Vera - 01.12.1990, Side 32

Vera - 01.12.1990, Side 32
MANNBÆTANDILEIKHÚS Leikfélag Reykjavíkur: Ég er hœttur! Farinn! Er ekki meö í svona asnalegu leikriti. Höfundur: Guörún Kristín Magnúsdóttir Leiksfjórn: Guöjón Pedersen Dramatúrg: Hafliöi Arngrímsson Leikmynd og búningar: Grétar Reynisson Lýsing: Egill Árnason, Grétar Reynisson, Guöjón P. Pedersen Áhrifahljóö: Jóhann G. Jóhannsson Ég er hættur! Farinn! Er ekki með í svona asnalegu Ieikriti er skemmtileg, einlæg, falleg og fjörmikil sýning. Hér fáum við öðruvísi leikhús en hið venjulega eða hefðbundna. Okkur eru sýndar myndir, stutt atriði, sem eru ekki endi- lega í tímaröð. Textinn sem leikararnir flytja er aðeins einn hlutinn og til þess að búa til heildstæða sýningu eru óend- anlegir möguleikar leikhúss- ins nýttir. Sviðsmyndin, bún- ingar, lýsing, tónlist og leik- hljóð er notað þannig að það minnir oft á kvikmynd (sem er oft sögð vera framlenging á leikhúsinu). Ég er hættur! Far- inn! er með öðrum orðum sérstaklega myndræn sýning sem söngur og dans gæða svo enn meira lífi. Höfundur handritsins, Guðrún Kristín, fékk fyrir það fyrstu verðlaun í leikritasam- keppni L.R. Frumlegar að- ferðir til að sýna samskipti kynjanna og mjög sterkur, kvenlegur undirtónn er eitt af því sem gerir leikritið svo heillandi og kemur skýrt fram þó að Guðrún hafi endur- skrifað mikið af textanum í samvinnu við leikstjóra, dramatúrg og leikmynda- hönnuð. Guðjón, Hafliði og Grétar hafa unnið saman áður að eftirminnilegum sýningum (Stór og smár í Þjóðleikhúsinu og Oþelló í Nemendaleikhús- inu) og þar mátti einnig sjá frumlegheitin, fjörið og kraft- inn sem býr í Ég er hættur! Farinn! Nokkur atriði í sýn- ingunni eru reyndar dálítið Iangsótt og jafnvel langdregin en það kemur ekki að sök. I sýningunni er sífellt verið að koma okkur á óvart með atriðum sem eru á mörkum hins ómögulega; eru hrein- ræktuð úr fáránleikaleikhús- inu. Þar má nefna óróann, 32

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.