Ljósmæðrablaðið - 15.11.2006, Side 12
Tafla 8: Breyting á áhrifum grindarverkja á getu til daglegra athafna á
meðferðartímabili
Hafa grindarverkir haft áhrif á getu þína til að sinna daglegum athöfnum síðastliðna viku ? Upphaf Miðvik Lok
Gild % Gild % Gild %
Nei 5% 5% 18%
Sjaldan (1-3 í viku) 5% 10% 6%
Nokkrum sinnum í viku (4-6 sinnum) 5% 5% 12%
A hverjum degi 65% 60% 41%
Oft á dag (oftar en þrisvar sinnum á dag) 20% 20% 23%
Samtals 100% 100% 100%
Tafla 9: Niðurstöður viðtala
1) Af hverju ekki að prófa? Ástæður þess að konurnar ákváðu að prófa nálastungumeðferðina
2) Hafði áhrif á allt Lýsing á áhrifum grindarverkja á líf kvennanna Lýsing á verkjaupplifun kvennanna
3) En hvernig upplifðir þú meðferðina? Lýsing á upplifun meðferðar Jákvæðir / neikvæðir þættir
4) Það hefur eitthvað gerst Lýsing á væntingum kvennanna Lýsing á árangri meðferðar Viðhorf til áframhaldandi meðferðar
5) Það væri rosalega gaman ef þetta væri aðgengilegt Viðhorf kvennanna til þess hvort bjóða ætti upp á nálastungumeðferð við grindarverkjum á meðgöngu Hvemig þær sjá slíka þjónustu fyrir sér og hvort þær myndu mæla með henni
orðin mjög slœm tveimur dögum seinna,
svo það er engin spurning ”.
Meðferðin bar ekki jafngóðan árang-
ur fyrir allar konurnar. Tvær þeirra voru
ekki eins vissar um árangur meðferð-
arinnar en voru samt vissar um að hún
hefði skilað einhverju eða „að eitthvað
hefði gerst“. Ein sagði til dæmis;
„...jú ábyggilega hefur hún skilað
einhverju, ég var skárri eitthvað aðeins
á eftir þetta finnst mér“.
Seinna í viðtalinu sagði hún líka;
„Eg held að verkirnir hafi líka alveg,
þeir hafi breyst. Mérfannst ég stundum
sofa betur [...] en sumir verkirnir hafa
skánað sko “.
Aðeins einni konu af þessum átta
fannst nálastungurnar ekkert gera fyrir
sig, hún sagði;
„...nálamar hjá mér, þœr virkuðu ekki
nógu vel [...] sko ég versnaði ekkert en
þœr voru ekki að gera neitt gott heldur “.
Hún sagði jafnframt þegar hún var
spurð um það hvort henni hafi fundist
eitthvað vera jákvætt við meðferðina;
„...það sem var kannski jákvœtt við
þessa meðferð er að mér fannst ég hafa
sofið vel nóttina eftir nálastungumar og
mér fannst ég stundum vera aðeins lipr-
ari í sko bakinu, en það var í rauninni
ekki lengur en í sólarhring “.
í frásögn kvennanna af meðferðinni
kom í ljós að fimm þeirra fannst þær
finna fyrir verri líðan í upphafi meðferð-
ar. Þær fundu fyrir þreytu eða auknum
verkjum til að byrja með, áður en þeim
fannst meðferðin fara að skila árangri.
Ein þeirra sagði til dæmis;
...ég var búin aðfara þrisvar sinn-
um, þá ætlaði ég að hœtta, þá hafði ég
aldrei verið svona, ég hafði aldrei verið
svona slœm eins og ég var þá “.
Þegar spurt var út í meðferðarfyr-
irkomulagið og hvemig þær sæju svona
meðferð fyrir sér kom í ljós að allar kon-
urnar átta voru mjög jákvæðar varðandi
þá hugmynd að gera nálastungumeð-
ferð við grindarverkjum á meðgöngu
aðgengilega fyrir konur. Ein þeirra sem
hafði góða reynslu af meðferðinni sagði
til dæmis;
„Mér finnst að þetta cetti bara að
vera í boði, bara á heilsugœslum. Þetta
œtti bara að vera í boði fyrir konur,
hvort sem þœr myndu kjósa það eða
ekki. Mérfinnst það ekki spurning. Þú
veist, ég hugsa að örugglega margar
konur myndu nýta sér það efþœr hefðu
kost á því”.
Konumar voru allar sammála um
að sjálfsagt væri að bjóða upp á nála-
stungumeðferð við grindarverkjum á
meðgöngu og nefndu tvær þann mögu-
leika að konur gætu pantað sér tíma og
þannig sóst sjálfar eftir meðferð.
Þegar á heildina er litið verður árang-
ur meðferðarinnar að teljast nokkuð
góður þó svo að sumar hafi fundið betri
árangur en aðrar og ein jafnvel ekki
fundið fyrir neinum mun. Reynsla og
upplifun kvenna af nálastungumeðferð
við grindarverkjum á meðgöngu var
mjög persónubundin. Grindarverkirnir
höfðu ólíkt birtingarform hjá konunum
þó að í flestum tilfellum hefðu þeir áhrif
á svefn og hreyfigetu. Flestar konur
fundu fyrir andlegum einkennum, pirr-
ingi og þreytu vegna þess að þær gátu
ekki sinnt athöfnum daglegs lífs eins
og áður. Upplifun af meðferðinni var
almennt góð og ekki endilega í sam-
hengi við það hvort hún skilaði árangri
eða ekki.
Umræður
Margar ástæður geta verið fyrir því
að leitað sé óhefðbundinna meðferða,
meðal annars þær að fólk sé ekki ánægt
með þær hefðbundnu leiðir sem í boði
eru. Hugmyndafræðin að baki slíkum
meðferðum er einnig talin aðlaðandi í
sjálfu sér þar sem hún lítur heildrænt
á skjólstæðinginn (Gaffney og Smith,
2004b). Þetta hefur ef til vill átt þátt í
því að hvetja konurnar í þessari rann-
sókn til þess að prófa nálastungumeð-
ferð við grindarvekjum á meðgöngu.
Ljóst er að meðferðin dró úr verkjum
sem metnir voru á VAS-verkjaskala hjá
meirihluta kvennanna og er það í sam-
ræmi við fyrri rannsóknir (da Silva o.fl.,
2004; Elden o.fl., 2005; Kvorning o.fl-
2004; Lund o.fl., 2006; Ternov o.fl.,
2001). Um marktækan mun var að ræða
þar sem reiknaður var út munur á styrk
verkja í fyrstu meðferð og í síðustu
meðferð sem konan mætti í. Viðtölin
studdu þessa niðurstöður. Þetta sýnir
fram á árangur meðferðar, að minnsta
kosti á meðan á henni stendur. Ekki
er hægt að segja til um langtímaáhrif
nálastungumeðferða út frá þessum nið-
urstöðum. Þrettán konur (65%) mátu
verki sína vægari í lok meðferðar miðað
við í upphafi fyrstu meðferðar. Fimm
konur (25%) mátu verki sína verri a
12 Ljósmæðrablaðið nóvember 2006