Vera - 01.10.1998, Side 44
Veggspjald í Varsjá gegn ofbeldi á heimilum.
CMÆÍ.KI
Gæsluvellir Reykjavíkurborgar
eru 23 að tölu víðsvegar um borgina
og eru fyrir 2-6 ára börn.
Örugg útivera fyrir börnin.
§| Frjáls leikur í skapandi umhverfi.
Góður félagsskapur með jafnöldrum
undir traustu eftirliti starfsfólks.
Arnarbakki 8
Baröavogur 36A
Bleikjuhvísl 10
Brekkuhús 3
Dalaland 18
Fróðengi 2
Hlaðhamrar 52
Kambsvegur 18A
Ljósheimar 13
Malarás 17
Fannafold 56
Fífusel 38
Freyjugata 19
Njálsgata 89
Rauðilækur 21A
Rofabær 13
Safamýri 30
Stakkahlíð 19
Sæviðarsund
Tunguvegur
Vesturberg 76A
Vesturgata 46
Yrsufell 44
A V \/S,
f.1) I l.c)
T)ct Upplýsingasími: 563 5800
ÞROSKANDI OG ÓRUGG UTIVIST FYRIR BÖRNIN OKKAR
Hann þurfti að fá útrás...
er lausleg þýðing texta á veggspjaldi sem hangir uppi í Varsjá þessa dag-
ana og sýnir barn sem hefur verið beitt ofbeldi. Auglýsingin er til að vekja
fólk til umhugsunar um ofbeldi á heimilum og er framlag kvenréttindafé-
lags Varsjár sem var sett á stofn fyrir atbeina kvenlögfræðinga og -sál-
fræðinga þar í landi. Pólski fjölskylduráðherrann, Kapera, segist hinsveg-
ar ekki hafa fjármagn fyrir svona lagað. í Póllandi er aðeins eitt kvenna-
athvarf, staðsett í Kraká. Umræðan um heimilisofbeldi verður hinsvegar
æ háværari og á síðasta áratug hafa kærur gegn ofbeldishneigöum eigin-
mönnum orðið mun tíðari í Póllandi. Eru pólskir karlmenn þá að færa sig
upp á skaftið? Nei, ofbeldi á heimilum hefur lengi átt sér stað en ástæð-
an fyrir því að málefnið er komið í umræðuna og kærur orðnar tíðari seg- >
ir okkur að konur láta ekki lengur bjóða sér ofbeldisfullt heimilislíf. Fyrir
skömmu buðu Sameinuðu þjóðirnar pólska fjölskylduráðherranum fjár-
magn til að stemma stigu við heimilisofbeldi þar í landi. Kapera afþakk-
aði. Hann segist heldur vilja beita sér fyrir því að halda fjölskyldunum
saman.
Hillary Clinton, Emma Bonino og fleiri stjórnmálakonur vilja styrkja samstöðu
kvenna í austri og vestri.
Systrasamstaða
í fyrrasumar bauð bandaríski sendiherrann í Vín, Swanee Hunt, til alþjóð-
legrar kvennaráðstefnu þar í borg. Yfir eitt þúsund konur í hinum ýmsu
stjórnunarstöðum hvaðanæva að úr heiminum komu saman með það að
markmiði að styrkja samstöðu kvenna í vestri og austri. „Konur eru ekki
pandabirnir sem þurfa hjálp til að vernda dýrategundina," er haft eftir
Emmu Bonino, framkvæmdastjóra hjá EB. „Pað sem við þurfum er
frelsil" Þær sem hafa áhuga á að eignast skýrslu á ensku með fjölmörg-
um myndum, sem gefin var út eftir ráðstefnu kvennanna, geta nálgast
hana ókeypis hjá: „Vital Voices“ c/o USIS, Scmidstr. 14, 1082 Wien,
Austria.
44