Freyr - 01.08.1935, Blaðsíða 7
FREYE
21
uppskeran verður í ár, er fyrst hægt að
gera ráðstafanir til þess að auka hana
nægilega á næsta ári.
Næsta sumar verður kartöfluuppskeran
að nema 90 þús. tn. og jafnframt þarf stór-
lega að auka ræktun annara garðjurta.
Minni vöxtur kartöfluuppskerunnar er
engin veruleg lausn á þessu máli, enda get-
ur þetta verið auðvelt og létt, ef rétt er
að farið.
Að vetri verður að taka mál þetta föst--
um tökum. Þá verður að undirbúa aukna
ræktun um land allt. Sú ræktun verður að-
allega að gerast með þrennu móti.
í fyrsta lagi verður að stefna að því, að
hvert býli landsins, þar sem sæmileg skil-
yrði eru til garðræktar, rækti minnst 1 tn.
af kartöflum fyrir hvern heimilismann til
eigin nota, auk annara garðjurta.
I öðru lagi eiga þeir bændur, sem hafa
góð náttúruskilyrði til garðræktar, og þar
sem jafnframt aðstaða til markaðar í
kaupstöðum og kauptúnum er sæmileg, að
auka kartöfluræktunina það mikið, að þeir
geti selt frá búum sínum til muna meira
en þeir gera nú.
í þriðja lagi þurfa íbúar ýmsra kaup-
túna og kaupstaða að efla ræktun garð-
jurta, getur það víða orðið góð búbót, þar
sem atvinna er lítil eða jafnvel engin.
Að lokum þarf svo sennilega sumstaðar
að stofna til samvinnufélagsskapar um
ræktun kartaflna og jafnvel fleiri garð-
jurta. Þetta á að gera einungis þar sem
náttúruskilyrði eru hin ákjósanlegustu og
jafnframt ekki of erfitt að koma kartöfl-
um til Reykjavíkur, þar sem vitanlega er
langstærsti kartöflumarkaður landsins.
Allur undirbúningur verður að byggj-
ast á fullum skilningi. Það verður að sjá
fyrir nægilegu og góðu útsæði næsta vor
og tryggja það, að menn geti fengið það
við sæmilegu verði.
Alþingi verður með löggjöf að koma
fullu skipulagi á verzlun með kartöflur og
tryggja framleiðendum markaðinn. Þá
verður að sjá um, að nægar og góðar
geymslur verði til, þar sem hentugast er.
Þá verður að meta kartöflur, svo að neyt-
endum sé tryggð góð vara. Þetta, ásamt
mörgu fleiru, hlýtur að verða löggjafar-
atriði, og skal ekki frekar út í það farið
hér.
Hreppabúnaðarfélögin, Búnaðarsam-
böndin og Búnaðarfélag Islands eiga að
beita sér fyrir framkvæmdum, með atbeina
landbúnaðarráðuneytisins. Ef allir þessir
aðilar leggðust á eitt í þessu máli, er full-
víst, að mikill árangur mundi nást.
Eg hefi hreyft þessu máli nú í
hinu nýja búnaðarblaði, til þess að
vekja bændur til athugunar á því, að hér
er verk óunnið, sem þörf er á að fram-
kvæma nú strax, og að sterk hreyfing
verður vakin um málið. Eg vil leyfa mér
að skora á alla bændur landsins að beita
áhrifum sínum og félagslegum samtökum
til þess að hrinda þessu áleiðis. Búnaðar-
félag íslands vill beita sínum áhrifum til
hins ítrasta, svo að árangur megi af verða.
Steingr. Steinþórsson.
Duke of York.
Nýjar kartöflur fyrir Jónsmessu.
Það var siður áður, a. m. k. á Suður-
landi, að fara að „gá undir“ í kartöflu-
görðunum um miðjan ágústmánuð; því
fyrr þýddi það varla, meðan ekki þekktust
önnur kartöfluafbrigði en hin gömlu „ís-
lenzku“, hvítu og bleikrauðu. Svo fóru
nýju ensku afbrigðin að breiðast út og þau
reyndust það fljótvaxnari en hin, að þá
var farið að gá undir um miðjan júlí og
það oft með góðum árangri. Þetta var þýð-
ingarmikið, að geta fengið nýjar kartöfl-