Freyr - 01.08.1935, Blaðsíða 15
F R E Y R
29
þess, hve margar ær eru geldar nú, má bú-
ast við því, að mikið verði sett á af geld-
um ám. Geldum ám, sem settar eru á, er
hættara við en öðrum ám að verða tví-
lembdar. En ær, sem ganga með tvö lömb,
þurfa betra fóður, eigi þær að sýna fullt
gagn, en ær sem ganga með eitt lamb. Sér-
staklega gildir þetta síðari hluta vetrar.
Á einmánuði má finna á ánum hvort þær
eru tvílembdar eða ekki. Þá þarf líka helzt
að fara að mismuna þeim, eigi þær að sýna
fullt gagn. — Þessa vildi eg biðja bændur
að minnast í vetur, og það er meiri ástæða
til að gefa þessu gaum nú en venjulega,
vegna geldu ánna, sem settar verða á vet-
ur. En annars má með fóðruninni fyrir og
um fengitímann hafa áhrif á hve mikið
verður tvílembt, en það er atriði, sem all-
ir þekkja og ekki skal rætt um hér.
Með þessu vildi eg þá segja þetta: Ykk-
ur er óhætt að setja á ærnar, sem ekki
héldu í vetur. Þær halda eins og aðrar ær
að vetri. Ykkur er óhætt að setja á ærnar,
sem létu lömbunum í vetur, þær gera það
yfirleitt ekki frekar en aðrar ær að vetri.
En þið skuluð vera athugulir og varasam-
ir með að setja á ær, sem drápu undan sér.
Þær geta gert það aftur, og þið skuluð helzt
ekki setja á undan þeim, nema þið vitið,
að orsökin til þess að lambið drapst sé ánni
alveg óviðkomandi.
Segið til þess strax að vetri, ef ær fara
að láta hjá ykkur lömbum.
Búast megið þið við mörgum geldu án-
um, sem þið eigið nú, tvílembdum að vori.
Passið að fara þannig með þær, að þær
sýni ykkur þá fullt gagn.
18. ágúst 1935.
Páll Zóphóníasson.
Munið, að endursenda blaðið, ef þér
óskið ekki að gjörast kaupandi þess.
Um skozka féð.
Með Gullfossi þ. 25. júlí síðastl. kom til
Reykjavíkur skozkur f járræktarfræðingur
Jan Cumming, Allanfearn Inverness í Skot-
landi. En af f járstofni þessa manns keypti
Hallgrímur Þorbergsson Border-Leicester
fé það, sem flutt var hingað til lands og
hann hefir síðan haft til varðveizlu á Hall-
dórsstöðum í Laxárdal, og fór þar eftir til-
lögum landbúnaðarráðuneytisins skozka.
Jan Gumming kom til landsins meðal
annars til þess að skoða þennan fjárstofn
á Halldórsstöðum og kynna sér, hvernig
eldi hans og gæzla hefði gefizt hér á landi.
Um Jan Cumming er rétt að geta þess,
að hann er í svo miklu áliti sem sérfræð-
ingum um þetta fjárkyn, að hann er einn
af þremur verðlaunadómurum Border-
Leicester-fjárins á búfjársýningum í Skot-
landi og írlandi.
Jan Cumming skoðaði nákvæmlega
hverja skepnu og gerði samanburð á hrein-
ræktuðu dilkunum og einblendingsdilkun-
um, og fara hér á eftir kaflar úr umsögn
hans, sem hann lét í té áður en hann hvarf
af landi burt:
íslenzka Border-LeicesterféS.
„Þegar ég athugaði ofangreint fé, þótti
mér fróðlegt að sjá mismuninn á einblend-
ingslömbunum og íslenzku lömbunum. Að
mínu áliti eru einblendingslömbin miklu
þyngri og sterklegri að öllu leyti og virðast
mér þau mjög væn. Ennfremur álít eg, að
ullin af einblendingsfénu hljóti að reynast
betri en ullin af íslenzka fénu.
Einblendingslömbin yðar eru mjög svip-
uð þeim einblendingslömbum okkar í Skot-
landi, sem eru 5 vikum eldri, og er þetta
einblendingsfjárrækt yðar mjög mikið í
hag. Þér ættuð því hiklaust að halda áfram
við að leiða íslenzkar ær til Border-Leices-