Ljósmæðrablaðið - 15.12.2008, Blaðsíða 14
Cytotec til framköllunar fæðinga
Cytotec eða misoprostol er prostagl-
andín E1 analog þ.e.a.s virkar eins og
náttúrulegt prostaglandín.
Samdráttareiginleikar prostaglandína
á leg voru uppgvötvaðir um 1969 þegar
það var fyrst notað til gangsetninga
á 10 konum (1). Náttúruleg prostagl-
andín hafa mjög stuttan helmingunar-
tíma og þarf að gefa mjög háa skammta
með stuttu millibili ef áhrifa á að gæta.
Einnig voru algengar aukaverkanir frá
meltingarvegi og lélegt geymsluþol var
til vandræða. Þannig var fljótlega hætt
að nota hin náttúrulegu prostaglandín
og í staðinn farið að þróa lyf með sömu
virkni, en með lengri helmingunartíma
og færri aukaverkanir. Þannig hafa
prostaglandín analogar eins og Prostin
(Dinoproston) og Cytotec tekið yfir og
eru notuð í dag í stað hinna náttúrulegu
prostaglandína.
Árið 1967 komu í ljós verndandi áhrif
prostaglandína á magaslímhúðir, en þau
minnka seyti á magasýrum (2).
í framhaldinu hófst framleiðsla
Cytotec til notkunar gegn magasárum.
Árið 1987 er fyrst lýst áhrifum Cytotec
á þungað leg og eftir það var það tals-
vert notað ólöglega til fóstureyðinga,
sérstaklega í rómönsku Ameríku. Beitt
hefúr verið þrýstingi og mótmælum
gegn framleiðandanum vegna þessa
sem tafið hefur fyrir markaðsetningu
lyfsins í fæðingar- og kvensjúkdómum.
Til þess að hægt sé að skrásetja
Cytotec til notkunar við framköllun
fæðinga þarf geysilega stórar og kostn-
aðasamar rannsóknir. Þar að auki er
erfitt að fá leyfi til rannsókna á þung-
uðum konum, m.a. af siðferðislegum
ástæðum. Einkaleyfi Searle lyfjafyr-
irtækisins rann út 2005 og eru nú fleiri
fyrirtæki sem framleiða Cytotec og fæst
það t.d. í Brasilíu og Egyptalandi sem
25 míkrogrömm til gjafar í leggöng
við framköllun fæðinga. Bandaríska
matvæla- og lyfjastofnunin (FDA)
samþykkti árið 2003 notkun Cytotec
til fóstureyðinga. Sama stofnun hefur
ekki samþykkt notkun Cytotec til ffam-
köllunar fæðinga en hefúr heldur ekki
bannað notkun þess í þessum tilgangi
Berglind Steffensen
sérfræðingur í fæðingar- og
kvensjúkdómum Landspítalanum
og hefur gefið út yfírlýsingu um að sé
það notað skal gæta fyllstu varkámi,
fylgja bestu fáanlegu rannsóknum og
gagnreyndri læknisfræði hverju sinni.
Auk þess skal halda skrá um notkun og
virkni (3)
Alþjóða heilbrigðismálastofnunin
(WHO) hefúr bætt Cytotec á lyfjalista
stofnunarinnar (Model list for drugs for
induction of labour and abortion) sem
nauðsynlegt lyf í fæðingar og kven-
sjúkdómum (4).
Benda má á fleiri lyf sem notuð era í
fæðingarfræði þrátt fyrir að lyfið sé ekki
skrásett til þeirrar notkunar (off-label).
Þar má nefna m.a. Bricanyl og Adalat
sem notuð eru til að draga úr samdráttum
í legi, Betametason sem gefið er til örva
lungnaþroska fósturs, magnesíum dreypi
til að draga úr krampahættu i alvarlegri
meðgöngueiturun, progesterone til að
reyna að hindra fyrirburafæðingu. Þessi
lyf eru öll gefín eftir ákveðnum reglum
og fyllsta öryggis er gætt.
Cytotec var fyrst notað til framköll-
unar fæðinga árið 1987 vegna dáins
fósturs og 1991 hjá lifandi fóstri (5).
Hafa yfír 100 rannsóknir verið birtar
þar sem fjallað er um notkun þess og
verkunarmáta við framköllun fæðinga.
Cytotec er hægt að gefa um munn,
undir tungu, í leggöng eða endaþarm.
Það veldur samdráttum í legi með
að bindast EP2/EP3 prostaglandín
viðtökum í legi, en það hefúr einnig
mýkjandi og styttandi áhrif á legháls.
Ekki er vitað nákvæmlega hvemig
Cytotec hefúr áhrif á leghálsinn en það
virðist vera vegna áhrifa á bandvefinn
(6).
Aukaverkanir eru ekki tíðar, en eru
helst frá meltingarvegi; ógleði, niður-
gangur og uppköst. Lýst hefur verið
hita og hrolli. Legbrestur er mjög
sjaldgæf en alvarleg aukaverkun en
hefur nánast eingöngu sést hjá konum
sem hafa ör á legi. Saga um keisara-
skurð, aðgerð eða ör á legi er algjör
frábending fyrir notkun á Cytotec. Þess
má þó geta að á mjög mörgum stöðum
eru notuð prostaglandin (Prostíntöflur/
Gel) önnur en Cytotec þrátt fyrir ör á
legi. Hjá konum með sögu um fyrri
keisara sem reyna fæðingu um leggöng
er tíðni legbrests um 0,5-1,0%. Þar sem
legbrestur er svo sjaldgæf aukaverkun
þyrfti rannsókn með um 60 þúsund
konum með sögu um ör á legi ef fínna
ætti hvort tíðni legbrests er aukin eftir
gjöf Cytotecs (7).
Hætta á legbresti er einnig til staðar
eftir gjöf Prostíns. Framköllun fæðingar
eykur ekki hættuna á legbresti hjá
konum með ör í legi samanborið við
sjálfkrafa sótt.
Niðurstöður frá kerfisbundnu yfír-
liti (Systematic Rewiev-2008) (8)
þar sem 70 rannsóknir voru teknar til
skoðunar sýndu að sé Cytotec gefið í
stærri skammti en 25 mikrogrömm eru
marktækt fleiri sem fæða innan 24 klst.,
minni þörf er á Oxytósíni og mænu-
rótardeyfingu, en meira var um oförvun
(fleiri en 6 samdrættir á 10 mín) og
lituðu legvatni þó án þess að hafa
áhrif á börnin. Það var ekki meira um
vökudeildarinnlagnir eða slæma útkomu
hjá börnunum.
Rannsókn sem birtist í British Joumal
of Obstetrics and Gynecology í septem-
ber 2008 bar saman notkun á Prostíni
3 mg og Cytotec 25 mikrogrömm gefið
í leggöng. Um 300 konur voru í hvorum
14 Ljósmæðrablaðið desember 2008