Freyr - 01.08.1935, Blaðsíða 3
Tryggvi Oórhallsson.
Fæddur 9. febrúar 1889. Dáinn 31. júlí 1935.
Þegar viS starfsmenn Búnað-
arfélagsins, sem innum okkar
daglegu störf af höndum á skrif-
stofum þess, komum þar að
morgni 31. júlí, barst okkur sú
sorgarfregn, að formaður félags-
ins, Tryggvi Þórhallsson, banka-
stjóri, hefði andast þá um morg-
uninn.
Okkur setti hljóða og varð lít-
ið úr verki, þann daginn, enda
gat okkur ekki borist meiri
harmafregn til eyrna, sem
starfsmönnum félagsins. Við
vissum, að hann var ekki heill
heilsu, en við vonuðum það all-
ir, að mega þó enn njóta þess
lengi, að starfa með honum og
undir hans stjórn, í þjónustu fé-
lagsins. Við fundum það glöggt,
að foringi íslenzkra bænda var
hníginn í valinn með honum, og
nú áttum við aldrei framar að
finna okkur hlýna um hjartaræt-
urnar við hið glaða og hjartan-
lega ávarp hans, þessa góða hús-
bónda og glæsilega göfugmennis.
Við vissum það líka, að enginn
maður mundi svo almennt harmaður um landið allt, eins og Tryggvi Þórhallsson.
Sú vissa var okkur ekki harmaléttir, en við fundum það betur þá en nokkru sinni fyrr,
hver ágætismaður hann var, og að „enginn veit hvað átt hefir fyrr en misst hefir“.
Einlægan og áhrifamikinn foringja bændanna í landinu vissum við hann hafa
verið, gnæfandi yfir alla aðra, um hartnær 2 áratugi. En nú, þegar við eigum hon-
um á bak að sjá, á bezta aldri, skýrist þó mat okkar á honum, virðingin verður
dýpri, og þakklætið innilegra.
TRYGGVI ÞÓRHALLSSON