Ljósmæðrablaðið

Årgang

Ljósmæðrablaðið - 15.11.2006, Side 16

Ljósmæðrablaðið - 15.11.2006, Side 16
apgar eftir eina rnínútu og 9 eftir 5 mín- útur. Mjög gaman að sjá hvemig hún lá á barnaborðinu með tásur við höfuð - í eins konar bananastellingu. Stúlkan var tæpar 13 merkur og sauma þurfti nokkur spor - ekkert meira en eftir venjulega fæðingu. Foreldrarnir voru í skýjunum, mjög ánægðir með allt og Linda hefði ekki geta hugsað sér að gera þetta öðruvísi. Geri aðrir betur, að fæða sitt fyrsta barn f sitjandi stöðu deyfing- arlaust. Mér fannst þetta mögnuð fæð- ing og hún breytti viðhorfum mínum til sitjandi fæðinga. En sögunni er ekki lokið. A síðustu kvöldvaktinni minni á fæðingargangi fyrir sumarfrí átti önnur skemmtileg sitjandafæðing sér stað. Þá átti ég að taka á móti konu sem var með farið vatn og var að koma inn á fæðingargang. Konan hafði fætt stúlku fyrir sex árum síðan og var núna komin 38 vikur plús 6 daga. Vatnið hafði farið um klukkan fjögur um daginn, tært að lit og barnið var skorðað í síðustu skoðun. Konan var ekki komin með neina verki þegar hún hringdi. Klukkan fimm kom síðan konan sem ég kalla Hildi. Hún var nýbyrjuð að fá einhverja verki. Ég mat hríðamar vera á 2-3ja mínútna fresti og stóðu þær yfir í um það bil 20 sekúndur. Þegar ég þreifa á henni kúluna þá finnst mér hún mjög skrítin í laginu, var einhvern vegin miklu stærri vinstra megin. Ég fann að það var fósturhluti skorðaður í grind. Ég setti konuna í monitor og fann strax hjartsláttinn og var hann á „eðlilegum” stað, fór fram og ætlaði að fá einhverja ljósmóður til að skoða með mér kúluna en það var engin á vaktinni þannig að ég ákveð að skrá Hildi inn í tölvuna og ná svo í ljósmóður þegar því væri lokið. Þegar ég var hálfnuð við að skrifa hana inn hringdi bjallan inni á móttöku. Þá var klukkan korter yfir fimm eða 15 mínútur síðan að hún hafði komið inn. Datt í hug að hjartslátturinn hefði dottið út, en það vill stundum gerast og fólk er þá fljótt að hringja. Kom inn og sá að það var eitthvað ekki eins og það átti að vera. Hildur sagðist þurfa að rembast og ég sá og heyrði að það var kominn remb- ingur í hana. Bað hana um að reyna að halda aftur af sér, þar sem ég þyrfti að skoða hana til að vita hver staðan væri á leghálsinum, auk þess grunaði mig að barnið væri í sitjandi stöðu. Þegar ég skoðaði hana þá fann ég eitthvað sem ég hafði ekki fundið áður. Áttaði mig ekki alveg strax en svo helltist það yfir mig - ég fann litlar tásur, tíu tásur. Ég sagði Hildi að halda aftur að sér og mása í gegnum hríðirnar og mamma hennar sem var með henni hvatti hana til þess. Sagðist þurfa að fá aðra ljósmóður til að meta hana. Ég náði í ljósmóður sem svo staðfesti að þarna væru tveir fætur, komnir niður á grindarbotn. Eftir þetta var hringt strax í vakthaf- andi lækni og konan flutt inn á fæðing- arstofu. Ákveðið var að hún myndi reyna við fæðingu og voru allir í viðbragðs- stöðu. Sett var upp nál, blóðprufur tekn- ar í flýti og Syntocinon sett upp þar sem hríðarnar voru enn mjög stuttar. Hildur var sett í stoðir, deyfing, ebbuskæri og tangir höfð tilbúin á borðinu. Ég hélt við hjartsláttarnemann og í hendina á Hildi. Mátti varla hreyfa mig en við minnstu hreyfingu greip hún fastar í mig og sagði að ég mætti ekki fara frá sér. Ég hvatti hana áfram og fylgdist með fæðingu barnsins. Fyrst komu fætur, svo mjaðm- ir og kom í ljós að þama var drengur á ferð, axlir fæddust og höfuðið fæddist síðast. Þetta var magnað og gekk svo vel. Drengurinn var svolítið slappur en var fljótur að jafna sig og fékk 4 og 8 í apgar, var rúmlega 14 merkur. Hildur og móðir hennar voru í sæluvímu og ég sveif um á bleiku skýi - þetta var svo flott. Maðurinn hennar kom svo stuttu eftir að drengurinn var fæddur og var hann ekki síður ánægður. Fræðileg umfjöllun Þar sem viðhorf mitt til sitjandi fæðinga hafði breyst mikið þá ákvað ég að athuga frekar hvað rannsóknir hafa að segja um fæðingu barna í sitjandi stöðu um fæð- ingarveg og skrifa dagbókarverkefni. í stuttu máli sagt þá komst ég að þeirri niðurstöðu að rannsóknamiðurstöður eru misvísandi og að á meðan Hannah o.fl. (2000) ályktuðu að keisaraskurður væri betri kostur fyrir bamið heldur en fæðing um fæðingarveg, þá hafa aðrar rannsóknir stutt að ekki sé fagleg ástæða til þess að allar konur fari í keis- ara ef þær hafa barn í sitjandi stöðu (Margrét Kristín Guðjónsdóttir og Þóra Steingrímsdóttir, 2002, Uotila og fl. 2005, Goffinet o.fl., 2006). í lok meðgöngu em 3-4% barna í sitjandi stöðu. Mikið hefur verið deilt um hvaða fæðingarleið skuli valin í þessum tilfellum (Gilbert og Harmon, 2003). Alþjóðleg rannsókn Hannah o.fi. (2000) gjörbreytti viðhorfum um allan heim til sitjandi fæðinga um fæðing- arveg á þann hátt að víðast hvar var valkeisari ráðlagður í stað fæðingar. Rannsóknaraðferð þeirra hefur verið gagnrýnd en hún náði til 121 stofn- ana í 26 löndum og til 2088 kvenna. Mun lægri dánartíðni var hjá börnum sem fæðst höfðu með valkeisaraskurði heldur en um fæðingarveg, auk þess var lægri tíðni á alvarlegum vandamálum hjá nýburanum eftir fæðingu. Uotila o.fl. (2005) gerðu rannsókn í Finnlandi sem byggð var á aðferðum Hannah o.fl. Þetta var afturvirk rannsókn yfir 7 ára tímabil 1995-2002 sem samanstóð af 590 fullmeðgengnum (yfir 37 vikum) einburum sem fæddust í sitjandi stöðu, 396 sem fóru í valkeisaraskurð með sitj- anda og samanburðarhóp 590 kvenna sem fæddu einbura um fæðingarveg í höfðustöðu. Niðurstöður þeirra sýndu fram á að apgar stig voru lægri hjá sitj- andi fæðingarhópnum en engin annar munur fannst. Dánartíðni var engin. Höfundar komu með þrjár kenningar fyrir mismunandi niðurstöðum rann- sóknar sinnar og Hannah og félaga. 1 fyrsta lagi þótti þeim athyglisvert að þrátt fyrir mikinn fjölda barna í sitjandi stöðu í rannsókn þeirra var meðaltalið fyrir hverja stofnun aðeins sex sitjandi fæðingar á þriggja ára tímabili. Af því má leiða að á einhverjum af þessum fæðingarstöðum starfi fólk sem hefur ekki reynslu af því að taka á móti sitj- anda. Þar af leiðandi er möguleiki á að það hafi haft áhrif á niðurstöður rann- sóknarinnar. I öðru lagi var grindarmæl- ing gerð í minna en 10% tilvika og ekki var ætlast til þess að konur væru í moni- tor á meðan á fæðingu stóð. Það er ekki spuming að hægt hefði verið að komast hjá fósturdauða í nokkrum tilvikum ef fylgst hefði verið með hjartslætti fósturs og hægt að framkvæma neyðarkeisara- skurð. I þriðja og síðasta lagi bentu þeir á að til að taka á móti sitjanda þurfi að uppfylla lágmarkskröfur um þekkingu og að líklega hafi ekki verið næg færni til staðar þegar upp komu erfið tilfelli. Á linnska spítalanum voru þeir sem tóku á móti með mikla reynslu af að taka á móti börnum í sitjandi stöðu og voru með lágan þröskuld til inngripa, sem er einn- ig tilfellið á íslandi og í samræmi við niðurstöður íslenskrar afturvirkrar rann- sóknar (Margrét Kristín Guðjónsdóttir og Þóra Steingrímsdóttir, 2002) þar sem sitjandi fæðingar á LSH á 5 ára tímabili, 1996-2000 voru skoðaðar. Þá voru 486 einburafæðingar skráðar í sitjandi stöðu eða 3,3% af öllum fæðingum á því tímabili. Af þessum fæðingum voru 353 börn í rannsókninni, 40 fæddust um fæðingarveg en 207 með valkeisara- skurði og 106 með bráðakeisaraskurði. Börnin sem fæddust um fæðingarveg 16 Ljósmæðrablaðið nóvember 2006

x

Ljósmæðrablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.