Freyr

Volume

Freyr - 01.01.1919, Page 18

Freyr - 01.01.1919, Page 18
12 i'REYR Skálm og Hólmsá leiddi það, að ógurlegur vöxtur hljóp í Kúðafljót. Elæddi það yfir bakka sina og nærliggjandi löud, og skemdi eða eyðilagði nokkrar jarðir, Sanda í Meðal- landi, Sandasel og Melhól. Eióðið reyf með sjer hvað sem fyrir var, og fórust i því bæði hross og sauðfje frá þessum bæjum. Eins gerði vatnsflóðið mikið tjón í Álfta- verinu, eyðilagði þar miklar engjar tiiheyrandi Jórvíkurhryggjura, Holti og fleiri bæjum. Aska fjell mikil, og hennar varð vart nálega um land alt. En mest tjón varð af öskufall- inu i Skaftártungunni, Álftaverinu, Meðalland- inu, Út-Síðunni, Austur-Mýrdalnum og i upp- sveitum Rangárvallasýslu. Lítur helst úc íyr- ir, að næstum hálf Skaftártungan fari af, og leggist i eyði. Og allar jarðirnar í þeirri sveit eru meira og minna stórskemdar. Að öðru leyti skal hjer ekki rætt frekar um þetta stórfelda gos úr Kötlu, en vísa hjer til stórfróðlegra ritgerða um það i blaðinu „Fiónu (I. árg. 1918, tölubl. 44—46) eftir Gísla hreppstjóra Magnússon, i Norður-Hjáleigu í Álftaveri, og í “ísafoldu (XLY. árg. 1918, tölubl. 56) eftir Kjartan Magnússon i Hjörleifs- höfða. í nóvember og desembermánuðunum gekk skæð kvefpest (,.influensa“) um alt Suðurland að Jökulsá á Sólheimasandi, ogVestfirði. Einna skæðust var veikin i Reykjavík, um Árnes- sýslu, einkum í Elóanum, utanveðri Rangár- vallasýslu og sumstaðar á Vestfjörðum. Dóu margir úr henni, og flest fólk á besta aldri. Áttu margir um sárt að binda. í Reykjavík munu hafa dáið úr veikinni um 260 manns, í Árnessýslu um 50, i Rangárvallasýslu um 20, o. s. frv. — Að veikin barst ekki út meira en þetta, var að þakka sóttvarnarráðstöfunum, er gerðar voru á síðustu stund. Gísli sýslumað- ur Sveinsson í Vík, reið þar fyrstur á vaðið, og bannaði allar samgöngur við sitt hjerað, og tókst að verja það. Ýms önnur hjeruð, þar sem veikin enn var ekki komin, fylgdu dæmi hans, og tókst þannig að hindra útbreiðalu hennar. Um verslunina er svipað að segja og árið næsta á undan. — Dýrtíðin enn þá meiri og tilfinnanlegri, og verð á útlendri vöru fór sí- felt hækkandi. Útsöluverö á halstu vörutegundum í Reykja- vik i snmar er leið var þetta: Rúgmjöl (100) kg..................63 kr. Haframjöl — 45 — Hveiti — (besta teguud) 80 — Hrísgrjón — 106 — Maismjöl — 74 — Bankabygg — 72 — Kol smálest .................... 325 — Sykur 35 kg.......................51 — — í smásölu .............kr. 1,50 Kaffi 1 kg....................— 2,20 Salt — ..........— 0,35 Út um land í kauptúnum var útsöluverð- ið víðasthvar hærra. Sem dæmi má nefna, að það átti sjer stað víðar en á einum stað, að rúgmjöl kostaði 80 kr. 100 kg.. haframjöl 116 kr., hveiti 120 kr., sykur kr. 1,80 kg., o. s. frv. Verðhækkunin á ýmsum vörum frá því ár- ið 1914 nam, samkvæmt þvi sem Hagtíðindin segja, miðað við smásölu i Reykjavík 1918, því sem hjer segir: Rúgmjöl ......................... 253 °/0 Hveiti........................... 268 — Bankabyggsmjöl ...................231 — Hrisgrjón.........................281 — Haframjöl........................ 209 — Baunir um ....................... 400 — Kartöflur........................ 325 — Hvítasykur .......................181 — Kaffi ............................ 58 — Smjörlíki........................ 283 — Matarsalt........................ 306 —

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.