Vera - 01.10.1998, Side 38
Arnaldur Máni Finnsson
Axjóngleöiskrifari
sem trúir á Guð
þegar hún er á
bömmer
segir þetta sig ekki sjálft?
Hún hefur skrifað fyr\r skúffuna sína og
skólablöð síðan hún var unglingur, hvort
sem það hefur bjargað henni eða bjarg-
að ekki í lífsins ólgusjó þá er hún alla-
vega að hasla sér völl þetta haustið við
langborð í sal skáldanna. Stjórnlaus
lukka kemur út hjá Máli og Menningu í
ungseríu þeirra og er fyrsta bók hinnar
25 ára gömlu Auðar Jónsdóttur.
Kannski er hún stelpukona, eins og hún
kallaði sig í frásögn af sannsögulegum
atburðum; þegar hún giftist Steina
Storm, sem er einhverjum áratugum
eldri, vorið 1996. Kannski er hún ein af
vonarstjörnum íslenskra bókmennta,
hún virðist allavega hafa löngun til
þess; hún vinnur í því þessa dagana að
skapa aðstæður til þess að geta ein-
beitt sér betur að skrifunum. Mann-
eskjan sem maöur hittir eöa sér á förn-
um vegi lítur ósköp venjulega út, hún
vinnur í bókabúð, selur ritföng, og býr
hjá ömmu sinni uppí Mosfellsbæ.
Eldhúspólitík
„Bókin fjallar um mæðgur, 18 ára stelpu og mömmu
hennar. Mamman er af 68 kynslóðinni, svona nettur
bóhem sem ákveður að fara og verða ráðskona vest-
ur á fjörðum. Stelpan er aftur á móti að átta sig á
mömmu sinni og aðstæðum hennar. Gudda ameríska
kemur líka við sögu og þannig verður þetta saga
þriggja kynslóða kvenna, því hún lenti í „hverrar konu
draumaástandi" eins og hún kallar það. Stelpan seg-
ir frá og er mikið að pæla í sögum fólksins á Eyrinni
en það er upp til hópa fólk sem hefur lent í lífsins
ólgusjó; Valdi Popp kemur við sögu ásamt öðrum
trillukörlum og gömlum rollubónda. Fólk hegðar sér
mikið eftir eigin reglum og stelpan veltir því fyrir sér á
meðan hún vinnur I fiski.
Annars er náttúrulega alltaf erfitt að segja frá heilli
bók í stuttu máli, því að það er bókin í heild sinni sem
skiptir máli, það sem ég er að segja frá. Lífssýn kem-
ur aftur á móti ómeðvitað í gegn í öllum bókum. Þó
ég greini það ekki þá gerir þú það kannski."
38