Vera - 01.12.1990, Side 22
FEMINISKAR KOKUUPPSKRIFTIR
JOLASMAKOKUR
frá Kristínu Einarsdóttur, Reykjavík:
„Frá því ég man eftir mér
hefur smákökubakstur verið
óaðskiljanlegur hluti jól-
anna. Mamma bakaði alltaf
margar smákökusortir fyrir
jólin. Við systkinin vorum
eins og gráir kettir í kringum
hana til að fá að smakka
kökurnar.
Lyktin frá smáköku-
bakstri hélt áfram að vera
nauðsynleg til að jólin kæmu
í húsið þegar ég fór sjálf að
búa. En það reyndist stund-
um erfitt að finna uppskriftir
sem fljótlegt væri að baka,
þar sem ég hef alltaf verið í
þannig vinnu að mikið
vinnuálag hefur verið í des-
ember og ekki mikill tími
fyrir skemmtilegheit eins og
smákökubakstur. Smákökur
varð þó að baka þótt aðeins
væri tími fyrir eina sort.
Það var fyrir nokkrum ár-
um að vinkona mín gaf mér
uppskrift að smákökum sem
gerði það að verkum að síð-
an hef ég fyrir hver jól bakað
margar sortir af smákökum.
Eg hef reynt að hafa ekki allt
of hátt um uppskriftina þeg-
ar fólk kemur í kaffi og dáist
að öllum smákökusortunum
hjá mér. En hér kemur hún:
Grunndeig:
750 g hveiti
600 g smjörlíki
200 g sykur
Þetta er hnoðað saman og sett
í ísskáp í a.m.k. eina klukku-
stund. Deiginu er síðan skipt
í jafn marga parta og sort-
irnar eiga að vera. Hæfilegt er
að skipta einni uppskrift í
fjóra hluta og fá t.d.:
1. Finnsk smábrauð: Rúlla
deiginu í lengjur, u.þ.b.
langatöng á þykkt og skera
þær í 3 cm löng stykki.
Pensla stykkin með hrærðu
eggi og muldar möndlur og
perlusykur sett ofaná. Bakað
í 10-15 mín.
2. Súkkulaðikökur: Suðu-
súkkulaði brytjað smátt og
hnoðað saman við. Einnig er
gott að setja rifinn appel-
sínubörk með. Búnar til litlar
kúlur sem settar eru á plöt-
una og ýtt ofan á með gafli.
Bakað í 8-10 mín.
3. Kókoskökur: Kókosmjöli
hnoðað saman við. Búnar
eru til kúlur sem eru flattar
út t.d. með spaða eða skeið
þegar þær eru komnar á
plötuna. Penslað með eggi
og perlusykur settur ofan á.
Bakað í 8 mín.
4. Hnetukúlur: Valhnetu-
kjarnar hakkaðir og hnoð-
aðir saman við. Búnar til
kúlur. Bakað í 8 mín.
- Allt er bakað við 200
gráður. Eins og þið sjáið eru
möguleikarnir margir og um
að gera að nota hugmynda-
flugið. Gangi ykkur vel."
KÚRENNUKÖKUR MEÐ KÓKOSMJÖLI
sem bregðast aldrei,
frá Ragnheiði Kristjánsdóttur á Egilsstöðum:
180 gr hveiti (3 dl)
1/2 tsk sódaduft
30 gr kókosmjöl (1 dl)
100 gr smjör/smjörlíki
100 gr sykur (1 dl + 1 msk)
1 msk síróp
1/2 egg eða 1 lítið
1 dl kúrennur, eða: saxaðar
rúsínur, súkkat eða
súkkulaði
Ofninn er hitaður í 200
gráður. Hveiti og sódaduft
sigtað saman, kókosmjöl sett
saman við. Smjörlíki blandað
í með hníf. Sykur og kúrenn-
ur settar út í. Vætt í með
sírópi og eggi. Hnoðað fljótt
saman og kælt, mótað í fing-
urþykkar lengjur, skornar í
litla bita og mótaðar í kúlur
sem er raðað á smurða plötu.
Að lokum er þrýst á kök-
urnar með breiðu hnífsblaði.
Platan er höfð í miðjum ofni
og kökurnar eru bakaðar í
7-10 mínútur.
Ragnheiður segir að þetta
séu „ofsalega góðar" kökur.
FRUMSAMIN MARSIPANOSTAKAKA
frá Eddu Antonsdóttur í Vík:
1 b eplakökurasp
3 b súkkulaðispænir
100 gr mjúkt smjör
600 gr hreinn rjómaostur
1 1/2 b flórsykur
4 msk amaretto-möndlu
líkjör
2 b þeyttur rjómi (tæpl. peli)
Pæform (bökuform) sem
er 24-5 cm í þvermál er
smurt með smjöri. Eplaköku-
raspi, súkkulaðispænum og
smjöri er blandað saman og
þrýst í botninn og upp með
börmum. Kælt í 1 klst.
Rjómaosti hrært saman við
flórsykur og líkjör bætt út í,
hrært vel, því næst er þeytt-
um rjóma bætt í. Þessu er
hellt í formið og látið stífna í
nokkrar klukkustundir í ís-
skáp. Má frysta.
HLAÐVARPINN
Konur, muniö áskorun Veru
BUDDUR ALLRA KVENNA
SAMEINIST
Lítum fyrst á listmarkaö Hlaðvarpans þegar okkur
vantar gjöf. Yfir 100 konur eiga þar listmuni í
umboössölu.
HLAÐVARPINN, Vesturgötu 3.
Opið virka daga kl. 12-18 og laugardaga kl. 10-16.
22