Ljósmæðrablaðið - 01.07.1988, Page 31
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
31
heppilegan poll til þess að stinga í. Farið er með granna nál í gegn um
kvið konunnar og inn í legholið og dregnir út u.þ.b. 12 ml af legvatni
og er þá reynt að fara framhjá fylgju og fóstri. Áhætta samfara
sýnatökunni er lítil fyrir móður og bam. Það er talið að um 1 af
hverjum 200-250 konum missi fóstur af þessum orsökum. Úrvinnsla
prufunnar tekur 2 vikur.
Ef niðurstaða rannsóknar gefur til kynna litningagalla er konunni
boðið upp á fóstureyðingu.
Chorion biopsiur hafa verið gerðar síðan 1984, en aðeins nokkrar
á ári og er þessi rannsókn enn á tilraunastigi hér og ekki farið að bjóða
upp á hana í staðinn fyrir legvatnsástungu. Ábendingar fyrir chorion
biopsiu er þær sömu og fyrir legvatnsástungu. Kosturinn við slíka
sýnitökur er að úrvinnslan tekur aðeins 2 daga og sýnitakan er gerð
við 8,—10. viku meðgöngu, þannig að konan er komin mikið styttra
á leið þegar niðurstöður liggja fyrir heldur en ef um legvatnsástungu væri
að ræða. En leggja þarf ríka áherslu á það að áhættan samfara þessari
aðgerð er 5- 10 sinnum meiri en við legvatnspróf.
Chorion biopsian er gerð undir sónartækinu og grönnum catheter
rennt upp í gegnum leggöng og inn í leghálsinn og upp í æðabelginn
og er þar sogað út sýni. Á sónarskerminum sér maður hvar
catheterinn er staddur og er auðveldlega hægt að beina honum á réttan
stað. Önnur aðferð er til og er hún minna notuð hér enn sem komið
er og er þá farið með granna nál í gegnum kvið konunnar og inn í legið
og í æðabelginn.
Það sem verður nýjast hjá okkur í næstu framtíð er að við fáum
ómhaus sem hægt er a fara með upp í leggöng konunnar og er þá hægt
að komast nálægt eggjastokkunum og leginu. Verður þessi tækni
notuð í sambandi við forrannsóknir fyrir glasafrjóvganir, og fyrir
konur með ófrjósemisvandamál. Með þessari tækni má greina þungun
við 4 og 1/2 viku frá síðustu tíðum sem er 1/2 viku styttra en við
höfum áður getað gert.
Hér hefur aðeins verið stiklað á stóru í sambandi við sónar-
rannsóknir. Enginn efast lengur um gildar sónartækninnar.
Góð sónarskoðun gerð á réttum tíma er lykillinn að öllum rann-
sóknum, skoðunum og ákvarðanatöku seinna á meðgöngunni.
En hafa ber ætíð í huga að sónartæknin er aðeins hlekkur í langri
keðju rannsóknaraðferða og góð mæðraskoðun verður alltaf horn-
steinn að „öryggi á meðgöngu“.