Vera - 01.12.1990, Page 29
Undanfarin ár hafa viðhorf til
líkams- og heilsuræktar breyst
mjög mikið. Flestir gera sér
grein fyrir því að hreyfing er
holl og góð og það þykir ekki
lengur sérviska að borða
léttan og hollan mat. Sífellt
fleiri konur leggja stund á ein-
hvers konar líkamsrækt fyrir
utan hinar hefðbundnu íþrótt-
ir. Aðsókn að sundstöðum
hefur sjaldan verið meiri og æ
fleiri sækja reglulega tíma í
ýmsum líkamsræktarhúsum.
Nú þykir almennt mjög já-
kvætt að stunda einhvers kon-
ar íþróttir. Fólk kemst að raun
um að hreyfingin eykur vel-
líðan og það fær frísklegt útlit.
Þrátt fyrir þetta heyrist oft
neikvætt viðhorf sem er á þá
leið að þetta sé tískusveifla,
háð verslun og markaðslög-
málum eins og aðrar slíkar.
Myndir: Anna Fjóla Gísladóttir
AUKIN HREYFING
band, sagði Hafdís, og allt
þetta hjálpar til við að mynda
jákvætt og gott andrúmsloft í
Kramhúsinu. Kennarar falla
vel inn í og útlendum gesta-
kennurum hefur orðið tíðrætt
um orkuna og jákvæða
strauma. Allskonar fólk, með
margskonar útlit og allsstaðar
að, notfærir sér það sem húsið
býður upp á.
Langfjölmennustu hóp-
arnir eru í leikfiminni, sem
samanstendur af dansi og
teygjum, og í afró-samba
tímum. Dans- og leiksmiðjan
er líka mjög vinsæl og þar er
mikil orka á ferðinni, sagði
Hafdís. Tilraunaleiklistarhóp-
ar fást þar við líkamlega tján-
ingu, raddþjálfun og texta-
meðferð. Börnunum er vel
sinnt í Kramhúsinu, nokkrir
nýútskrifaðir leikarar kenna
MEIRA SJÁLFSTRAUST
Það sé einungis hægt að taka
þátt í hóptímum í líkams-
ræktarhúsum ef fólk er grannt
og helst með fyrirsætuútlit og
þar að auki í dýrum og glæsi-
legum íþróttafatnaði. Það er
reyndar staðreynd að margar
ungar stúlkur eyða miklum
tíma og orku í að losna við svo
og svo marga sentimetra utan
af sér og oft í þeim eina
tilgangi að eiga auðveldara
með að ná sér í maka. Þetta er
hugarfar sem er haldið að
ungu fólki í gegnum skilaboð
glansmynda og yfirborðs-
mennsku og er hér um mikla
afturför að ræða í samfélag-
inu.
Sem betur fer eru konur
almennt ekki gegnsýrðar af
því ofangreinda viðhorfi að
Ííta á sig sem hlut eða viðfang.
Margar konur hafa upp-
götvað að hreyfing og heilsu-
rækt geta gefið aukið sjálfs-
traust og sjálfsvirðingu auk
orku til að takast á við til-
veruna. Þetta gerist ekki síst
með því að uppgötva að við
getum sjálfar ráðið útliti
okkar og líðan, rétt úr bakinu
og fengið tilfinningu fyrir
líkamanum.
í Kramhúsinu, sem er dans-
og leiksmiðja í Reykjavík, er
lögð mikil áhersla á jákvæðar
hliðar líkamsræktar og þar
hafa margar konur tileinkað
sér nýtt lífsviðhorf. I samtali
við Hafdísi Arnadóttur, ann-
an eigandann og kennara í
Kramhúsinu, kom meðal ann-
ars fram að þar getur fólk
öðlast áðurnefnda meðvitund
um líkamlegt ástand sitt.
Ásamt réttri öndun miðar
leikfimin meðal annars að því
að leiðrétta ýmislegt í líkams-
beitingu og fólk fer að ráða
betur við líkamlega erfiðleika
og álagssjúkdóma, til dæmis
vöðvabólgu, bakverk, þreytu,
stirðleika, streitu og þung-
lyndi.
Hafdís sagði ennfremur að
mjög stór þáttur þess árang-
urs sem næst er orkan sem
kemur frá því að dansa með
öðru fólki. Tónlistin og dans-
inn gefa samband við innri
kraft sem ekki er aðgangur að
í daglegu streði og hjálpar við
að leysa allskyns vandamál
sem virðast oft vera óyfirstíg-
anleg. I leikfimitímunum er
dansinn alltaf notaður sem
upphitun fyrir teygjuæfingar
(stundum er reyndar svo
mikið fjör að það er dansað
allan tímann). Meðal dansa
má nefna suðræna sömbu,
frumstæða afríska dansa og
rytmahreyfingar, þjóðdansa,
til dæmis gríska, argentínskan
tangó, ameríska söngleikja-
dansa, stepp og marga fleiri.
Dansinn, tónlistin, öndun-
in og nálægðin við hópinn
gefa fólki mikilvægt jarðsam-
þeim litlu leikrænan spuna og
dans og þau eldri geta farið í
leiklist fyrir börn og unglinga
þar sem jafnvel eru sett upp
lítil leikrit. I vetur bættist svo
við tónlistar- og söngsmiðja
fyrir börn, í umsjón tveggja
óperusöngkvenna. Þá eru
ónefndir danstímarnir þar
sem ballettdansarar kenna
nútímadans og jazzdans en í
þá sækir ungt fólk sér-
staklega. í viðbót við þetta er
boðið upp á allskyns stutt
námskeið, til dæmis í tangó,
steppi, kínversku taichi og
fleiru, að ógleymdum sumar-
námskeiðum fyrir kennara og
fóstrur.
Margar konur koma í
Kramhúsið til þess að losa um
andlega streitu og fá þar
mikla hjálp í gegnum hreyf-
inguna en ekki síður frá
félagsskapnum og jákvæðu
andrúmslofti. Það eru margar
konur sem hafa með aukinni
líkamsrækt öðlast aukna
hreysti og betra útlit sem
leiðir til meiri sjálfsvirðingar
sem svo aftur gerir þær sjálf-
stæðari og betur í stakk búnar
fyrir átök daganna.
HÓ
29