Ljósmæðrablaðið

Årgang

Ljósmæðrablaðið - 01.04.1981, Side 33

Ljósmæðrablaðið - 01.04.1981, Side 33
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ 31 Réttur konu gagnvart atvinnurekanda sínum Með lögunum um fæðingarorlof almannatrygginga er konum tryggt þriggja mánaða leyfi frá störfum vegna fæðingar. Jafn- framt er tekið fram í lögunum að óheimilt sé að segja barnshaf- andi konu upp starfi og er þetta í fyrsta sinn, sem kveðið er skýrt og afdráttarlaust á um það atriði í lögum. Að vísu er sá fyrirvari gerður, að uppsögn geti verið heimil, ef gildar og knýjandi ástæð- ur séu fyrir hendi. Ekki hefur reynt á þessa reglu þegar þetta er rit- að, en telja má öruggt að óheimilt er að uppsögn tengist meðgöng- unni að nokkru leyti. Sem dæmi um gildar og knýjandi ástæður í þessu sambandi má hins vegar nefna samdrátt í rekstri fyrirtækis eða brot konu í starfi. Fyrirkomulag fæðingarorlofsgreiðslu Heimilt er að hefja greiðslu fæðingarorlofs allt að mánuði fyrir áætlaðan fæðingardag barnsins, sem staðfestur skal með læknis- vottorði. Ef kona vinnur utan heimilis, getur greiðsla þó aldrei átt sér stað nema vinnuveitandi staðfesti að kona hafi tekið orlof frá störfum (eða sé hætt störfum). Ef sótt er um greiðsluna eftir fæðingu barnsins, miðast fyrsta greiðslan við fæðingarmánuð barnsins. Greiðslur fara ávallt fram í þrennu lagi, og gildir það jafnt um heimavinnandi húsmæður sem útivinnandi konur. Umsækjendur, sem lögheimili eiga í Reykjavík, snúi sér til Tryggingastofnunar ríkisins. í öðrum umdæmum snúi þeir sér til umboða almannatrygginga, sem eru á vegum sýslumanna- og bæjarfógetaembætta. Fæðing 1. október — 31. desember 1980 Enda þótt lögin um greiðslu fæðingarorlofs almannatrygginga hafi gengið í gildi 1. janúar 1981, geta þó konur, sem ólu barn á tímabilinu 1. október — 31. desember 1980, átt rétt til greiðslu fæðingarorlofs í einn til þrjá mánuði. Hér er einungis átt við þær konur, sem á þessu tímabili voru réttlausar á þessu sviði, s.s. hús- mæður og bændakonur.

x

Ljósmæðrablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.