Ljósmæðrablaðið - 15.11.2006, Blaðsíða 26
vera erfitt að taka ákvörðun um að flytja
konur, sem að kannski eru frá af verkj-
um, blæðandi og senda þær í langt og
strangt ferðalag. Það er heldur ekki eins
og að allar konur vilji fara, enda geta þær
ekki endilega búist við góðri þjónustu
þegar á spítalann er komið. í Monkey
Bay er ein ljósmóðir á næturvakt á öllum
spítalanum ásamt skúringarkonu. Þær
sinna öllum deildum spítalans og líka
kólemsjúklingum ef þeir eru til staðar.
Vaktin er mjög löng eða frá klukkan 17 -
07:30 og yfirseta eða þægilegheit tíðkast
ekki. Konurnar liggja á fæðingastofu (í
henni em tveir bekkir) baðaðar ljósi.
Þær mega ekki hafa ættingja hjá sér og
em því gjaman aleinar, þær verða svo
bara að kalla þegar að bamið er að fæð-
ast og em heppnar ef ljósmóðirin hefur
tíma eða nennir að sinna þeim. Þegar ég
var þama var engin skurðstofa og ekki
aðstaða til þess að leggja sogklukku eða
tangir og því þarf oft að senda konur á
héraðsspítalann í Mangochi. Þangað eru
þær sendar á eina sjúkrabíl spítalans án
fylgdar heilbrigðisstarfsmanns.
Að fá tækifæri til þess að kynnast
lífi og störfum yfirsetukvenna var alveg
ómetanleg reynsla, ég fékk betri skilning
á þeim erfiðu aðstæðum sem að konur á
afskekktum svæðum í Malaví búa við,
bæði fæðandi konur og ekki síður yfir-
setukonurnar. Þetta eru konur sem að
oft veljast til starfsins vegna þess að
þær búa yfir ákveðnum eiginleikum eða
hafa lært listina af mæðrum sínum eða
öðrum ættingjum. Þær njóta virðingar
og trausts í samfélaginu og þurfa að
koma til móts við þorpsbúana og heil-
brigðiskerfið um að fá heilbrigða konu
Fjölskyldan saman komin.
og bam út úr fæðingunum og verða
að leggja mat sitt á það hvaða konur
þær eiga að senda frá sér og hvenær.
Kröfur kvennanna fara oft ekki saman
við kröfur heilbrigðiskerfisins - öryggi
er skilgreint á ólíkan hátt á milli aðila.
Það var athyglisvert að setja sig í spor
kvennanna í Malaví varðandi öryggi í
fæðingu og bera þær saman við aðstæð-
ur okkar hér heima. Barnshafandi konur
á svæðinu virtust oft meta yfirsetuna og
það að fá að fæða hjá konum sem að
þær þekkja og treysta umvafðar sínum
nánustu, ofar því að fæða á spítala.
Þó margt sé ólrkt er gildi yfirsetunnar
í fæðingu það sama.
Fanesa að opna fceðingaráhöldin.
26 Ljósmæörablaðið nóvember 2006