Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.01.1912, Qupperneq 12

Freyr - 01.01.1912, Qupperneq 12
6 FJREYR. 4. Xlemens Ólafsson * Kurfi á Skagaströnd í Húnavatnssýslu. — Þegar farið er um Skaga- ströndina, sem leið liggur, og komið er á mel- bakkana utan við Hof, verður flestum ókunn- ugum það á, að eg liygg, að stansa og litast um. En hvað er þarna að sjá. — Neðan við melinn gefur að líta þá sýn, sem stingur mjög í stúf við það, sem maður á annars aðvenjast þar um slóðir. Þar standa þrír bæjir, Hróa- staðir, Kurfur og Oriygsstaðir. A þessum bæj- um öllum hafa verið gerðar miklar jarðabœtur, eftir því sem ■ gerist á Skagaströndinni, og mið- að við það, hvernig þarna er ástatt. Mestar eru og einna myndarlegastar jarðarbæturnar í Kurfi. Klemens hefir búið í Kurfi í 30 ár. Kotið er rúm 3 hundr. að dýrleika, og var í órækt og niðurníðslu þegar hann tók það. Túnið var um 5 dagsl. (1,6 hektara), alt kargaþýft og raklent. Eengust þá af því 16 hestar af töðu. Eyrstu jarðarbætur Klemens þarna i Kurfi voru þær, að hann bjó til safnfor, og hlóð í kringum fjóshaugmn. Síðan byrjaði hann að slétta túnið, og auka það. Er það nú alt slétt, og með útfærslunni sem komin er í rækt, um 7 dagsl. (2,25 hekt.) að stærð. Grefur það nú af sér 140—150 hesta, eða um 20 hesta af dagsláttunni. Ber þessi heyfengur áþreifanlega vott um fyrirmyndarhirðusemi á túni og áburði. Túnið er girt með skurðum og görðum, og er sú girðing öll 484 faðmar eða um 900 metr- ar. Aðrar girðingar um 250 metra. Skurði til að þurka hefir hann einnig gert, og eru þeir um 80 rúmmetra. Auk þessa hefir Klemens gert upphleyptan veg frá bænum og niður að sjónum. Hann er 250 faðmar eða um 475 metra, og 3 metra á breidd. — Þá hefir hann búið til lendingu við sjóinn með ærnu erfíði. Rifið niður tveggja mannhæða háan bakka, til þess að geta sett þar upp skip. JÞað segir hann verið hafa vont verk, því þar var klöpp fyrir, sem rífa þurftí upp. Hefir það verið seinlegt verk og erfitt. Klemens kvartar yfir því í bréfi til mínr að sér hafi gengið seint að auka túnið. Er það eigi svo undarlegt, þegar þess er gætt, að tún- útgræðslan er gerð í mýrarflóa, fúnum og blaut- um. En eigi var um annað land að gera, nema þá langt í burtu frá bænum. En því fylgir jafnan annmarkar og aukið erfiði, með áburðar- flutning o. fl. að taka iand til ræktunar fjarri bæjum. Og eins og á stóð þarna, varð því ekki komið við. 011 þessi umbótaverk hefir Klemens unnið með handafli sinu. Einyrki hefir hann verið fram á síðustu ár. Nú er hann hniginn að aldri og tekinn mjög að lýjast. Kvartar hann yfir því, að mátturinn sé farinn að þverra, til þess að standa í ströngu erfiði við jarðarbætur. „Handleggirnir orðnir lúnir“ segir hann „og gigtin búin að draga úr þeim allan mátt.“ Þó er hann enn þá sístarfandi að því að bæta og prýða kotið sitt, sem hann er nýlega búinn að festa sér. Aður hefir hann verið leiguliði alla tíð. — Eátækur hefir hann jaínan verið, en komist þó vel af og sómasamlega. Börnin eru 6, og flest uppkomin. —- En hvort sem Klem- ens nýtur lengur eða skemur við hér eftir, þá mun Kurfur lengi bera menjar þessa atorku- sama manns. Klemens hefir tvisvar sinnum hlotið verð- laun úr Ræktunarsjóði Islands; það var árin 1902 og 1910. 5. Kristmundur Guðmundsson í Melrakka- dal i Húnavatnssýslu. — Vorið 1882, „hval- vorið“, sem svo er alment nefnt í Húnavatns- sýslu, var Ameríkuhugur þar mikill í mönnum og mjög almennur. Ætlaði þá um vorið fjöldi fólks af landi burt, og einn af þeim var Krist- mundur. Hann var þá 29 ára að aldri og ný- lega kvæntur. Átti fáeinar kindur, sem hann ætlaði að selja áður en hann færi upp í far-

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.