Ljósmæðrablaðið

Volume

Ljósmæðrablaðið - 15.11.2006, Page 15

Ljósmæðrablaðið - 15.11.2006, Page 15
VERKEFN I FRÁ NÁM I í LJ ÓSM ÓÐU RFRÆÐ I Reynsla og ilnugun Ijósmóðurnema um sitjandi fæðingar /þessu blaði er fjallað um sitjandafœð- ingar á tveimur stöðum, bœði frá sjón- arhóli Ijósmóður og hér á eftir í dag- bókarverkefhi Ijósmóðumema þar sem hann íhugar reynslu sína af sitjandi fœðingum í Ijósmóðumáminu. Verkefhið innifelur lýsingar á tveimur sitjandafœð- ingum þar sem sitjandistaða var greind fyrirfram í annarri þeirra en kom óvœnt í Ijós í hinni. Ljósmóðurneminn telur sig heppna að hafa fengið þetta náms- tœkifæri og hafa séð tvœr sitjandafœð- ingar enda hefur þeim fækkað mjög og margar Ijósmœður og fæðingarlœknar hafa takmarkaða reynslu og kunnáttu í að taka á móti sitjanda. Umhverfið sem Ijósmóðurnemar lœra í hefur óneitanlega áhrif á skoðanir þeirra og á hvaða hugmyndafrœði þeir byggja í starfi. Eins og fram kemur í umfjöllun blaðsins hefur ein tímarits- grein um rannsókn þeirra Hannah og félaga hefur haft ótrúlega mikil áhrif á starfshætti og skoðanir um hvaða fæð- ingarmáta eiga að velja í sitjandifœð- ingum. Hér á eftir er nákvæmlegafjallað um galla rannsóknaraðferðar þeirra og hvernig aðrar rannsóknarniðurstöður styðja að ekki eru fyrir hendi faglegar ástœður fyrir því að allar konur með barn í sitjandastöðu fari í keisaraskurð. I Ijósi þess hve sitjandafœðingum hefur fœkkað og að alltaf munu börn fœðast óvœnt í sitjandastöðu hefur skipu- lag kennslu og klínísk þjálfún í sitjanda fæðingarhjálp aldrei verið mikilvœgara. Ljósmœður dagsins í dag öðlast ekki þekkingu og reynslu til jafns við það sem áður gerðist. Þetta er ein afleiðing lœknisfrœðilegrar nálgunar og fylgi- fiskur tœknivæðingar í fæðingarhjálp nútímans. Öll lœrum við af reynslunni og af okkur reyndara samstarfsfólki. Það er staðreynd að fyrst eftir útskrift byggja Ijósmæður fyrst ogfremst á þeirri þekk- ingu og fœrni sem þær hafa öðlast í María Haraldsdóttir; Ijósmóðurnemi á 2. ári við Háskóla Islands náminu og að samstarf Ijósmæðra og fæðingarlækna er afar mikilvægt til að viðhalda og efla fœrni í sitjanda fœð- ingarhjálp. Konurnar okkar eiga rétt á að geta valið um að fœða böm sín í sitjandi stöðu í stað þess að fara í keisaraskurð og einnig að þær séu þá í öruggum ogfærum höndum fagfólks í fæðingarhjálp. ÓlöfÁsta Ólafsdóttir, lektor í Ijósmóðurfrœði Þegar við lærðum um sitjandi fæðingu síðastliðinn vetur og sáum myndband þar sem kona fæddi barn í sitjandi stöðu, var ég alveg ákveðin í að, ef ég sjálf væri í þessari aðstöðu, myndi ég óska eftir að fara í keisara. Það var eitt- hvað við þetta myndband sem fékk mig til þess að taka þessa afstöðu. En nú hef ég skipt um skoðun. Það var eina næturvaktina mína sem kona kom inn í fæðingu með bam í sitjandi stöðu. Þetta var hennar fyrsta barn og hafði sitjandinn greinst dag- inn áður er hún kom á fæðingargang vegna byrjandi samdráttaverkja. Konan sem ég ætla að kalla Lindu, ákvað strax að reyna að fæða bamið en vildi fara heim þar sem hún var ekki komin með mikla verki. Linda kom svo aftur inn um nóttina og var þá byrjuð í fæðingu. Eg og ljósmóðirin mín vorum með aðra konu í fæðingu en við vissum að Linda væri komin. Ég spurði fljótlega hvort að ég mætti vera viðstödd fæðinguna hjá Lindu ef mín kona væri búin að fæða. Það var ekkert mál og átti ég að koma inn þegar að útvíkkun væri lokið. Konan mín fæddi ljúflega og ég vissi að Linda væri að klára útvíkkun og var svolítið óróleg yfir að ég myndi kannski missa af þessu námstækifæri, en eins og allir vita, þá eru þau fá hvað varðar sitj- andafæðingar. Bjallan hringdi inni á stofu 3, ég mátti koma inn. Ég kynnti mig fyrir hjónunum en þau vom búin að gefa mér leyfi til að vera viðstödd. Inni á stofunni vom tveir fæðingarlæknar, einn aðstoðarlæknir, ein ljósmóðir og ljósmóðumeminn ég. Allt gekk eins og í sögu. Sett hafði verið upp Syntocinon dreypi og það aukið smá saman í remb- ingnum. Linda var mjög dugleg, rembd- ist með hrfðunum og slakaði á milli hríða. Hún var ekki með neina deyfingu. Fljótlega fór að sjást í eitthvað sem var lítill rass. Var ekki alveg að fatta hvernig allt snéri í fyrstu en áttaði mig fjótlega á því - síðan fór ekkert á milli mála þegar stelpan kúkaði og pissaði. Fylgdist mjög vel með hvemig hand- tök ljósmóðirin notaði á meðan að ég aðstoðaði við að hlusta hjartsláttinn og meta hríðamar. Var farin að hvetja kon- una áfram í hríðunum, en ljósmóðirin sem tók á móti bað mig um að leyfa sér að tala til hennar. Áttaði mig strax á því að hún hafði rétt fyrir sér. Það var spræk stúlka sem kom í heiminn eftir rúman klukkutíma í rembing. Hún fékk 8 í Ljósmæðrablaðið nóvember 2006 15

x

Ljósmæðrablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.