum sem sumir
hverjir voru greiddir seint,
eða jafnvel ekki fyrr en bank-
að var upp á. Við bendum á
að skilvísar greiðslur skipta
sköpum fyrir hag blaðsins.
Við ítrekum að greiðslur með
greiðslukortum eru ódýrari í
innheimtu og því hagstæðari
fyrir VERU. Þá er að nefna að
okkur bráðvantar rukkara á
þéttbýlissvæðum lands-
byggðarinnar og yrðum
mjög þakklátar ef dreifbýlis-
konur gætu bent VERU á
slíkan starfskraft. Og síðast
en ekki síst - munið að til-
kynna breytt heimilisfang
ef þið flytjið. Síminn hjá
VERU er 91-22188, opið frá
13-17, og símsvarinn opinn
þess utan.
Með kveðju, f.h. VERU
VSV
Örorku- og
ellilífeyrisþegar.
Frá og með næstu árarnót-
um verður örorku- og elli-
lífeyrisþegum veittur 25%
afsláttur af áskriftargjaldi
VERU. Gjörið svo vel og
hringið á skrifstofuna í
síma 22188 og látið vita ef
þið hafið áhuga á að nýta
ykkur þennan afslátt.
Ritstjórn
LESENDABREF
Jólasálmur Palestínumanna
Margir vita að Palestínu-
menn búa í fjötrum ísraelsks
hernáms. 1 dag blikar engin
jólastjarna yfir Betlehem
heldur stjarna hersveita.
ísraelskir hermenn ganga
þar um götur gráir fyrir
járnum, varpa táragasi að
óbreyttum borgurum og
skjóta börn til bana.
í grennd við Betlehem eru
nokkrar flóttamannabúðir.
Þar búa þúsundir manna bak
við þrefaldar gaddavírsgirð-
ingar undir eftirliti ísraelskra
hermanna. Þessu fólki er
bannað að búa á landi sínu
og forfeðra sinna. Fólkið hef-
ur engin borgararéttindi,
engan kosningarétt, enga
framtíð í sínu eigin landi.
Aðrir palestínskir flótta-
menn, sem búa í svipuðum
búðum í Líbanon, búa við
sífelldar loftárásir ísraelska
hersins. Arið 1982 vörpuðu
ísraelskar flugvélar napalrn-
sprengjum á búðirnar og
einnig sprengjum í gerfi leik-
fanga, sem sprungu í hönd-
um grunlausra barna.
Þegar við syngjum um
Betlehem og um barnið sem
þar fæddist, minnumst þess
að Frelsarinn var krossfestur
þar fyrir að berjast gegn
ranglæti. Minnumst hinna
150 barna, sem ísraelsher
hefur myrt á s.l. þrem árum í
Landinu helga í nafni
falskenninga. Gleymum ekki
þjáningum og neyð Palest-
ínumanna. Réttum hinum
þjáðu hjálparhönd!
Elías Davíðsson
Góð bók
Elsku Vera.
Við systurnar höfum nýlokið
við að lesa bókina hennar
Fríðu Sigurðardóttur, „Á
meðan nóttin líður". Okkur
langar til að koma því á
framfæri að þetta er bók sem
allar konur verða að lesa,
hún er djúp, hún er vitur,
hún er í einu orði sagt meiri-
háttar. Hér er komin jóla-
bókin, upplögð gjöf sem ætti
að vera til á hverju heimili.
Tvær á fimmtugsaldri
Hver er munurinn?
Fóstra á dagheimili var að
tala urn jafnréttismál við
börnin og benda þeim á að
dálítill munur væri á hugs-
unarhætti og atferli kynj-
anna. Þá sagði einn lítill:
- Ég veit hver mesti mun-
urinn á strákum og stelpum
er.
Fóstran vildi ekki fara
frekar út í þá sálma og skipti
um umræðuefni. En strákur-
inn varð að koma vitneskju
sinni á framfæri og sagði
með þunga:
- En ég veit það. Þau eiga
ekki eins hjól!
5