Freyr - 01.08.1935, Blaðsíða 10
24
F R E Y R
hét BúSi, undan Flóru í Búð og Fells. Það
er því bróðir kúnna. Einn kálfurinn er und-
an Fells.
Undan Búða hafa fæðzt 156 kálfar í
Þykkvabænum. Af þeim eru 76 undan hon-
um og systrum hans. Það hefði átt að fæð-
ast áttundi hver kálfur vanskapaður, en
hafa orðið einum fleiri eða 11 í stað 9 til
10, sem búast mátti við eftir erfðalögmál-
inu. Er slíkt tilviljun ein, sem engu
breytir.
Dæmi þetta er ákaflega ljóst. Fells hefir
haft eiginleikann frá öðru foreldri sínu.
Annar hvor kálfur undan honum fær hann,
þar á meðal Búði. Þegar hann svo aftur er
notaður á dætur sínar, þá sameinast í átt-
unda hverju tilfelli eiginleikinn frá honum
og mæðrunum og eiginleikinn kemur fram.
Að eiginleikinn hafði borizt með Fells
í Þykkvabæinn var ljóst eftir rannsóknir
mínar þar, en hvaðan hafði Fells hann?
Hann var keyptur frá Fjalli á Skeiðum,
því að þar hafa til langs tíma verið mjólk-
urháar kýr. Á Skeiðunum hafði eg aldrei
heyrt talað um, að fæddust vanskap-
aðir kálfar, en það gat verið fyrir því. Eg
fór því að rannsaka ætt Fells. Móðir hans
hét Flóra, en faðir Brandur IV. Foreldrar
Flóru voru Brynja og Ljótur, en Brands
IV. Laufa og Ljótur. Annars má rekja
ættina í 5. og 6. lið, en það hefir í þessu
sambandi ekki þýðingu að birta hana hér.
Einungis má geta þess, að það eru góðar
kýr í ættinni, enda reynast dætur Fells vel
yfirleitt. Þegar eg nú fyrir nokkru var á
sýningu á Skeiðunum, sagði eg þeim frá
því, að það væri enginn vafi að í einhverj-
um kúm þar væri hulinn vísir til erfða-
galla, sem, þegar kálfurinn fengi hann frá
báðum foreldrum, orsakaði vanskapning.
Eg lýsti vanskapnaðinum og spurði, hvort
þeir myndi ekki eftir því, að slíkir kálfar