Ljósmæðrablaðið

Volume

Ljósmæðrablaðið - 01.04.1981, Page 11

Ljósmæðrablaðið - 01.04.1981, Page 11
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ 9 Rannveig Ólafsdóttir Ijósmóöir og hjúkrunarfræðingur Þingið í Osló á vegum Norðurlandaráðs Dagana 24. og 25. sept. 1980 var haldið í Osló þing (forsknings- seminar), um: Fæðingastofnanir á Norðurlöndum, meðgöngu, fæðingu og fyrsta ár barnsins, og var það kostað af Norðurlanda- ráði. Umræðuefni þingsins byggðist á könnunum á þeim reglum, Sem gilda í sambandi við feður og systkini á fæðingastofnunum i Danmörku, Finnlandi, íslandi, Noregi og Svíþjóð, sem Lisbeth Brudal, cand. psyk. hefur gert. Einnig voru ræddar kannanir í sambandi við meðgöngu, fæðingu og fyrsta ár barnsins, unnið af Vibeke Götzsche, cand. Psyk., Lene Lier, lækni og Hanne Munch, cand. psyk. Þessar kannanir voru sendar þátttakendum fyrir þingið og áttu ’T'enn að kynna sér þær til að geta tekið þátt í umræðum og bannig látið í ljós skoðanir sínar á málinu, til þess síðar að miðla öðru áhugafólki (fagfólki) af niðurstöðunum. Pátttakendur (45 talsins) voru ljósmæður, sálfræðingar, fæðinga- og barnalæknar og fleiri sem inn í þessi mál fléttast. Einn fulltrúi frá hverju landi flutti erindi um aðstæður í heima- landinu. Hugmyndin með þessu þingi var að ræða mögulega miðlun/- samvinnu á meðal þjóðanna út frá könnununum m.t.t. fram- haldsmenntunar heilbrigðisstétta á Norðurlöndunum. I lok þingsins voru samþykkt eftirfarandi tilmæli:

x

Ljósmæðrablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.