Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 15.11.2006, Blaðsíða 37

Ljósmæðrablaðið - 15.11.2006, Blaðsíða 37
ODDRÚN, FÉLAG NEMA í LJ Ó S M ÓÐ U RF RÆÐ I Við eigum okkur draum... Ljósmœðranemar á 1. ári. Fyrir aftan: Gréta Hrund Grétarsdóttir, Hildur Brynja Sigurðar- dóttir, Áslaug Birna Jónsdóttir, Birna Málmfríður Guðmundsdóttir, Guðrún Svava Pálsdóttir, Árdís Kjartansdóttir. Fyrir framan: Embla Ýr Guðmundsdóttir, María Jónsdóttir. ... sem okkur langar að deila með þér, lesandi góður. Oddrún, félag nema í ljósmóðurfræði við Háskóla Islands, hefur fengið sinn fasta sess í haustblaði Ljósmæðrablaðsins og er það vel. „Glöggt er gests augað” og í ár vill Oddrún taka alvarlega hlutverk sitt sem gesturinn í málshættinum góða. Við ljós- móðurnemar erum drýgstan hluta verk- námsins gestir á Landspítala-háskóla- sjúkrahúsi en fáum einnig að kynnast störfum í heilsugæslu og við heilbrigð- isstofnanir á landsbyggðinni. Að feng- inni þessari reynslu langar okkur að setja niður á blað þau atriði sem við telj- um að megi færa til betri vegar í þjón- ustu við fjölskyldur í barneignarferli, hvort sem er í smáu eða stóru. Skjólstæðingar okkar hafa ákveðinna hagsmuna að gæta í stuttan tíma í senn. Á sama tíma þurfa þeir að forgangsraða kröftum sínum í þágu hinnar vaxandi fjölskyldu. Því er erfiðleikum bundið fyrir þessa einstaklinga að vera sterkur þrýstihópur sem gæti veitt þjónustuað- ilum aðhald í starfí. Segja má að ljós- mæðrum sé skylt að vera helsti máls- svari fjölskyldna í bameignaferli. Þær gegna því lykilhlutverki að standa vörð um og berjast fyrir bættri aðstöðu fyrir þennan hóp. Ljósmæður eru jafnframt þeir aðilar sem veita þjónustuna og ber því rfk skylda til að vera gagnrýnar á eigin störf. Það er von ljósmóðurnema að með því að viðra hugmyndir okkar um þessi málefni áopinberum vettvangi séu minni líkur á að þær falli í gleymsku í hugum okkar þegar hugsjónabál námsáranna brennur út og við verðum samdauna 1. ár, Akureyri (fjarnemar): Leanne Carol Leggett og Rakel Káradóttir. starfsumhverfmu. Stjómmálaflokkar eiga sumir hverjir til að birta gamlar stefnuskrár fyrir komandi kosningar. Við sem nú stundum nám í ljósmóð- urfræðum getum að sama skapi litið til baka eftir nokkur ár í starfi, séð hvað þegar hefur áunnist og jafnframt hverju við eigum enn eftir að koma í fram- kvæmd. Við viljum sjá... Meðganga Hlúa þarf vel að konum sem af ein- hverjum ástæðum þurfa að leggjast inn á sjúkrahús á meðgöngutímanum. Að okkar mati er aðstaðan á meðgöngudeild LSH ásættanleg ef frá er talinn skortur á einbýlum með salemisaðstöðu. Því ber að fagna að nýlega komst í gagnið aðgangur að nettengingu á hverri stofu. Næsta skref sem við myndum vilja sjá í þeirri þróun er að hverju rúmi fylgi sér nettenging. í nútíma þjóðfélagi er það aðbúnaður sem öllum sem dvelja á sjúkrahúsi ætti að standa til boða. A meðgöngudeildinni sjáum við helst þörf fyrir endurbætur á skoðunar- herbergi. Sauma þarf ný tjöld og fá góða skoðunarbekki. Ánægjulegt væri að sjá eflingu göngudeildar (dagannar) við meðgöngudeild með aukinni mönnun og bættri aðstöðu. Við lítum á meðgöngu sem heild og þykir eðlilegt að konum á fyrsta þriðj- ungi meðgöngu sé sinnt af ljósmæðrum meðgöngudeildar frekar en hjúkmnar- fræðingum kvenlækningadeildar þegar upp koma meðgöngutengd vandamál. Meðganga er náttúmlegt ferli en ekki kvensjúkdómur, þó ekki endi allar með- göngur með fæðingu fullburða barns. í því samhengi þykir okkur einnig sjálf- sagt að ljósmóðir sé fyrsti heilbrigð- isstarfsmaður sem kona leitar til vegna þungunar. L[osnnæðrablaðið nóvember 2006 37

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.