Ljósmæðrablaðið - 01.07.1988, Side 17
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
17
Einnig frá áætlunum okkar um afmæli LMFÍ 1989, þ.e. samkomu,
nýju útliti blaðsins okkar og nýrri nælu. Skýrt var frá samningsréttar-
lögum okkar og því að LMFÍ, HFÍ, FHH og hin ýmsu bæjarfélög
semja um laun ljósmæðra eftir félagsaðild að kjarafélagi. En allar
ljósmæður geta átt aðild að LMFÍ sem fagfélagi.
Skýrt var frá því góða samstarfi um launamál ljósmæðra hjá ríkinu
við HFÍ og lofúð sú aðstoð og sá stuðningur sem þær veittu okkur.
Einnig var skýrt frá ráðstefnu þeirri sem LMFÍ gekkst fyrir í aprfl
um sængurlegu.
DANMÖRK:
Dönsku ljósmæðurnar fluttu næst sína skýrslu. í Danmörku er
loksins komið Heilbrigðisráðuneyti sem mun hafa yfirumsjón með
öllu heilbrigðisstarfí í landinu. Nýjar starfsreglur hafa verið unnar af
,,Sundhedsstyrelsen“ í Danmörku um AIDS og HIV og er
aðalpunkturinn í þeim sá að nú er litið á alla sem hugsanlega smitaða.
Þegar þessar reglur verða fullunnar mun danska ljósmæðrafélagið
taka afstöðu til hvort ástæða sé til að setja sérstakar reglur um starf
ljósmæðra, s.s. hvað varðar fæðingar. Námskeið á vegum danska
ljósmæðrafélagsins um AIDS-skilgreiningu, faraldursfræði, einkenni,
smitleiðir og fyrirbyggjandi starf hafa verið haldin og verða áfram.
Takmarkið er að allar danskar ljósmæður hafa sótt þessi námskeið
innan tveggja ára.
Spurningin um það hvort lækka beri fósturlátsmörkin úr 28 vikum
í 24 vikur hefur vaknað og leitaði danska Dómsmálaráðuneytið eftir
áliti danska ljósmæðrafélagsins á því. Ályktuðu þær að ekki skuli færa
mörkin niður og bentu m.a. á að hægt sé að framkvæma fóstur-
eyðingar allt fram á 22. viku.
í Danmörku hefur verið sett á laggirnar nefnd sem fjallar um
kvartanir almennings á störfum heilbrigðisstétta. Ljósmæðrafélagið á
rétt á að tilnefna 2 ljósmæður sem munu taka þátt í umfjöllun á
kvörtunum á störfum ljósmæðra.
FINNLAND:
Eitt stærsta mál þeirra á liðnu ári var starf að breyttu ljós-
mæðranámi, sem er liður í breytingu á námi allra heilbrigðisstétta
landsins. Hófst þessi breyting í haust, en tilraunanám eftir þessum
reglum hefur staðið í nokkur ár og breytingar þróast jafnhliða.