Ljósmæðrablaðið - 01.04.1981, Blaðsíða 26
24
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
/ fyrsta lagi, með talnaskráningu (digitals). Hjartsláttarhraði
fóstursins, sem tækið endurmetur eftir hvert einasta slag, birtist
stöðugt sem tölustafir á ljósatöflu.
I öðru lagi skráir monitorinn hjartsláttinn á blað með hita-
penna, sem hlykkjótt línurit.
íþriðja lagi er oft hljóð- og ljósakerfi, sem tifar og blikkar við
hvern hjartslátt svo fylgjast má með taktinum á sama hátt og
hægt er að hlusta á hann þegar hjartsláttarhljóðritun er notuð.
Val á tækni við skráningu fósturþjartsláttar (FHR)
Áður minntumst við á hinar svoölluðu áverkalausu aðferðir til
að mæla og fylgjast meðr fósturhjartslætti. Þær má nota til þess
að fylgjast með fóstrinu í móðurkviði, á meðgöngu og í byrjun
fæðingar áður en belgir hafa sprungið og legháls víkkað svo að
hægt sé að koma upp rafskauti. Það er margt sem truflar áður-
nefnda mælingatækni, eins og hreyfingar, líkamsgerð ög almennt
ástand móður, t.d. sé hún kvíðin og með vöðvaskjálfta.
a) Óbeina hjartaafritið mengast af rafboðum frá hjarta (ECG)
og vöðvum móðurinnar (electromyogram) sem hindrar að hægt sé
að telja fósturhjartsláttinn nákvæmlega.
b) Hjartahljóðritun (Phonocardiography) truflast frá utanað-
komandi hljóðum, bæði innan og utan móðurinnar og í fæðingu,
frá hreyfingum móðurinnar og rembingi.
c) Hátíðnihjartahljóðritun (Ultrasound) er því algengust til
þess að skrá fósturhjartslátt, bæði í meðgöngu og í fæðingu fram
að því stigi að bein skráning er möguleg.
Mynd 7. Samlíma upptaka fósturhjarlsláltar og hríða.