Vera - 01.06.1999, Blaðsíða 23

Vera - 01.06.1999, Blaðsíða 23
Ein áhrifamesta bók kvennabaráttunnar ýmislegt nytsamlegt af lestri Biblíunnar; þar segist hún t.d. hafa fengið tilfinningu fyrir því hvað jafnrétti merkti. Henni leiddust reglur og siðir borgarastéttarinnar - að þurfa að sitja bein í baki og þegja þegar gesti bar að garði - en undir slíka skyldusemi urðu krakkar af hennar stétt nú einu sinni að beygja sig. Sennilega voru æskuár Beau'vo- ir ekki óhamingjusöm nema út frá sjónarhóli hennar sjálfrar, fullþroska konu í andborg- aralegum ham. Hún hélt því stundum fram að örlög manns væru ráðin á tíunda ári og jafnvel á öðru ári í lífi hans. En fyrsta ár lífs hennar hefst eiginlega þegar hún er tvítug og kemst út af heimili foreldra sinna. Þá fyrst fann hún hamingjuna. Beauvoir var upptekin af „hamingjunni", svo mjög að jaðrar við þráhyggju. Hún seg- ir hana vera sitt „eina viðfangsefni". í dag- bókum hennar frá stríðsárunum kemur þetta berlega fram. Þar segir hún frá því sem á daga hennar drífur, í smáatriðum og spyr síðan: „Er ég fullkomlega hamingju- söm?; Eða, aðeins svolítið hamingjusöm? Eða, alls ekki hamingjusöm? „Hún þarf að skilgreina alla upplifun; Ánægjuleg? Þolan- leg? Slæm? Svörin við þessum spurning- um sem hún spyr svo þrálátlega eru næst- um alltaf jákvæð. Eins og henni sé í nöp við að viðurkenna að einhverjar kringumstæður geti verið neikvæðar eða takmarkandi; já- kvæð lausn eða einhverskonar undan- komuleið hlyti að vera til. í bókinni Tout compte fait, eða Uppgjör (1972), eins konar samantekt á því sem hún hefur gert og hugsað yfir ævina, reynir Beauvoir á einum stað að gera grein fyrir þeim 1000 ólíku myndum sem líf hennar hefði getað tekið á sig eftir að hún varð fimmtán ára. En hversu mikið sem hún reynir að ímynda sér aðra möguleika þá finnur hún ekki nema þrennt sem hefði getað farið verulega úrskeiðis: Hún hefði getað veikst alvarlega; hún hefði getað þurft að hætta námi; og hún hefði getað orðið af því að hitta Sartre. Með þessu nefnir hún þau þrjú atriði sem heppn- in og hæfileikar hennar færðu henni: Heils- una (sem gerði henni kleift að vinna allan daginn og um helgar en líka að ferðast út um allan heim); námið (sem veittu henni efnahagslegt sjálfstæði) og Sartre (en hann veitti henni ást og vináttu). Leitin að ham- ingjunni er leiðarminni skrifa hennar. Hún er alltaf að upplifa eitthvað ( fyrsta skipti; „í fyrsta skiptiö" - er rauður þráður í gegnum allt verk hennar: Feneyjar í fyrsta skiptið; Grikkland í fyrsta skiptið; fyrsta hjólið; fyrsta flugvélin; fyrsti kaffibollinn. Þrátt fyrir vel- gengni sína fékk Simone de Beauvoir aldrei nóg. Hún var alltaf jafn þyrst í að uppgvötva eitthvað nýtt, að sjá og upplifa. Alltaf hungruð. Aldrei södd. Þessi lífsþorsti mark- ar skrif hennar og almennt viðhorf til lífsins. Um Hitt kynið Sennilega hefur ekkert ritverk um hlut- skipti kvenna, nema ef vera skyldi Sérherbergi Virginíu Woolf haft eins víðtœk áhrif í kvennabaráttu og Hitt kynið. Það er álit lang flestra franskra feminista, hverjar sem áherslur þeirra kunna að vera, að með bókinni sé framlag Simone de Beauvoir til franskrar kvenréttindabaráttu ómetan- legt. Ekki þótti þó öllum tilskrifin góð þegar fyrstu kaflar Hins kynsins tóku að birtast á síðum tímaritsins Les Temps Modernes, eða Nútímanum, sem Simone de Beauvoir og Sartre stofnuðu í sameiningu í stríðslok. Umfjöllun Beauvoir olli þegar miklu fjaðrafoki. Framámenn í þjóðfélag- inu og þekktir rithöfundar for- dæmdu verkið opinberlega - og opinber- uðu kvenfyrirlitningu sína í leiðinni, vilja sumir meina. Verk eftir konu hafði aldrei fyrr vakið jafn mikla eftirtekt: Virt tímarit birtu ritdóma og umsagnir og í dagblöðum birt- ust tugir greina, margar eftir nafntogaða rit- höfunda. Þannig spurði rithöfundurinn Frangois Mauriac hneykslaður í forsíðu- grein dagblaðsins Figaro hvaða erindi kyn- ferðisleg upplifun kvenna ætti í tímarit um bókmenntir og heimspeki sem vildi láta taka sig alvarlega. í einum ritdómi var bók- in sögð eins konar „uppflettirit kynferðis- legrar sjálfselsku" og „pornógrafía". Beauvoir var kölluð „kynlífssúffragista" og „tilvistaramasóna“. Jean Kanapa, fyrrum nemandi Sartre og ritstjóri bókmenntatíma- rits, fordæmdi „klámfengnar óþverralýsing- ar“ í Hinu kyninu: Manninum þauð hrein- lega við „saurugum hugsunum" Beauvoir. Verkið átti engu að síður sína stuðnings- menn og ekki af verri endanum. Julien Gracq var einn þeirra og hann hrósaði Beauvoir fyrir kjarkmikla bók. Hinn þekkti gagnrýnandi Maurice Nadeau varði Hitt kyn- ið með eftirfarandi orðum: „Gagnrýnendur geta ekki þolað að kona, sem auk þess er heimspekingur, tali opinskátt um kynlíf." Hörð viðbrögð við bókinni má ekki síst rekja til þess að Simone de Beauvoir afhjúpaði og afhelgaði fjöldan allan af „samfélagssáttmál- um“; þeim félagslegu og siðferðislegu gild- um sem voru í heiðri höfð á 4. og 5. áratugn- um. Frá því um 1930 hafði t.d. ríkt mjög römm fjölskyldupólitík sem byggði á hefð- bundnu móðurhlutverki hinnar heimavinn- andi húsmóður: Stjórnvöld veittu alls konar styrki til eflingar fjölskyldunni og hvöttu beinlínis til barneigna. Mæðrum sem stóðu sig vel voru veitt sérstök verðlaun ríkisins. Gríðarleg aukning fæðinga eftir stríð nægði ekki til að sefa áhyggjur manna: ímynd hinn- ar heimavinnandi húsmóður var haldið enn hærra á lofti í lok 5. áratugarins og inn í þann 6. Og kommúnistar og hægri öflin samein- uðust um fæðingarpólitíkina án þess að nokkur hreyfði andmælum. Inn í þetta and- rúmsloft kom bók Simone de Beauvoir eins og þruma úr heiðskíru lofti: Kaflinn sem ber heitið „Móðirin" byrjar á 15 síðna málsvörn frjálsra fóstureyðinga. Hispursleysi Beauvoir og víðsýni má lesa út úr fleiri kaflaheitum; t.d. „Lesbían" og „Kynlífsreynsla kvenna". Þessi heiti nægðu til að sumir fengju hland fyrir hjartað. Með yfirlýsingum sínum um kynferði og kyniíf kvenna vildi Beauvoir sýna fram á að hugmyndir um konuna væru byggðar á túlkun en ekki staðreyndum; að blæðingar og kynlif væru ekki skammarlegir og niðurlægjandi þættir í lífi kvenna, nema í Ijósi goðsagnarinnar um undirskipun kvenna. Opinskáum lýsingum Beauvoir var þannig ætlað að sanna kenninguna sem kristallast í setningunni: „Maður fæðist ekki kona, heldur verður kona.“ Hneykslunargirni manna kom ekki í veg fyrir að bókin seldist, nema síður væri. Salan var gríðarleg og sýndi svo ekki varð um villst að umfjöllunin var tímabær: Fyrstu vikuna seldust 20 þús- und eintök í Frakklandi. Bókin fór í framhald- inu sigurför um heiminn og áður en langt var um liðið frá útkomu hennar var búið að þýða hana yfir á fjölda tungumála. Var á undan samtíö sinni Afstaða Frakka til Hins kynsins og höfundar hefur ætíð verið tvíbent. Þá sjaldan að minnst er á Hitt kynið er það oftar en ekki til Simone lýsti yfir þeirri skoðun sinni að sú kúgun sem konur þyrftu að þola vœri sérstök og að gegn henni þyrftu þaer að berjast í sameiningu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.