Ljósmæðrablaðið - 15.11.2006, Qupperneq 40
starfsfólki. Auk þess væri mikilvægt að
ljósmæður hittust sem mest og oftast utan
vinnu, enda var það mál fundarmanna að
ljósmæður hefðu þá sérstöðu að hafa
starf sitt ekki einungis að atvinnu, held-
ur oft einnig sem sitt helsta áhugamál.
Þó ljósmæðrastörfm séu okkur einnig
lífsviðurværi, gleymist oft sú áhersla
í eldmóðnum og kjaramálin sitja því
löngum á hakanum þar sem fáar hafa
það áhugamál að strögla í kjarabaráttu.
Þar er því mikið staif fyrir höndum og
m.a. voru þau orð látin falla að það væri
ágætis markmið að verða fyrsta hálauna-
stétt kvenna. Góður rómur var gerður
að mánaðarlegum Hringborðsumræðum
Ljósmæðrafélagsins sem er heppilegur
vettvangur fyrir ljósmæður að hittast til
að ræða öll ljósmæðramál.
Fundimir voru gagnlegir og skemmti-
legir og ekki leynir sér að það er hugur
í ljósmæðrum að styrkja stéttina bæði
fræðilega og ekki síður með virðingu
fyrir starfi okkar og hverri annari sem
ljósmæðmm. Við sköpum orðræð-
una um starf okkar, ljósmæður og
Ljósmæðrafélagið og það er því mikið
undir okkur komið hvaða stefnu sú orð-
ræða tekur. Aðeins er hér nefndur hluti
þeirra ábendinga og málefna sem fram
komu á fundunum en ljóst er að þetta
veganesti nægir stjórn félagsins næstu
misserin til þess að vinna að. Stjóm
Ljósmæðrafélagsins fínnur góðan byr í
félaginu og hyggst nýta sér hann.
Stjómin
Þórdís Símonardóttir Ijósmóðir
fædd 1853- dáin 1933
Þórdís var ljósmóðir í 53 ár og tók á móti á
þriðja þúsund börnum. Hún lét sig miklu
varða ef skjólstæðingar hennar áttu um sárt
að binda og var baráttukona fyrir
réttindum kvenna. Þórdís var í hópi fyrstu
liósmæðranna sem Alþingi veitti eftirlaun
árið 1926.
Saga Þórdísar er hetjusaga ljósmóður og
baráttukonu fyrir betra sanifélagi.
Kn við
i-mnig sjálíar að linía opin niigun og reyna að lála ekki
'jóða ckkur söinu kjör og vcrið heíir, |>ar ?cm í lagannn nafni
eru lagðar á okkur miklar fkyldur, en mjög takmörkuð rjcttindi.
Vjð ntrgum rkki húaft við að aðrir hjálpi okkur rí við gerum
ekknt fjálfar. prs«i kjör, fcm okkur rru hoðin, bjóða þrir rng
um karlmanni; |>rir tækju rkki við ílíku starfi upp á þrssi kjör.
Bréf Þórdísar til embættissystra sinna.
Ljósmæðrablaðið 4/1923.
^/rlo en li(/í o ö /r/ (/jó'SniceJiHí
Þriðjudagskvöldið 12. desember kl. 20 verður aðventukvöld fyrir Ijósmæður í Borgartúni 6.
Stjórn Sambands sunnlennskra kvenna mun þá afhenda Ljósmæðrafélaginu
fullbúna Ijósmæðratösku sem Sambandið hefur gefið félaginu.
Eyrún Ingadóttir, sagnfræðingur og rithöfundur, verður gestur fundarins,
en hún er að skrifa skáldsögu um líf Þórdísar Símonardóttur Ijósmóður á Eyrarbakka.
Ljósmóðurtaska Þórdísar verður til sýnis á fundinum.
Veitingar verða í boði Ljósmæðrafélags íslands.
40 Ljósmæðrablaðið nóvember 2006