Ljósmæðrablaðið

Volume

Ljósmæðrablaðið - 01.04.1981, Page 25

Ljósmæðrablaðið - 01.04.1981, Page 25
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ 23 slímhúðinni í leggöngum móður. Hið síðara er málmplata fest á læri konunnar. Þetta tvöfalda jarðsamband dregur mjög úr öllum truflunum, s.s. vegna vöðvahreyfinga eða skjálfta móður. Kerfið metur spennumun móður og fósturs, þar sem rafboð frá hjarta fóstursins ráða mestu. Fæst þannig hjartalínurit beint frá fóstrinu og skráir monitorinn það á strimil. Rafskaut (electrode) sett upp Sprengja verður belgi og útvíkkun þarf að vera 1—2 cm, helst meiri. Rafskautið, löng leiðsla með silfurspíral á endanum, á að skrúfast í höfuð barnsins. (Mynd 6). Þessari leiðslu er komið fyrir Mynd 6. Rafskaut (electrode) með silfurspiral. í mjóu plaströri með handfangi (gripi) á ytri enda, snúningsrör (skrúfari) svo hægt sé að skrúfa spíralinn fastan. Þessu öllu er svo komði fyrir í öðru röri (leiðara), sem hindrar að vírinn krækist í leggöngin þegar verið er að setja rafskautið upp. Þreifað er eftir kolli barnsins, leiðararörið lagt milli tveggja fingra og þrýst fast upp að kollinum. að því búnu er innra rörinu (skrúfaranum) með spíralnum á endanum, ýtt fast fram og snúið einn og hálfan hring og festist hann þá. Þá eru bæði rörin dregin út og eftir situr spír- allinn með áföstum vír, sem síðan er tengdur rafskautinu á læri móðurinnar, og þaðan beint yfir í monitor (mynd 7). Monitorinn telur og skráir fósturhjartsláttinn og skilar honum á þrjá vegu:

x

Ljósmæðrablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.