Ljósmæðrablaðið

Volume

Ljósmæðrablaðið - 15.11.2006, Page 6

Ljósmæðrablaðið - 15.11.2006, Page 6
Avarp formanns Það er ljósmæðrum bæði ljúft og skyll að standa vörð um hagsmuni skjólstæð- inga sinna. Við þekkjum það vandamál hversu máttlítill þrýstihópur barnshaf- andi fjölskyldur eru; barneignarferlið er parinu sjaldnast hugleikið í meira en ár að sinni og hefur það þá um margt annað að hugsa en samfélagslega hags- munabaráttu. Þess vegna ber ljósmæðr- um rík skylda til þess að beita sér fyrir hagsmunum barnshafandi fjölskyldna. Nú eru Alþingiskosningar eftir hálft ár og því mátuleg tímasetning til þess að ljá þingflokkunum skrautfjaðrir fyrir kosningabaráttuna. Af mörgu er að taka, því barnafjölskyldum er nú ekki bein- línis hampað í okkar samfélagi. Mig langar þar fyrst að nefna skort á val- möguleikum í bameignarþjónustunni, bæði hvað varðar meðgönguvernd og fæðingarhjálp. Víða á landsbyggðinni er skortur á barneignarþjónustu yfir- leitt. Fæðingarstöðum hefur fækkað og því þurfa barnshafandi konur af lands- byggðinni nú oft að sækja langan veg á næstu fæðingardeild með ærnum til- kostnaði og röskun á fjölskyldulífi. Annað mál sem mikilvægt er að vekja athygli á, er ósanngjam útreikn- ingur greiðslna í fæðingarorlofi, en þær greiðslur geta einungis numið 80% af meðaltekjum síðustu tveggja ára. Þessi aðferð kemur námsfólki og þeim sem eignast börn með stuttu millibili, sérlega illa og er það efni í heila umræðu sem ekki verður farið út í hér. Það mál sem ég ætla að gera að umræðuefni mínu hér er lengd fæð- ingarorlofs. Svigrúm til fæðingarorlofs fyrir konur er hvað minnst hér á landi af öllurn Norðurlöndum. Auk þess er heildarlengd fæðingarorlofs hér, styst meðal Norðurlandaþjóða og greiðslur sem hlutfall af launum, næstminnstar. Við erum að vísu afar stolt af þeirri þróun sem varð í kjölfar nýrra áherslna í fæðingarorlofslöggjöf sem stuðla áttu að aukinni þátttöku karla í fæðingaror- lofi og áhriftn létu ekki á sér standa. A aðeins átta árurn (1995 til 2003) fjölgaði þeim körlum sem tóku fæðingarorlof úr 0,1% í 85-90% og erum við þar fremst allra Norðurlandaþjóða. Þessi þróun hefur mjög jákvæð áhrif á jafnréttisbar- Guðlaug Einarsdóttir; formaður LMFÍ áttu en eftir sem áður, hefur fæðing- arorlof íslenskra kvenna ekki lengst í 20 ár, eða síðan fæðingarorlof var lengt úr þremur í sex mánuði árið 1986. Á sama tíma hefur atvinnuþátttaka kvenna aukist talsvert og er hér ein sú mesta í heiminum. Vegna þessara nýju áherslna í löggjöf um fæðingarorlof og árangurs af þeim með aukinni þátttöku karla í fæðing- arorlofi, er alltaf viss hætta fólgin í því að nefna lengingu fæðingarorlofs fyrir konur. Hættan liggur í því að þá gæti konum á barneignaraldri orðið erfiðara um vik á vinnumarkaðnum vegna ótta atvinnurekanda við aukakostnað vegna fæðingarorlofa þeirra og því frekar séð hag sinn í að ráða karlmenn til starfa. Það er þó löngu orðið tímabært að tryggja fæðingarorlof í lok meðgöngu. Ljósmæður muna eftir þeirri umræðu sem kom fram fyrir ári síðan, þegar barnshafandi konur voru tæpitungulaust sakaðar um að misnota veikindavottorð til þess að lengja fæðingarorlof fyrir fæðinguna. Það gefur auga leið að með- ganga og fæðing eru eldri mannkyn- inu sjálfu og er því engin nýjung til að klekkja á framleiðni nútíma samfé- lags. I stríðinu á móti sjúkdómsvæð- ingu meðgöngu og fæðingar síðastliðna áratugi, hafa ljósmæður og fleiri bent réttilega á að meðganga og fæðing séu ekki sjúkdómur. Þessa staðreynd hefur samfélagið hins vegar tekið svo samhengislausa, að fyrst ekki er um sjúkdóm að ræða, þá sé engin þörf á sérmeðferð, hvorki varðandi atvinnu né daglegt líf. Barnshafandi konur þekkja viðhorf eldri kynslóðarinnar sem helst vill pakka konum inn í bómull alla meðgönguna. Þetta viðhorf heyrir nú að mestu sögunni til og ætlast er til þess af barnshafandi konum að þær vinni störf sín með jafnmiklum afköstum og áður, enda sé meðganga ekki sjúkdómur. Það er því hætta á að þessi lotningarfulla umhyggja eldri kynslóðarinnar, fyrir barnshafandi konum ntuni hverfa með þeirri kynslóð. Þó meðganga sé ekki sjúkdómur er eðlileg meðganga, hvað þá heldur óeðlileg, gríðarlegt álag á líkama konu. Því er ómögulegt að nota staðlaða mælistiku sjúkdóma og heil- brigðis á meðgöngu til þess að meta vinnugetu barnshafandi konu. Síðastliðið vor voru birtar í Tidskrift for Jordempdre niðurstöður danskrar rannsóknar sem byggð var á mæðraskrám tíu ára tímabils, frá árinu 1994 til árs- ins 2004. Rannsóknin sýndi þær sláandi niðurstöður að fyrirburafæðingum hafði ljölgað um 52% í þeim hópi kvenna sem annars hafði enga áður þekkta áhættu- þætti fyrir fyrirburafæðingar. Allar skýr- ingar sem reynt var að finna, gátu aðeins skýrt hluta þessarar miklu aukningar en eini þátturinn sem gat hafa breyst á svo stuttum tíma var streita. Á Islandi erum við með eindæm- um vinnusöm og gemm þær kröfur á bamshafandi konur að þær vinni allt fram undir væntanlegan fæðingartíma og hvað hetjulegast þykir að vinna fram á sjálfan fæðingardaginn. Samkvæmt núgildandi lögum er fæð- ingarorlof 39 vikur í heildina þar af eru 13 vikur bundnar móður, 13 föð- ur og 13 vikum geta foreldrar skipt á milli sín. Lögin hvetja því konur til að vinna sem lengst á meðgöngu. Móðirin hefur vissulega rétt á því að byrja töku fæðingarorlofs mánuði fyrir áætlaðan fæðingardag, en fæðingarorlofið er svo stutt, að fæstar hafa tök á því að fóma hluta þess fyrir fæðinguna, því með því móti skerðir móðirin þann tíma sem hún 6 Ljósmæðrablaðið nóvember 20Q6

x

Ljósmæðrablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.