Vera - 01.06.1999, Page 37

Vera - 01.06.1999, Page 37
Matur □ g næring Fita eftir Onnu Elísabetu Olafsdóttur Þörf eða óþörf? Fyrir nokkru fékk ég í hendur endurminningar langafa míns. Við lesturinn var mér brugðið vegna frásagna hans af matar- skorti og sulti. Þetta hefði e.t.v. ekki átt að koma mér neitt á óvart þar sem það er þekkt staðreynd í sögu okkar að mat- arskortur hafi verið í landinu á árum áður. Það að þessi stað- reynd sé ekki eldri en svo að ég geti lesið um þær í endur- minningum langafa míns fær mann til að hugsa um þessi mál ekki síst í Ijósi þess að nú, tæp- um 100 árum síðar, er það dag- legur viðburður að fólk þurfi að gæta þess að borða ekki of mikið. Matarframboð á okkar tímum er mikið og freistingarn- ar margar. Afkoma flestra er líka þannig að nægir peningar eru til fyrir mat. Fita er orkurík Þegar orkuþörf er mikil vegna kulda, vos- búðar og líkamlegs erfiðis er feitt fæði mik- ilvægt til að viðkomandi fái næga orku. Fyr- ir 50 - 100 árum var því mikilvægt fyrir fólk að fæðið væri fituríkt og orkuríkt. í dag, þegar líkamlegt erfiði er minna með aukinni taeknivæðingu, góðum húsakynnum og far- artækjum, er fituríkt fæði því óhentugt. Sú orka sem hún veitir er ekki nýtt í brennslu og því sett í varaforða sem aldrei er notað- ur, með þeim afleiðingum að offita verður vaxandi vandamál. Enda er nú svo komið að Alþjóða heilbrigðismálastofnunin hefur miklar áhyggjur af þessarri þróun og telur offitu vera eitt af alvarlegustu heilbrigðis- vandamálum sem að okkur steðja. Fita er nauðsynleg Þótt orkuþörf sé minnkandi þá er fita ekki óþörf. Fita gegnir mjög mikilvægu hlutverki í líkama okkar og úr henni fáum við m.a. lífsnauðsynlegar fitusýrur. Það eru fitusýrur sem líkaminn getur ekki myndað og verður því að fá úr fæðunni. Daglega þurfum við Því að neyta einhverrar fitu. Hlutur fitu í fæðu okkar skyldi ekki vera undir 20% af heildarorku. Fyrir konu með meðalorkuþörf upp á 2000 kkal/dag ætti fituneysla því ekki að vera undir 50 g af fitu á dag. Ef fólk ætl- ar að reyna að reikna út hvað það má þá borða mikið af mismunandi mat, má ekki gleyma því að fáar matvörur eru 100% fita. Fituinnihald nautahakks getur t.d. verið um 10 %. Ef kona með áðurnefnda orkuþörf borðar 100 g af slíku hakki fær hún því um 10 g af fitu eða um 20% af lágmarks dag- skammti. Fita ekki sama og fita ! Fita er mjög mismunandi eftir því hvaðan hún er upprunnin. Flestir eru farnir að kann- ast við boðskapinn að borða mjúka fitu í stað harðrar. Það sem margir virðast mis- skilja er að þetta séu ráðleggingar til að draga úr hitaeiningum en svo er ekki. í einu grammi af fitu er u.þ.b. 9 kkal, sama hvort um er að ræða mör eða ólífuolíu. Smjörlíki er um 80% fita á meðan ólífuolía er 100 % fita. Fyrir hver 100 g af þessum vörum er því ólífuolía meira fitandi en smjörlíkið. Hins vegar eru þetta ólíkar tegundir af fitu og áhrif þeirra á líkama okkar ólík. Fitusýrur Fita er samsett úr fitusýrum og er það gerð fitusýranna sem ræður hvernig fitan er. Fitu- sýrur sem mest er af í mör eru mettaðar fitu- sýrur og mynda þær harða fitu. Fitusýrurn- ar í ólífuolíu eru ómettaðar og mynda því mjúka fitu. Áhrif þessara fitusýra á líkamann eru ólík. Hörð fita veldur hækkun á blóðfitu í líkama okkar á meðan mjúk fita gerir það ekki. Mjúk fita er líka mjög misjöfn eftir því hvaðan hún er upprunnin. Sem dæmi þá eru fitutegundir.eins og ólífuolía og sojaolía ólík- ar þó báðar séu mjúkar. í ólífuolíunni er mik- ið magn af einómettuðum fitusýrum en í sojaolíunni er meira magn af fjölómettuðum fitusýrum. Undanfarna áratugi hafa farið fram rannsóknir á áhrifum mismunandi fitu- gerða á líkamann. í framhaldi af því hafa ein- ómettaðar fitusýrur verið taldar góðar fyrir heilsu manna og þær taldar getað stuðlað að lækkun blóðfitunnar. Af þessum sökum hefur ólífuolían fengið mjög jákvæða umfjöll- un og verið hvatt til neyslu hennar. Lýsi Sjávardýrafita er mjúk fita en hún er frá- brugðin mjúkri jurtafitu. Fitusýrurnar sem mynda sjávardýrafituna eru fjölómettaðar en sérstaða þeirra er að þær eru mjög langar keðjur og ómettaðar. Flestir kannast e.t.v. við að hafa heyrt af EPA og DHA en það eru langar, ómettaðar fitusýrur í lýsi sem virðast hafa ýmis góð áhrif á heilsu manna. Rann- sóknir benda til að þær geti bætt ónæmis- kerfi líkamans og þannig aukið mótstöðuafl okkar gegn sjúkdómum. Þá hafa rann- sóknir sýnt fram á að EPA og DHA séu í minna magni í frumuhimnum hjá fólki sem þjáist af þunglyndi en þeim sem ekki gera það. Af þessu mætti draga þá ályktun að lýsi geti minnkað líkur á þunglyndi. Loks hefur fitusýran DHA verið tengd gáfum þannig að aukið magn hennar stuðli að meiri gáfum. Þessi fitusýra er sérlega mik- ilvæg þegar heili fósturs er að þroskast. Transfitusýrur Transfitusýrur eru fitusýrur sem ekki finnst mikið af í náttúrunni. Þó finnast þær í litlu magni í smjöri vegna efnaferla í maga kýr- innar. Transfitusýrur myndast helst þegar verið er að herða mjúka fitu, eins og t.d. við smjörlíkisgerð. Transfitusýrur eru ómettað- ar fitusýrur en lögun þeirra hefur breyst frá upprunalegri mynd. Þó transfitusýrur séu ómettaðar þá eru áhrif þeirra á líkamann samt frábrugðin þeim áhrifum sem náttúru- legar, ómettaðar fitusýrur hafa. Þannig stuðla transfitusýrur að meiri hækkun blóð- fitu en venjulegar ómettaðar fitusýrur. Auk þess raska þær hlutföllum kólesterólsins þannig að hlutur vonda kólesterólsins verð- ur meiri á kostnað þess góða. Fitufælni Fitufælni okkar kynslóðar er mikil og hefur líklega skapast af hræðslu manna við offitu. Fita er samt gagnleg og okkur nauðsynleg. Magnið þarf bara að vera innan eðlilegra marka og gæta þess að hlutur mjúkrar fitu sé aukinn á kostnað þeirrar hörðu vegna blóðfitunnar. Rétt er þó að vita af því að fita er viðkvæm fyrir þránun, en fita sem hefur þránað er ekki holl. Mjúk fita er mun við- kvæmari fyrir þránun og efnahvörfum tengdum henni og þarf því að varðveita vel. Fitu skal verja gegn Ijósi og súrefni og ekki geyma í of miklum hita. Nokkur bætiefni, t.d. E-vítamín, C-vítamín og beta-karóten, hindra þránun fitu og er því mikilvægt að fá nóg af þessum bætiefnum í fæðunni. Um þessi efni verður fjallað síðar. Höfundur er matvæla- og næringarfræðingur og upp- lýsingastjóri á Rannsóknastofnun fiskiönaðarins. 37

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.