Ljósmæðrablaðið - 15.11.2006, Qupperneq 39
AF VETTVAN GI FÉLAGSMÁLA
Hugmyndaregn Ijosmæðra
í ol<tóber 2006
í október stóð Ljósmæðrafélagið fyrir
tveimur svo kölluðum „brainstorming“
fundum meðal ljósmæðra, á Akureyri
og í Reykjavík. Fundunum var ætlað
að gefa öllum ljósmæðrum kost á að
hafa bein áhrif á áherslur í starfi félags-
ins og færa þannig félagið nær hinum
einstaka félagsmanni. Hér verður gerð
stutt grein fyrir báðum fundunum og
Akureyrarferð stjórnar LMFÍ.
Akureyrarferð stjórnar
Öll stjóm Ljósmæðrafélagsins lagði
land undir fót til að sækja Norð-
urlandsljósmæður heim og funda með
þeim og er það líklega í fyrsta sinn sem
slíkt gerist. Það er ekkert launungarmál
að ekki hafa margir fundir verið haldn-
ir af hálfu stjórnar LMFÍ á Akureyri
og langsótt fyrir ljósmæður þaðan að
sækja fundi félagsins. En fyrir vikið er
Norðurlandsdeild LMFÍ virkasta lands-
hlutadeild félagsins.
Akureyrarferðin var í alla staði mjög
vel heppnuð og móttökur hlýjar. Við
lögðum af stað úr Reykjavík á hádegi
á mánudegi, í sléttfullum 7 manna bíl
Unnar og komum síðdegis til Akureyrar.
Fyrir fundinn borðuðum við á La Vita
Bella með Sigfríði Ingu Karlsdóttur,
lektor við HA og Lilju Guðnadóttur, for-
manni Norðurlandsdeildar LMFÍ. Eftir
vel sóttan og uppbyggilegan fund undir
stjóm Sigfríðar Ingu, gistum við í húsi
Starfsmannafélags LSH. Morguninn
eftir skoðuðum við Fæðingardeild FSA
og Háskólann á Akureyri, fengum okkur
síðan göngutúr í Kjarnaskógi sem skart-
aði sínum fegurstu haustlitum í logn-
inu. Eftir heimsókn í Jólahúsið með
viðkomu við Óskabrunn hinna ófæddu
bama, fengum við okkur hressingu á
kaffihúsinu Bláu könnunni, áður en
við lögðum af stað suður aftur. Þessum
rúmlega 30 tíma stjómarfundi lauk svo
ekki fyrr en seint á þriðjudagskvöldi við
heimkomu til Reykjavíkur og hafði þá
stjómin kmfið öll mál sem vert var að
kryfja og tekið skal fram að henni var
ekkert mannlegt óviðkomandi.
Fundirnir
Lögð var áhersla á að fá ljósmæður af
öllu landinu á fundina og komu full-
trúar frá Vestfjörðum og Austfjörðum
á Reykjavíkurfundinn. Fundimir
voru í formi SVÓT greiningar (sem
stendur fyrir: styrkleikar, veikleikar,
ógnanir og tækifæri) þar sem fund-
argestir ræddu styrkleika og veikleika
Ljósmæðrafélagsins, hvað stæði því
mögulega fyrir þrifum og hvaða tæki-
færi það hefði. Upp úr þessari greiningu
Stjóm LMFÍ í Kjamaskógi: Guðrún
Guðmundsdóttir, Kristbjörg Magnúsdóttir,
Unnur B. Friðriksdóttir, Steinunn Blöndal,
Helga Harðardóttir, Sigrún Kristjánsdóttir
og Guðlaug Einarsdóttir.
spannst svo mikil umræða um félagið.
Það er skemmst frá því að segja að
félagsmönnum þykir afskaplega vænt
um Ljósmæðrafélagið sem að mörgu
leyti virkar eins og grasrótarsamtök, þar
sem margir vinna sjálfboðavinnu af ein-
lægri hugsjón fyrir málstað stéttarinnar
og skjólstæðinga hennar, barnshafandi
fjölskyldna. Smæð félagsins getur bæði
talist sem styrkur og veikleiki, t.d. líkar
ljósmæðmm vel hversu boðleiðir eru
stuttar innan félagsins þó svo félagið
hafi ekki marga starfsmenn á launaskrá.
Var það einnig mál fundarmanna að
BHM væri traustur barhjarl fyrir lítið
félag og aldrei sýnilegri en nú þegar
Ljósmæðrafélagið er komið undir sama
þak og BHM.
Fundarmenn voru sammála um að
Ljósmæðrafélagið væri stækkandi félag
og við það væm bundnar miklar vænt-
ingar. Það er ljóst að næg verkefni liggja
fyrir til að styrkja félagið í að styrkja
ljósmæður. Áhersla var lögð á að styrkja
fræðimennsku innan félagsins, fræða
hver aðra og konur almennt og hafa
ljósmæður þar greiðan aðgang með vef-
svæði sínu www.ljosmodir.is sem flestar
barnshafandi konur skoða. Miklar vonir
eru bundnar við innra net vefsvæðisins
sem enn er í smíðum. Það gæti m.a.
hjálpað til við að setja á fót áhugahópa
meðal ljósmæðra um hin ýmsu sérsvið
ljósmóðurstarfsins sem sækja má þekk-
ingu til. Slíkir hópar gætu líka stuðlað
að því að gera ljósmæður sýnilegri í
fjölmiðlum, t.d. með greinaskrifum um
einstök málefni. Skortur á aðgangi að
fjarfundabúnaði hefur komið í veg fyrir
að hægt væri að sinna landsbyggðarljós-
mæðrum að sama gagni og Ijósmæðrum
á Suðvesturhorni landsins og var það
skýr niðurstaða Akureyrarfundarins. Þar
gæti innra net vefsvæðisins bætt eitt-
hvað úr og minnkað fjarlægðir á milli
ljósmæðra sem margar hverjar eru ein-
yrkjar á sínum vinnustað og þætti feng-
ur að því að geta sótt faglegan styrk til
starfsystra sinna víðsvegar um landið.
Rætt var um núning innan stéttarinnar
og könnuðust flestar við núning af ein-
hverju tagi; milli vinnustaða, ntilli deilda
á sama vinnustað, milli fag- og kjara-
félaga félagsins eða milli „landsbyggð-
ar-” og „borgarljósmæðra.” Fundarmenn
voru sammála um að slíkur núningur
minnkaði samstöðu ljósmæðra og trú-
verðugleika út á við og mikill áhugi var
fyrir að minnka þennan núning. Sem leið
til þess var helst nefnt að auka skilning
milli þessara hópa. Það mætti t.d. gera
með skipulögðum heimsóknum milli
vinnustaða/deilda, þar sem á annað borð
væri ekki hægt að koma við „rotation” á
Ljósmæðrablaðið ndvember 2006 39