Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.2004, Side 19
DV Sport
FÖSTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2004 19
?n Tottenham í enska bikarnum. Ekki er
núa við þriggja marka forystu Tottenham og
í bikarnum þar sem hann hefur áður
spilað með West Ham.
„David James er markvörður
númer eitt í dag og ég held að það
þurfi aðeins meira til að ég slái hann
út. Ég get hins vegar verið sáttur við
leikinn á miðvikudaginn og ekki
skemmir fyrir að næsti leikur í
bikarnum er stórleikur gegn
Manchester United. Ég vona að
þessi frammistaða mín hafi nægt til
þess að koma mér enn lengra fram
úr Dananum sem ég er að berjast við
um varamarkvarðarstöðuna. Ég þarf
að nýta þau tækifæri sem ég fæ sem
best og það er það eina sem ég get
gert."
Aðspurður sagði Árni Gautur að
það væri fínt að æfa með David
James. „Hann hefur ákveðna
líkamlega hæfileika sem aðrir hafa
bara ekki. Hann er mjög hávaxinn
og nautsterkur og er ffábær mark-
vörður enda væri hann varla enskur
landsliðmarkvörður annars. Hann
hefur reynst mér vel og ég á vænt-
anlega eftir að læra mikið af
honum.“ oskar@dv.is
Sigrinum fagnað Kevin Keegan og Trevor
Sinclair sjást hér fagna sigrinum gegn
Tottenham. Reuters
DV gaf fyrir 16 árum glæsilegan farandbikar í bikarkeppni
karla í körfubolta sem hefur veriö keppt um allar götur síðan.
Sex liö hafa náð aö lyfta bikarnum frá því árið 1988.
DV-bikarinn á
loft í 17. sinn
Keflavík og Njarðvík leika til
úrslita í bikarkeppni KKÍ og Lýsingar
í körfubolta í Laugardalshöll á
morgun og keppa um það að fá að
lyfta bikarnum sem DV gaf til
keppninnar fyrir 16 árum. Það eru
einmitt þessi tvö félög sem hafa
fengið að lyfta bikarnum oftast,
Njarðvík sex sinnum og Keflavík í
fjórða sinn í fyrra.
Guðjón Skúlason, annar þjálfara
DV GAF BIKARINN
DV gaf árið 1988 bikarinn sem
keppt er um ennþá daginn í dag í
bikarúrslitum karla í körfu. Sex
félög hafa fengið lyfta bikarnum og
þrír menn hafa lyft honum oftar en
tvisvar.
Þessi lið hafa unnið DV-bikarinn:
Njarðvík 6
1988, 89, 90, 92, 99, 2002
Keflavík 4
1993, 94,97, 2003
Grindavík 3
1995, 98, 2000
KR1991 1
Haukar1996 1
(R 2001 1
Þeir hafa oftast lyft DV-bikarnum:
Guðjón Skúlason 4
(sakTómasson 2
Pétur Guðmundsson 2
Keflavíkur er sá leikmaður sem
oftast hefur lyft þessum bikar eða
alls fjórum sinnum. Aðeins tveir
aðrir leikmenn hafa tekið á móti
þessum bikar oftar en einu sinni en
það eru Njarðvíkingurinn fsak
Tómasson sem tók við honum
fyrstur vorið 1988 og svo aftur 2
árum seinna og svo Grindvíkingur-
inn Pétur Guðmundsson sem lyfti
honum 1998 og 2000 en Grindavík
hefur unnið í öll þrjú skiptin sem
liðið hefur mætt í Höllina.
Á morgun verður það
annaðhvort Gunnar Einarsson,
fyrirliði Keflavíkur eða Friðrik
Stefánsson, fyrirliði Njarðvíkur sem
fær að ganga á undan sínum
mönnum og taka á móti DV-
bikarnum. Hvorugur hefur tekið á
móti bikarnum áður.
ooj@dv.is
Sigurhringur fyrir 16 árum Njarðvíkingarnir Hreiðar Hreiðarsson og Valur Ingimundarson
hlaupa hér sigurhring með DV-bikarinn eftir að hann hafði verið afhentur ifyrsta sinn eftir
bikarúrslitaleik Njarðvíkur og KR 23. april 1988. DV-mynd Brynjar Gauti
Sebastian Alexandersson, þjálfari Selfoss, spáir í spilin fyr-
ir leikina fjóra í úrvalsdeild karla í handknattleik í kvöld.
Mikill karakter
'vV; - .. 1 '• ■ -. w. J. ~í- WvJ . ..... •'
ef Haukar vinna
Fyrsta umferðin í úrvalsdeild
karla í körfuknattleik hefst í kvöld
með fjórum leikjum. Stjarnan
tekur á móti KA í Garðbæ, HK
sækir Hauka heim á Ásvelli, Valur
og Grótta/KR mætast á Hlíðar-
enda og í Framheimilinu leiða
Fram og ÍR saman hesta sína. DV
Sport fékk Sebastian Alexand-
ersson til að spá í spilin fyrir
leikina fjóra í kvöld.
Sebastian -sagði að það væri
gaman að sjá hvernig liðin kæmu
undirbúin til leiks eftir langt hlé.
„Ég .hef séð nokkur liðanna
spila æfingaleiki í janúar og þau
voru ntjög mismunandi. Sunt lið
voru fersk og létt en önnur virkuðu
þung og þreytt en það er líka
mismunandi hvar þjálfarar vilja
hafa liðin sín á þessum tímapunkti
á vetrinum," sagði Sebastian og
setti sig í spámannsstellingar.
Fram-ÍR
„Bæði þessi lið virkuðu frekar
þung og þreytt í janúar þegar ég sá
þau spila æfingaleiki en ég býst við
að Jtjáfarar beggja liða séu frekar
að hugsa lengra frarn á veginn
heldur en að liðin séu í toppformi
núna. Ég á von á hörkuleik þar
sem IR-ingar mæta til leiks sem
topplið .deildarinnar staðráðnir í
jtvi að hefna ófaranna í bikarnum.
Ég hef þó ekki trú á því að það dugi
og spái Frarn naumum
heimasigri."
Stjarnan-KA
„Ég reikna með skemmtilegum
ileik.og tel að úrslitin komi til með
að velta á því hvort Stjarnan haldi
áfram á sömu braut og þeir voru
fyrir fríið. Ef þeir hafa nýtt tímann
vel og korna sterkir tU leiks þá hef
ég trú á því að þeir vinni leikinn en
KA-liðið er mjög sterkt og vinnur
aúðveldan sigur ef Stjörnumenn
eru ekki í toppformi."
Haukar-HK
„Það hefði verið auðveldara
fyrir mig að spá til um úrslitin í
þessum leik fyrir þrernur dögum.
Ég hef heyrt að Robertas Pauzolis
sé meiddur og það hjálpar
Haukurn ekki. Bæði lið spila sterka
vörn, eru góð (hraðaupphlaupum
og hafa mjög góða markverði. Þau
eru mjög jöfn þegar spilin eru lögð
á borðið en það er óvíst hversu
mikU áhrif átök undanfarinna
daga hefur á liðið. Ég myndi telja
það merki um ntikinn karakter
Sebastian Alexanderssson
Haukanna ef þeirn tekst að vinna
þennan leik miðað við allt og
hallast að sigri HK."
Valur-Grótta/KR
„Grótta/Kll komst fyrir náð og
miskunn inn í úrvalsdeildina og
hefur ekki verið að spila eins vel í
vetur og menn vonuðust til í
upphafi leiktíðar. Þeir liafa
reyndar verið mjög óheppnir með
meiðsli og það munar triikið um
að þeir hafa ekki Gintaras gegn
Val. Valsmenn hafa verið sterkir í
vetur. Þetta eru ungir og sprækir
strákar og þrátt fyrir að þeir hafi átt
í einhverjum ineiðslum í janúar þá
taka þeir leik nokkuð öntgglega,"
sagði Sebastian.