Vera - 01.10.1998, Síða 16
Nýlega kom smásagnasafnið Á meðan hann horfir á þig
ertu María Mey ettir unga skáldkonu, Evu
Mínervudóttur, út hjá bókaútgáfunni Bjarti. Eva svaraði
nokkrum spurningum um listina að skrifa, sjálfa sig og
nýju bókina.
H r e i n
þegar mér þykir mér hafa tekist vel til
Eva Mínervudóttur skrifar sögur af hreinni ástríðu.
Hvenær byrjaðir þú að skrifa og af hverju skrifarðu?
„Bömum er eiginlegt að skapa og mér hefur frá því ég
man eftir mér þótt skemmtilegt að búa til sögur. Það á við
um mig ennþá, að ég skrifa af því að ég hef gaman að því.
Síðustu ár hefur svo bæst við kappsfull löngun til að ná
einhvers konar „exelans" og hrein hamingja þegar mér
þykir mér hafa tekist vel til. Mér fer stöðugt fram í því sem
ég er að gera, það er að segja ég uppsker árangur erfið-
is míns, og þess vegna held ég áfram að hamra á lykla-
borðið án minnstu eftirsjár út af tímanum og tárunum sem
það kostar."
Fullkomnunin er þá einhvers konar takmark í sjálfu sér?
Já.
í hverju felst hún?
„Að mínu viti er einfaldleikinn það fallegasta sem til er I rit-
uðu máli og það að geta sagt hlutina án þess að þröngva
þeim upp á lesendur, en það býður auðvitað heim þeirri
hættu að einhverjir ná aðeins broti af því sem textinn á að
geta gefið þeim. Allt á að vera úthugsað en samt sem
áður „spontant". Hvert orð á sínum stað og allur óþarfi
miskunnarlaust skorinn burt. Einnig er mikilvægt að fara
eins hátt og eins langt og maður kemst í hugarflugi en án
þess þó að misbjóða innbyggðri tilfinningu fólks fyrir því
mögulega. Ég leyfi mér að brjóta gegn alls kyns siðum og
venjum og jafnvel lögmálum en aldrei gegn mannlegri
náttúru. Að sjálfsögðu er svo ekki varið í neitt sem ekki
felur í sér einhvern mannkærleik. Ef til vill er það ekki á
færi dauðlegs manns að ná fullkomnun í verkum slnum en
líf hans er örugglega ekki fátækt ef hann eyðir ævinni í að
þoka sér nær og nær takmarkinu sem hann hefur valið
sér.“
Eru smásögurnar Á meðan hann horfir á þig ertu María Mey,
það fyrsta sem kemur út eftir þig?
„Þær eru það fyrsta sem kemur út svona virðulega, í stóru
uþplagi hjá alvöru forlagi. En fyrr í haust gaf ég sjálf út
skáldsögu, Sóley Sólufegri, I aðeins tlu eintökum. Sóley
er fyrsta skáldsagan mín, ég var ekki nema nítján þegar
ég skrifaði hana, og I henni er allt sem mér þykir fallegt og
1B