Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.04.1981, Síða 27

Ljósmæðrablaðið - 01.04.1981, Síða 27
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ 25 Nú eru flestir monitorar gerðir svo, að nota má bæði beina og óbeina aðferð við fósturhjartsláttarritun. síðan velur sá sem fæðingu stjórnar þá aðferð sem best á við hverju sinni. Þegar tengt er í eitt tæki annars vegar fósturhjartsláttarritun og hins vegar hríðaritun og bæði ritin eru skráð út á sama strimil, vex gildi monitorsins, því þá má sjá tengsl hjartsláttar við hríðir, sem er aðalatriðið og það sem máli skiptir. (Mynd 7). Þessi monitor gefur hríða- og hjartsláttarrit og þannig er skammstöfunin CTG (Cardiotocograph) til komin. Mæling á fósturblóðgösum (Astrup) Frá 1973 hefur það verið vitað að sýrubasajafnvægi fóstursins brenglast verulega í eðlilegri fæðingu. Frá 1961 hafa menn ráðið fyrir þeirri tækni að mæla blóðgös frá fóstri, með því að stinga gat á hársvörð þess með örlitlum hníf og sjúga blóðdropann sem út kemur upp í fíngerða háræðapípu og mæla síðan í sýrubasa- mælingartæki (Astrup). Hver mæling er sjálfstætt inngrip og tekur talsverðan tíma. Þess vegna hefur þetta ekki náð að verða föst rannsókn við fæðingar. Til eru sérhönnuð skaut (electrode), sem fest eru í hársvörð fóstursins og gefa samfellda skráningu á súrefnismettun, CO2 og pH, en þau eru mjög dýr og á tilrauna- stigi. Þegar fósturhjartsláttarrit (CTG) verður verulega brenglað, bendir það til þess að fóstrið líði talsverðan súrefnisskort (hyp- oxia). Þá þarf að ákveða hvort gera eigi inngrip til þess að flýta fæðingu, jafnvel með keisara. Sé hins vegar möguleiki á blóðgasa- mælingu má af henni sjá hvernig fóstrið bregst við þessu. Þoli það álagið án þess að pH brenglist, má bíða svolítið lengur og sjá til hvort álaginu linni, ritið batni og fæðingin geti haldið eðlilega áfram. Það er því öruggt að mæling á fósturblóðgösum á eftir að kom- ast í almenna notkun á stórum fæðingadeildum í framtíðinni. Hlustunarpípan og monitorinn Hlustun með pípu er mikilvæg við allar fæðingar. En hún hefur ákveðnar takmarkanir, sem best koma í ljós við áhættufæðingar. í rannsókn í Bandaríkjunum á 24.863 konum tókst ekki að sýna fram á neitt ákveðið hlustunarpípueinkenni, sem gæfi ábendingu um fósturálag (foetal distress) nema í alvarlegum tilfellum.

x

Ljósmæðrablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.