Ljósmæðrablaðið

Volume

Ljósmæðrablaðið - 15.11.2006, Page 4

Ljósmæðrablaðið - 15.11.2006, Page 4
Ritstjóraspjall Það er alltaf sérlega góð tilfinning þegar blaðið okkar er að fæðast og ánægjan er enn meiri þegar það inniheldur svo fjöl- breytt efni eins og nú er. I þessu 2. tölu- blaði 84. árgangs Ljósmæðrablaðsins birtast nefnilega greinar sem ná yfir allt barneignarferlið, þ.e. meðgöngu, fæð- ingu og sængurlegu. Til viðbótar við fjölbreytt efnisval má nefna að höfundar koma úr ýmsum áttum; það eru ljósmæðranemar, Ijós- mæður með mislanga starfsreynslu að baki og sfðast en ekki síst segja konur frá eigin reynslu. Ljósmæður hafa í vaxandi mæli tekið óhefðbundnar aðferðir inn í meðferð og umönnun kvenna. Meðal þeirra er nála- stungumeðferð en notkun hennar hefur aukist hratt síðustu árin hér á landi, sér- staklega eftir að Ljósmæðrafélagið hóf að standa fyrir námskeiðum fyrir félags- menn. I síðasta tölublaði mátti finna samantekt á rannsóknaniðurstöðum um nálastungumeðferð í fæðingu og er nú haldið áfram með nálastungurnar, en að þessu sinni er til umfjöllunar gagnsemi þeirra við grindarverkjum á meðgöngu. Eins og ljósmæður þekkja er það býsna algengur nteðgöngukvilli og því fengur að því er tvær nýútskrifaðar Ijósmæður, þær Helga Sigurðardóttir og Stefanía Guðmundsdóttir birta nú grein upp úr lokaverkefnum sínum síðastliðið vor. Þar eru birtar niðurstöður forprófunar á spurningalista ásamt viðtölum við konur um reynslu af nálastungumeðferð vegna grindarverkja á meðgöngu. Fæðingarsögur eiga ávallt sinn sess í umræðum, bæði meðal kvenna og hjá ljósmæðrum. A því leikur enginn vafí að við getum dregið af þeim mikinn lærdóm til að bæta inn í reynsluþekk- ingu okkar ljósmæðra. í þessu blaði eru þrjár fæðingarsögur sagðar frá mismun- andi sjónarhóli, frá mismunandi tímum og úr ólíkum menningarheimum! Um er að ræða upplifun Eddu Guðrúnar Kristinsdóttur ljósmóður af bameign- arferlinu, upplifun Kötlu Sigurðardóttur af fæðingu dóttur sinnar fyrir tæpum þrjátíu árum og svo upplifun Evu Laufeyjar Stefánsdóttur ljósmóðurnema af fæðingu við gjörólíkar aðstæður miðað við það sem við eigum að venj- Valgerður Lísa Sigurðardóttir Ijósmóðir ast í okkar samfélagi. Það er ekki laust við að það læðist að manni sú hugsun að munurinn sé hverfandi þrátt fyrir ólík menningarsamfélög og mismun- andi tíma. Er það kannski svo, þegar allt kemur til alls, að menning og annar bakgrunnur hafi ekki svo mikið að segja þegar um er að ræða svo eðlilegan þátt í lífi hverrar manneskju eins og fæðing barns er? A forsíðumyndinni má sjá kunnuglegt gleðibros nýbakaðrar móður eftir fæðingu. Hún fæddi í fæðingarskýli í Malaví við ákaflega framstæð skilyrði, en fæðingarsögu hennar fáum við að líta á síðum blaðsins ásamt fleiri myndum þaðan. Myndirnar tala sínu máli en það fyrsta sem kom upp í huga mér var hve þetta er í raun og veru líkt, sama gleðin ríkir hvar sem bamsfæðing á sér stað; hvort sem það er í fæðingarskýli Fanesu eða á hátæknisjúkrahúsi. Ometanlegar heimildir um sögu okkar er að linna í minningabrotum frá 6. áratugnum sem hér birtast en það eru Ljósurnar sem eiga heiðurinn af því að safna þessum minningabrotum saman. Að þessu sinni er höfundurinn Kristín I. Tómasdóttir en í síðasta blaði voru minningabrot eftir Maríu Björnsdóttur. Vönandi verða þessi skrif til að hvetja fleiri ljósmæður til að taka sér penna í hönd og skrá sögur og minningabrot, því allar höfum við frá einhverju að segja. Það er mjög mikilvægt fyrir Ijós- mæðrastéttina að sagan okkar glatist ekki. Vissulega hafa tímarnir breyst og nám í ljósmóðurfræði líka, en það má greina í skrifum Kristínar nrargt sem er í fullu gildi enn í dag. Hver kannast t.d. ekki við hvernig tilfinnig það er að fá „fyrstu fæðinguna sína”? Ljósmæðranemar dagsins í dag eru ekki síður mikilvægir fyrir ljósmæðra- stéttina, heldur en þær sem lokið hafa starfsferlinum. Með ljósmæðranemum blása ferskir vindar. Þær hafa tækifæri til að horfa á bameignarþjónustuna frá öðrum sjónarhóli en þeir sem hafa starf- að í henni um lengri eða skemmri tíma, kannski er hægt að líkja því við að þær sitji í stúkusæti! í nafni Oddrúnar, félags ljósmæðranema nefnist grein þeirra „Glöggt er gests augað” og þar lýsa þær því sem þær sjá úr stúkusætinu, gagnrýna og koma með athyglisverðar tillögur um hvað mætti betur fara. Við könnumst allar við það að umræður um ýmis málefni fara í hringi. Eitt dæmi um það eru sitjandi fæðingar og þarf ekki langan starfsaldur til að muna tímana tvenna í sambandi við stefnur og strauma um sitjandi fæðing- ar. Þegar undirrituð var Ijósmóðurnemi fyrir 10 árum, var það kannski ekki daglegt brauð að sjá barn fæðast um fæðingarveg, í sitjandi stöðu, en það var þó alltaf öðru hvoru sitjandafæðing á fæðingardeildinni. Svo breyttist það og um árabil var það svo að það þóttu stórtíðindi ef barn fæddist eðlilega í sitjandi stöðu. I tveimur greinum hér eru þessar breytingar til umfjöllunar, þar sem rýnt er í orsakir þessarar þróun- ar og rannsóknir um sitjandi fæðing- ar. Önnur greinin er dagbókarverkefni Maríu Haraldsdóttur ljósmóðumema, þar sem upplifun hennar af að vera viðstödd sitjandafæðingar kemur fram og hún rýnir síðan í hvað fræðin segja um fæðingarmáta barna í sitjandi stöðu. Þama er í raun dæmi um hvemig nota má fæðingarsögur til að draga af þeim lærdóm. Hin greinin er unnin af Önnu Sigríði Vemharðsdóttur ljósmóður og meistaranema, en til viðbótar við umfjöllun um sitjandafæðingar og rann- sóknir setur hún fram hugleiðingar sínar 4 Ljósmæðrablaðið nóvember 2006

x

Ljósmæðrablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.