Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.04.1981, Síða 37

Ljósmæðrablaðið - 01.04.1981, Síða 37
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ 35 Intervillus spasein eru mynduð frá lacunae í syncytotropho- blastinu og eru ávallt þakin syncytium. Villus trén vaxa inn í intervillusrúmin. Á 4. og 5. mánuði myndar desidua skilrúm — „Desidua septa” sem skaga inn í intervillus rúm, en ná ekki chorion plate. Skilrúm- in eru þakin syncytotrophoblasti. Skilrúmin skipta fylgjunni í 15—20 hluta — „cotyledons” — þar sem desidua septa ná ekki chorion plate, viðhelst sambandið milli cotyledons. Blóðrás fylgju Maternal blóðrás Aa. spiralis, greinar frá a. uterina í endometrium fara um desi- dua basalis, í intervillus holrúmin með nokkuð reglulegu millibili. Nokkrar greinar fara í hvern cotiledon. Blóðþrýstingur í aa. spir- alis er 70—80 mm hg. Op aa. spiralis á yfirborði desidual plate eru mjó. Blóðið spýtist inn í intervillus holrúmin í átt að chorion plate og heldur henni aðskildri frá desidual plate. Blóðþrýstingur í intervillus holrými er ca. 10 mmHg. í hvíld en ca 30—50 mmHg. í hríð. Blóðið streymir til baka um op venae í desidual plate undir 8 mmHg. þrýstingi. Rúmmál intervillous hol- rúma er ca 175—250 ml. Talið er að blóðflæði í fylgju á mínútu sé ca. 500—600 ml. Blóðflæði í legi á mínútu er talið vera 500—750 ml. Betra blóðflæði er i legi hjá fjölbyrju en frumbyrju. í fæðingu minnkar blóðflæði í legi. Talið vera ca. 500 ml. per mín. í hvíld, en ca. 200 ml. per mín. í hríð, sem orsakast af sam- drætti í venum en arteriurnar haldast opnar. í hvíld streymir blóð- ið frítt til baka um venae uterinae. Snemma á meðgöngu verða breytingar á aa. spiralis, úttútnun verður á endotheli æðanna og hrörnunarbreytingar í vöðvalagi æðanna. Örsökin er óþekkt, en talið geta verið svörun við innvexti cytotrophoblast frumanna í æðaveggina, eða þjóna þeim tilgangi að hægja á blóðstreyminu. Foetal blóðrás í villusum fara fram efnaskipti milli blóðs móður og barns. Frá villusum berst súrefnisríkt blóð til barns um v. umbilicalis (sem er 1 æð) og súrefnissnautt blóð frá barni um aa umbilicalis (sem eru

x

Ljósmæðrablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.