Ljósmæðrablaðið - 01.04.1981, Síða 10
8
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
snjó til að fá nauðsynlegt vatn, sem ég varð að nota við fæðingu,
eftir að hafa farið langan veg í stormi, byl og frosti, og þótti þá
ágætt að hafa áttalínu olíulampa til að lýsa mér við það sem ég
þurfti að gera. Lika kom það fyrir að ég varð að notast við kertis-
skar, eins og raunar gömlu ljósmæðurnar, já, jafnvel aðeins
brugðið upp á eldspýtu meðan ég var að skilja á milli, þegar
hvorki var til kerti né olía á lampa. Þess vegna get ég kannski sett
mig í þeirra spor, sem á undan eru gengnar.
Nú fennir óðurn í gamlar slóðir, síðan hylur fortíðin það sem
annað, eins og vera ber.
Alþjóðaþing Ijósmæðra 1981
Dagana 13.—18. september 1981, verður haldið í
Brighton í Englandi 19. alþjóðlegt þing ljósmæðra, undir
kjörorðinu „Today’s Midwife Tomorrow”, sem mætti
þýða: Nútímaljósmóðirin í framtíðinni.
Að þessu sinni er vegalengdin frá íslandi ekki tiltakanleg,
miðað við þingstaði á liðnum árum, og því óskandi að sem
flestar íslenzkar ljósmæður sjái sér fært að vera með.
Nánari upplýsingar veita Eva Einarsdóttir, sími 43597
(vinnusími Ljósmæðraskóla íslands, um síma 29000) og
Guðrún Björg Sigurbjörnsdóttir, sími 18599.